Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2021, Blaðsíða 23
FÓKUS 23
á óvart í þessu ferli var vel-
vilji þeirra sem hún leitaði til.
„Fólk reyndar alveg elskar
mat svo það hefur líklega
hjálpað. Svo náttúrulega kom
mér á óvart hvað ég hef enst í
þessu, orðin svona háöldruð,“
segir Berglind og aftur hlær
hún við. „En líka þessi tæki-
færi sem koma sem ég gerði
ekkert ráð fyrir í upphafi.“
Lenti á vegg
Þar sem Gulur, rauður, grænn
og salt er uppskriftasíða þá
var þægilegt að samræma það
og heimilislífið.
„Við þurfum öll að elda. Það
er bara svoleiðis. Ég bara elda
og svo bið ég börnin um að
bíða á meðan ég tek mynd, þau
fá ekki að snerta matinn fyrr,“
segir Berglind og bætir við að
börnin hafi reyndar haft litla
þolinmæði fyrir matarmynda-
tökunum. Þó má gera ráð fyrir
að þau séu orðin þaulvön í dag.
„Maður keyrði sig samt
stundum gjörsamlega út og ég
hef alveg lent á vegg og þurft
að stoppa mig af. En í dag vil
ég hafa jafnvægi á hlutunum.
Þegar fólk spyr hvort það sé
brjálað að gera svar ég: „Nei,
því ég vil ekki hafa brjálað að
gera.
Það geta komið stutt álags-
tímabil en það skiptir svo
miklu máli að halda í gleðina
og það getur maður ekki ef
maður er þreyttur og út-
keyrður,“ segir Berglind og
bendir á að erfitt sé að sinna
verkefnum nægilega vel í slíku
ástandi. „Nú reyni ég að hafa
jafnvægi í lífinu, enda er þá
allt skemmtilegra.“
Þó á móti blási
Bestu ráð sem Berglind hefur
fyrir þá sem hafa áhuga á að
reyna fyrir sér í bloggheim-
inum er að þreyja þorrann.
„Ég myndi ráðleggja fólki að
halda áfram. Það eru rosalega
margir sem byrja og eru að
gera ótrúlega flotta hluti – en
þau hætta þegar það gengur
ekki nógu vel. Þau í raun
hafna sjálfum sér.
Ég held að það sé stærsta
hindrunin. Fólk ákveður að
aðrir séu að gera þetta betur
og að „meika það“ og gefst
þess vegna bara upp.
En hefðu þau harkað þetta
af sér aðeins lengur, eða feng-
ið aðeins fleiri nei, sent aðeins
fleiri pósta – þá hefði þetta
kannski gengið upp. Ef maður
elskar þetta þá er það alltaf
þess virði að halda áfram, þó
að maður fái fullt af nei-um og
ekkert virðist ganga. Á end-
anum gerist eitthvað.
Í stuttu máli: Gefast ekki
upp þó á móti blási.“
Allir hafa eitthvað
„Það hafa allir eitthvað fram
að færa. Þú þarft ekki að vera
besti ljósmyndari í heimi ef
þú getur gert góðan mat, eða
einfaldan mat. Þú finnur bara
þína sérhæfingu. Þú þarft
ekki að vera með þetta allt.
Sumir eru með frábæran per-
sónuleika, sumir eru bestir í
kökum, sumir eru með frábær
sparnaðarráð. Maður finnur
það sem maður er góður í og
tekur með sér í þessa vegferð.
Við fáum sjaldnast tækifær-
in upp í hendurnar á silfurfati.
Við þurfum að hafa fyrir því
að láta drauma okkar rætast.
Ekki sitja heima og bíða eftir
því að einhver hafi samband
við þig, því líklega mun eng-
inn hafa samband. Komdu
hreyfingu á hlutina, láttu aðra
vita hvað þú vilt og gerðu það
sem þú getur til að láta það
verða að veruleika.“
Matur fyrir sálina
Það eru spennandi nýjungar
sem Berglind tekst á við í
starfi um þessar mundir en
hún byrjaði nýlega með hlað-
varpið Matur fyrir sálina.
„Ég er búin að ganga með
þessa hugmynd í tvö ár en
gerði samt ekkert með hana
fyrr en í byrjun árs en þá fann
ég að rétti tíminn væri kominn
svo ég kýldi á það. Síðasta árið
hefur verið svo rosalega ró-
legt. Maður bara vann, kom
svo heim og kláraði Netflix.
Síðan aftur næsta dag. Það var
mikið um hvíld en með nýju ári
fékk ég aukinn kraft og ákvað
að halda áfram að byggja mig
upp og láta gott af mér leiða.
Þarna fann ég líka útrás fyrir
hjúkkuna í mér.“
Matur fyrir sálina byrjaði
sem reglulegur liður á Insta-
gram-síðu Berglindar þar
sem hún fjallaði um andleg
málefni. Nafnið þótti henni
viðeigandi þar sem þetta var
liður á síðu þar sem vanalega
var fjallað um mat.
„Ég elska að spá í því hvað
gerir okkur að betri mann-
eskjum, hvað hamlar okkur
og hvað hjálpar okkur. Þetta
byrjaði ég svo að tala um á
Instagram og kallaði það Mat
fyrir sálina til að tengja við
matarumfjöllunina á síðunni –
eitthvað sem nærir okkur.“
Hlaðvarpið á að vera hvetj-
andi og einkum vonast Berg-
lind til að ná eyrum kvenna
sem hafa hikað við að láta ljós
sitt skína.
„Ég hef tekið eftir því að kon-
ur eru stundum hræddar við að
láta í sér heyra og mér finnst
það ótrúlega mikil synd. Ótrú-
lega hæfileikaríkar konur hika
við að láta ljós sitt skína vegna
þess að þeim finnst þær aldr-
ei tilbúnar. Þær þurfa alltaf að
mennta sig meira, grenna sig,
finna betri tíma, og svo fram-
vegis. Það er alltaf einhver
afsökun, og þær ætla alltaf að
gera þetta seinna. En seinna
kemur hins vegar aldrei.“
Berglind vildi því miðla
þekkingu sinni á andlegum
málefnum og reynslunni frá
sinni vegferð til að hvetja kyn-
systur sínar til dáða.
Giftist sjálfri sér
Árið 2019 skellti Berglind sér
ein í ferðalag til Sikileyjar
á Ítalíu. Þar keypti hún sér
brúðarkjól og hring og giftist
sjálfri sér. En hvernig ætli
hjónabandið gangi í dag?
„Þetta er bara svona blúss-
andi lukka,“ segir Berglind
kát. Ferðalagið skilaði þó
meiru heldur en einkvænis
hjónabandi því um páskana
verða sýndir þættirnir Aldrei
ein á Sikiley á Sjónvarpi Sím-
ans sem er frumraun Berg-
lindar í sjónvarpi sem ekki er
matartengd.
„Þetta eru ferða- og lífsstíls-
þættir þar sem ég flakka um
eyjuna, hitti fólkið, fer á vín-
ekrur, kíki á næturlífið, fer á
matreiðslunámskeið og fleira.
Ég býð fólki með mér í ferð til
að sýna því hvað Sikiley er
einstök.“
Hugmyndin að þáttunum
vaknaði eftir brúðkaupsferð-
ina, en Berglind vildi fá að
sýna öðrum þá töfra sem hún
upplifði á eyjunni.
„Það gerist eitthvað innra
með manni, að minnsta kosti
innra með mér, á Sikiley.
Maður verður svo sáttur.
Og þegar maður er sáttur.
þá þarf maður reyndar ekki
að giftast sjálfum sér, en þá
finnst manni maður vera
sjálfum sér nægur sem er
frábær tilfinning. Ég upplifði
þessa tilfinningu svo sterkt á
Sikiley.“
Ekki sama manneskjan
Blaðamaður kemst þó ekki hjá
því að spyrja hvað gerist ef
Berglind finnur sér álitlegan
maka. Þarf hún þá að skilja
við sjálfa sig?
„Nei, eru ekki allir í opnu
sambandi núna?“ segir Berg-
lind hlæjandi. „Ég held svona
án gríns að þegar maður
elskar sjálfan sig þá fyrst sé
maður tilbúinn að fara í sam-
band.“
Berglind er þó sátt í bili.
Hún skellir sér við og við á
Tinder, en er ekki búin að
finna draumaprinsinn ennþá.
Á næsta ári verður blogg
Berglindar tíu ára gamalt.
Berglind segist ekki hafa get-
að ímyndað sér fyrir tíu árum
hvar hún yrði í dag.
„Ekki hvað varðar öll þessi
verkefni og öll þessi tækifæri
sem ég hef fengið og búið mér
til. Ég er svolítið ánægð með
mig að hafa þorað að prófa
þetta margt. Ég hef eflst við
það. Ég er ekki sama mann-
eskjan í dag heldur er ég er
sterkari einstaklingur. Maður
hefur lært svo mikið af „mis-
tökunum“ á því að prufa sig
áfram og þora að taka áhættu.
Svo heldur maður áfram og
reynir eitthvað annað næst.
Þetta er besti skólinn – að taka
bara stökkið.“ n
Berglind ætlar að kynna Íslendinga fyrir töfrum Sikileyjar. MYND/AÐSEND Berglind er í hamingjusömu hjónabandi með sjálfri sér. MYND/AÐSEND
DV 5. MARS 2021