Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2021, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2021, Blaðsíða 23
FÓKUS 23 á óvart í þessu ferli var vel- vilji þeirra sem hún leitaði til. „Fólk reyndar alveg elskar mat svo það hefur líklega hjálpað. Svo náttúrulega kom mér á óvart hvað ég hef enst í þessu, orðin svona háöldruð,“ segir Berglind og aftur hlær hún við. „En líka þessi tæki- færi sem koma sem ég gerði ekkert ráð fyrir í upphafi.“ Lenti á vegg Þar sem Gulur, rauður, grænn og salt er uppskriftasíða þá var þægilegt að samræma það og heimilislífið. „Við þurfum öll að elda. Það er bara svoleiðis. Ég bara elda og svo bið ég börnin um að bíða á meðan ég tek mynd, þau fá ekki að snerta matinn fyrr,“ segir Berglind og bætir við að börnin hafi reyndar haft litla þolinmæði fyrir matarmynda- tökunum. Þó má gera ráð fyrir að þau séu orðin þaulvön í dag. „Maður keyrði sig samt stundum gjörsamlega út og ég hef alveg lent á vegg og þurft að stoppa mig af. En í dag vil ég hafa jafnvægi á hlutunum. Þegar fólk spyr hvort það sé brjálað að gera svar ég: „Nei, því ég vil ekki hafa brjálað að gera. Það geta komið stutt álags- tímabil en það skiptir svo miklu máli að halda í gleðina og það getur maður ekki ef maður er þreyttur og út- keyrður,“ segir Berglind og bendir á að erfitt sé að sinna verkefnum nægilega vel í slíku ástandi. „Nú reyni ég að hafa jafnvægi í lífinu, enda er þá allt skemmtilegra.“ Þó á móti blási Bestu ráð sem Berglind hefur fyrir þá sem hafa áhuga á að reyna fyrir sér í bloggheim- inum er að þreyja þorrann. „Ég myndi ráðleggja fólki að halda áfram. Það eru rosalega margir sem byrja og eru að gera ótrúlega flotta hluti – en þau hætta þegar það gengur ekki nógu vel. Þau í raun hafna sjálfum sér. Ég held að það sé stærsta hindrunin. Fólk ákveður að aðrir séu að gera þetta betur og að „meika það“ og gefst þess vegna bara upp. En hefðu þau harkað þetta af sér aðeins lengur, eða feng- ið aðeins fleiri nei, sent aðeins fleiri pósta – þá hefði þetta kannski gengið upp. Ef maður elskar þetta þá er það alltaf þess virði að halda áfram, þó að maður fái fullt af nei-um og ekkert virðist ganga. Á end- anum gerist eitthvað. Í stuttu máli: Gefast ekki upp þó á móti blási.“ Allir hafa eitthvað „Það hafa allir eitthvað fram að færa. Þú þarft ekki að vera besti ljósmyndari í heimi ef þú getur gert góðan mat, eða einfaldan mat. Þú finnur bara þína sérhæfingu. Þú þarft ekki að vera með þetta allt. Sumir eru með frábæran per- sónuleika, sumir eru bestir í kökum, sumir eru með frábær sparnaðarráð. Maður finnur það sem maður er góður í og tekur með sér í þessa vegferð. Við fáum sjaldnast tækifær- in upp í hendurnar á silfurfati. Við þurfum að hafa fyrir því að láta drauma okkar rætast. Ekki sitja heima og bíða eftir því að einhver hafi samband við þig, því líklega mun eng- inn hafa samband. Komdu hreyfingu á hlutina, láttu aðra vita hvað þú vilt og gerðu það sem þú getur til að láta það verða að veruleika.“ Matur fyrir sálina Það eru spennandi nýjungar sem Berglind tekst á við í starfi um þessar mundir en hún byrjaði nýlega með hlað- varpið Matur fyrir sálina. „Ég er búin að ganga með þessa hugmynd í tvö ár en gerði samt ekkert með hana fyrr en í byrjun árs en þá fann ég að rétti tíminn væri kominn svo ég kýldi á það. Síðasta árið hefur verið svo rosalega ró- legt. Maður bara vann, kom svo heim og kláraði Netflix. Síðan aftur næsta dag. Það var mikið um hvíld en með nýju ári fékk ég aukinn kraft og ákvað að halda áfram að byggja mig upp og láta gott af mér leiða. Þarna fann ég líka útrás fyrir hjúkkuna í mér.“ Matur fyrir sálina byrjaði sem reglulegur liður á Insta- gram-síðu Berglindar þar sem hún fjallaði um andleg málefni. Nafnið þótti henni viðeigandi þar sem þetta var liður á síðu þar sem vanalega var fjallað um mat. „Ég elska að spá í því hvað gerir okkur að betri mann- eskjum, hvað hamlar okkur og hvað hjálpar okkur. Þetta byrjaði ég svo að tala um á Instagram og kallaði það Mat fyrir sálina til að tengja við matarumfjöllunina á síðunni – eitthvað sem nærir okkur.“ Hlaðvarpið á að vera hvetj- andi og einkum vonast Berg- lind til að ná eyrum kvenna sem hafa hikað við að láta ljós sitt skína. „Ég hef tekið eftir því að kon- ur eru stundum hræddar við að láta í sér heyra og mér finnst það ótrúlega mikil synd. Ótrú- lega hæfileikaríkar konur hika við að láta ljós sitt skína vegna þess að þeim finnst þær aldr- ei tilbúnar. Þær þurfa alltaf að mennta sig meira, grenna sig, finna betri tíma, og svo fram- vegis. Það er alltaf einhver afsökun, og þær ætla alltaf að gera þetta seinna. En seinna kemur hins vegar aldrei.“ Berglind vildi því miðla þekkingu sinni á andlegum málefnum og reynslunni frá sinni vegferð til að hvetja kyn- systur sínar til dáða. Giftist sjálfri sér Árið 2019 skellti Berglind sér ein í ferðalag til Sikileyjar á Ítalíu. Þar keypti hún sér brúðarkjól og hring og giftist sjálfri sér. En hvernig ætli hjónabandið gangi í dag? „Þetta er bara svona blúss- andi lukka,“ segir Berglind kát. Ferðalagið skilaði þó meiru heldur en einkvænis hjónabandi því um páskana verða sýndir þættirnir Aldrei ein á Sikiley á Sjónvarpi Sím- ans sem er frumraun Berg- lindar í sjónvarpi sem ekki er matartengd. „Þetta eru ferða- og lífsstíls- þættir þar sem ég flakka um eyjuna, hitti fólkið, fer á vín- ekrur, kíki á næturlífið, fer á matreiðslunámskeið og fleira. Ég býð fólki með mér í ferð til að sýna því hvað Sikiley er einstök.“ Hugmyndin að þáttunum vaknaði eftir brúðkaupsferð- ina, en Berglind vildi fá að sýna öðrum þá töfra sem hún upplifði á eyjunni. „Það gerist eitthvað innra með manni, að minnsta kosti innra með mér, á Sikiley. Maður verður svo sáttur. Og þegar maður er sáttur. þá þarf maður reyndar ekki að giftast sjálfum sér, en þá finnst manni maður vera sjálfum sér nægur sem er frábær tilfinning. Ég upplifði þessa tilfinningu svo sterkt á Sikiley.“ Ekki sama manneskjan Blaðamaður kemst þó ekki hjá því að spyrja hvað gerist ef Berglind finnur sér álitlegan maka. Þarf hún þá að skilja við sjálfa sig? „Nei, eru ekki allir í opnu sambandi núna?“ segir Berg- lind hlæjandi. „Ég held svona án gríns að þegar maður elskar sjálfan sig þá fyrst sé maður tilbúinn að fara í sam- band.“ Berglind er þó sátt í bili. Hún skellir sér við og við á Tinder, en er ekki búin að finna draumaprinsinn ennþá. Á næsta ári verður blogg Berglindar tíu ára gamalt. Berglind segist ekki hafa get- að ímyndað sér fyrir tíu árum hvar hún yrði í dag. „Ekki hvað varðar öll þessi verkefni og öll þessi tækifæri sem ég hef fengið og búið mér til. Ég er svolítið ánægð með mig að hafa þorað að prófa þetta margt. Ég hef eflst við það. Ég er ekki sama mann- eskjan í dag heldur er ég er sterkari einstaklingur. Maður hefur lært svo mikið af „mis- tökunum“ á því að prufa sig áfram og þora að taka áhættu. Svo heldur maður áfram og reynir eitthvað annað næst. Þetta er besti skólinn – að taka bara stökkið.“ n Berglind ætlar að kynna Íslendinga fyrir töfrum Sikileyjar. MYND/AÐSEND Berglind er í hamingjusömu hjónabandi með sjálfri sér. MYND/AÐSEND DV 5. MARS 2021

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.