Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2021, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2021, Blaðsíða 20
20 EYJAN H ann hallaði sér virðu-legur fram á borðið, vel greiddur og ný- rakaður, mættur í dökkbláum klæðskerasniðnum jakka- fötum og meira að segja hvíta skyrtan virtist passa full- komlega aldrei þessu vant. Bláa bindið með látlausa en um leið virðulega mynstrinu hafði auðsjáanlega verið valið af kostgæfni. Hann var vel búinn undir spurningar þátta- stjórnandans og talaði kjark í þjóðina á tímum heimsfarald- urs og náttúruhamfara. Einhvern veginn svona blasti Sigurður Ingi Jóhanns- son, formaður Framsóknar- flokks, við áhorfendum Silf- ursins í Ríkissjónvarpinu á sunnudaginn var. Ekki einasta kominn í kosningastellingar heldur var engu líkara en hann væri farinn að æfa rull- una fyrir forsætisráðherra- embættið – enda ekki ósenni- legt að Framsóknarflokkur verði enn á ný í oddaaðstöðu eftir næstu kosningar og geti samið til vinstri og hægri – og gert kröfu um valdamesta embætti landsins. Allir vilja vinna með Framsókn Vitaskuld er of snemmt að spá í niðurstöður alþingiskosninga sem haldnar verða í septem- ber en með þeim mælingum sem birtar hafa verið nýverið er allnokkur samhljómur. Út frá þeim er gaman að velta fyrir sér mögulegu stjórnar- samstarfi en vitaskuld er þetta samkvæmisleikur, engin nákvæmnisvísindi. Sá sem hér heldur á penna ræddi við fjölmarga sem til þekkja og hugmyndir þeirra að stjórnar- myndun eiga næstum allar sammerkt að Framsóknar- flokkur er innanborðs. Athugum líka að hér er að verða til vísir að blokkamynd- un í stjórnmálum. Samfylking og Píratar hafna hvort tveggja samstarfi við Sjálfstæðisflokk og Miðflokk en þetta þrengir að vonum kosti til stjórnar- myndunar verulega. Framhaldslíf ríkisstjórnarinnar Ef við veljum eina mælingu sem leggja mætti til grund- vallar þá er ekki úr vegi að líta á könnun Maskínu á fylgi flokkanna sem framkvæmd var í fyrri hluta febrúarmán- aðar en svarendur voru alls 2.198. Samkvæmt henni hlyti Sjálfstæðisflokkur 22,5% og 15 þingmenn, Samfylking 14,3% og níu menn kjörna, jafnmarga og Vinstri græn sem mælast með 13,5% fylgi. Þar á eftir kemur Viðreisn með átta menn, Píratar og Framsóknarflokkur hvor um sig með sjö þingmenn og Mið- flokkur fimm. Flokkur Ingu Sæland hyrfi af þingi yrðu þetta niðurstöður kosninga, en Sósíalistaflokkur Gunn- ars Smára næði naumlega inn þremur mönnum. Ríkisstjórnin væri þar með naumlega fallin með 31 mann en gæti til að mynda kippt Miðflokki um borð og hefði þá býsna öruggan meirihluta, 36 þingmenn. Forsenda þessa væri auðvitað sættir milli forystumanna Framsóknar- flokks og Miðflokks, en lík- lega gæti ríkisstjórnin haldið áfram sömu siglingu yrði bætt við skipsrúmum fyrir Mið- flokksmenn. Ekki er að sjá að málefnaágreiningur yrði til trafala. Hér yrði uppi sú skemmti- lega staða að allir formenn samstarfsflokkanna, Katrín, Bjarni, Sigurður Ingi og Sig- mundur Davíð, hefðu gegnt embætti forsætisráðherra. Og þar sem flestir telja sig geta unnið með Framsóknar- flokki er ekki ólíklegt að helst næðist samstaða um Sigurð Inga í embætti forsætisráð- herra sem þegar er farinn að máta sig við stólinn samanber framgönguna í Silfrinu sem áður var nefnd. Honum munu alltént bjóðast fleiri kostir ef að líkum lætur. Fleiri kostir Margir Sjálfstæðismenn hafa fengið sig fullsadda af sam- Forsætisráð- herrahjónin, Sigurður Ingi Jóhannsson og Ingibjörg Elsa Ingjalds- dóttir, með Michelle og Barack Obama. MYND/EPA Á ÞINGPÖLLUM Björn Jón Bragason eyjan@eyjan.is SKOÐANAPISTILL LÍKLEGT AÐ FRAMSÓKN VERÐI Í ODDAAÐSTÖÐU Miklar líkur má telja á að Sigurður Ingi verði aftur forsætisráðherra, en flestallar hugmyndir um stjórnarmyndun gera ráð fyrir þátttöku Fram- sóknarflokks. Þrír fyrrverandi forsætisráðherrar sitja nú á Alþingi. 5. MARS 2021 DV Þingstyrkur flokka, sé tekið mið af nýjustu könnun Maskínu. n Sjálfstæðisflokkur n Samfylking n Vinstri græn n Viðreisn n Píratar n Framsóknarflokkur n Miðflokkur n Sósíalistaflokkur ÞINGSTYRKUR FLOKKA starfi við VG og kysu helst stjórn sem væri hægra megin við miðju. Það er varla gerlegt nema þá með Framsóknar- flokki, Miðflokki og Viðreisn, samtals 35 þingmanna meiri- hluta miðað við Maskínukönn- unina. Þar er heldur ekki svo fjarri lagi að sjá Sigurð Inga fyrir sér sem forsætisráð- herra. Sigurður Ingi gæti líka allt eins hugsað sér að horfa til vinstri þar sem hann gæti með réttu gert kröfu um for- sætisráðherrastólinn. Vinstri- stjórn Framsóknarflokks, Vinstri grænna, Samfylkingar og Pírata hefði nauman meiri- hluta sé tekið mið af áður- nefndri könnun eða 32 menn. Gleymum ekki að Sigurður Ingi er fyrrverandi forsætis- ráðherra, hefur þegið stór- kross fálkaorðunnar og hitt Obama í Hvíta húsinu. Þess eru líka nokkur dæmi að for- sætisráðherrastóllinn hafi hlotnast Framsóknarflokkn- um þrátt fyrir lítið fylgi. Flokkurinn galt afhroð í al- þingiskosningunum 1978 sem dæmi – varð minnstur þing- flokka en Ólafur Jóhannes- son, formaður flokksins, engu að síður forsætisráðherra í skammlífri vinstristjórn sem mynduð var í kjölfarið. Fram- sóknarflokkur hafði líka mun minni þingstyrk en sam- starfsflokkurinn, Sjálfstæðis- flokkur, í forsætisráðherratíð Steingríms Hermannssonar 1983–1987 og Halldórs Ás- grímssonar 2004–2006. Hið ótrúlega getur gerst Nú er farið að skýrast hverjir skipa lista flokkanna fyrir næstu kosningar og lengi mætti velta því fyrir sér hverjir kunna að verma ráð- herrasætin. En ef við gefum okkur tvennt, annars vegar að það takist að koma Miðflokki og Framsóknarflokki saman í stjórn og hins vegar að ein- hvern tímann verði hægt að aflétta ferðahöftum, þá kynni Sigurður Ingi því líklega best að hafa Sigmund Davíð Gunn- laugsson sem mest í burtu og hann fengi því utanríkisráðu- neytið sem hann myndi án efa taka fegins hendi. – Það skyldi þó aldrei fara að svo að þeir erkifjendur, Sigurður Ingi og Sigmundur Davíð settust aftur við sama ríkisstjórnar- borðið eftir fimm ára að- skilnað? Ólafur Thors og Her- mann Jónasson töluðust ekki við eftir „eiðrofið“ 1942. Þeir áttu þó eftir að setjast saman í ríkisstjórn átta árum síðar, í stjórn undir forystu fram- sóknarmannsins Steingríms Steinþórssonar. Framsóknar- maddömuna skorti ekki aðdá- endur þá frekar en nú. n 15 9 9 8 7 7 5 3

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.