Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2021, Side 20
20 EYJAN
H ann hallaði sér virðu-legur fram á borðið, vel greiddur og ný-
rakaður, mættur í dökkbláum
klæðskerasniðnum jakka-
fötum og meira að segja hvíta
skyrtan virtist passa full-
komlega aldrei þessu vant.
Bláa bindið með látlausa en
um leið virðulega mynstrinu
hafði auðsjáanlega verið valið
af kostgæfni. Hann var vel
búinn undir spurningar þátta-
stjórnandans og talaði kjark í
þjóðina á tímum heimsfarald-
urs og náttúruhamfara.
Einhvern veginn svona
blasti Sigurður Ingi Jóhanns-
son, formaður Framsóknar-
flokks, við áhorfendum Silf-
ursins í Ríkissjónvarpinu á
sunnudaginn var. Ekki einasta
kominn í kosningastellingar
heldur var engu líkara en
hann væri farinn að æfa rull-
una fyrir forsætisráðherra-
embættið – enda ekki ósenni-
legt að Framsóknarflokkur
verði enn á ný í oddaaðstöðu
eftir næstu kosningar og geti
samið til vinstri og hægri –
og gert kröfu um valdamesta
embætti landsins.
Allir vilja vinna
með Framsókn
Vitaskuld er of snemmt að spá
í niðurstöður alþingiskosninga
sem haldnar verða í septem-
ber en með þeim mælingum
sem birtar hafa verið nýverið
er allnokkur samhljómur. Út
frá þeim er gaman að velta
fyrir sér mögulegu stjórnar-
samstarfi en vitaskuld er
þetta samkvæmisleikur, engin
nákvæmnisvísindi. Sá sem
hér heldur á penna ræddi við
fjölmarga sem til þekkja og
hugmyndir þeirra að stjórnar-
myndun eiga næstum allar
sammerkt að Framsóknar-
flokkur er innanborðs.
Athugum líka að hér er að
verða til vísir að blokkamynd-
un í stjórnmálum. Samfylking
og Píratar hafna hvort tveggja
samstarfi við Sjálfstæðisflokk
og Miðflokk en þetta þrengir
að vonum kosti til stjórnar-
myndunar verulega.
Framhaldslíf
ríkisstjórnarinnar
Ef við veljum eina mælingu
sem leggja mætti til grund-
vallar þá er ekki úr vegi að
líta á könnun Maskínu á fylgi
flokkanna sem framkvæmd
var í fyrri hluta febrúarmán-
aðar en svarendur voru alls
2.198. Samkvæmt henni hlyti
Sjálfstæðisflokkur 22,5% og
15 þingmenn, Samfylking
14,3% og níu menn kjörna,
jafnmarga og Vinstri græn
sem mælast með 13,5% fylgi.
Þar á eftir kemur Viðreisn
með átta menn, Píratar og
Framsóknarflokkur hvor um
sig með sjö þingmenn og Mið-
flokkur fimm. Flokkur Ingu
Sæland hyrfi af þingi yrðu
þetta niðurstöður kosninga,
en Sósíalistaflokkur Gunn-
ars Smára næði naumlega inn
þremur mönnum.
Ríkisstjórnin væri þar með
naumlega fallin með 31 mann
en gæti til að mynda kippt
Miðflokki um borð og hefði
þá býsna öruggan meirihluta,
36 þingmenn. Forsenda þessa
væri auðvitað sættir milli
forystumanna Framsóknar-
flokks og Miðflokks, en lík-
lega gæti ríkisstjórnin haldið
áfram sömu siglingu yrði bætt
við skipsrúmum fyrir Mið-
flokksmenn. Ekki er að sjá að
málefnaágreiningur yrði til
trafala.
Hér yrði uppi sú skemmti-
lega staða að allir formenn
samstarfsflokkanna, Katrín,
Bjarni, Sigurður Ingi og Sig-
mundur Davíð, hefðu gegnt
embætti forsætisráðherra.
Og þar sem flestir telja sig
geta unnið með Framsóknar-
flokki er ekki ólíklegt að helst
næðist samstaða um Sigurð
Inga í embætti forsætisráð-
herra sem þegar er farinn að
máta sig við stólinn samanber
framgönguna í Silfrinu sem
áður var nefnd. Honum munu
alltént bjóðast fleiri kostir ef
að líkum lætur.
Fleiri kostir
Margir Sjálfstæðismenn hafa
fengið sig fullsadda af sam-
Forsætisráð-
herrahjónin,
Sigurður Ingi
Jóhannsson
og Ingibjörg
Elsa Ingjalds-
dóttir, með
Michelle
og Barack
Obama.
MYND/EPA
Á ÞINGPÖLLUM
Björn Jón
Bragason
eyjan@eyjan.is
SKOÐANAPISTILL
LÍKLEGT AÐ FRAMSÓKN
VERÐI Í ODDAAÐSTÖÐU
Miklar líkur má telja á að Sigurður Ingi verði aftur forsætisráðherra, en
flestallar hugmyndir um stjórnarmyndun gera ráð fyrir þátttöku Fram-
sóknarflokks. Þrír fyrrverandi forsætisráðherrar sitja nú á Alþingi.
5. MARS 2021 DV
Þingstyrkur flokka, sé tekið mið af nýjustu könnun Maskínu.
n Sjálfstæðisflokkur
n Samfylking
n Vinstri græn
n Viðreisn
n Píratar
n Framsóknarflokkur
n Miðflokkur
n Sósíalistaflokkur
ÞINGSTYRKUR FLOKKA starfi við VG og kysu helst
stjórn sem væri hægra megin
við miðju. Það er varla gerlegt
nema þá með Framsóknar-
flokki, Miðflokki og Viðreisn,
samtals 35 þingmanna meiri-
hluta miðað við Maskínukönn-
unina. Þar er heldur ekki svo
fjarri lagi að sjá Sigurð Inga
fyrir sér sem forsætisráð-
herra.
Sigurður Ingi gæti líka allt
eins hugsað sér að horfa til
vinstri þar sem hann gæti
með réttu gert kröfu um for-
sætisráðherrastólinn. Vinstri-
stjórn Framsóknarflokks,
Vinstri grænna, Samfylkingar
og Pírata hefði nauman meiri-
hluta sé tekið mið af áður-
nefndri könnun eða 32 menn.
Gleymum ekki að Sigurður
Ingi er fyrrverandi forsætis-
ráðherra, hefur þegið stór-
kross fálkaorðunnar og hitt
Obama í Hvíta húsinu. Þess
eru líka nokkur dæmi að for-
sætisráðherrastóllinn hafi
hlotnast Framsóknarflokkn-
um þrátt fyrir lítið fylgi.
Flokkurinn galt afhroð í al-
þingiskosningunum 1978 sem
dæmi – varð minnstur þing-
flokka en Ólafur Jóhannes-
son, formaður flokksins, engu
að síður forsætisráðherra í
skammlífri vinstristjórn sem
mynduð var í kjölfarið. Fram-
sóknarflokkur hafði líka mun
minni þingstyrk en sam-
starfsflokkurinn, Sjálfstæðis-
flokkur, í forsætisráðherratíð
Steingríms Hermannssonar
1983–1987 og Halldórs Ás-
grímssonar 2004–2006.
Hið ótrúlega getur gerst
Nú er farið að skýrast hverjir
skipa lista flokkanna fyrir
næstu kosningar og lengi
mætti velta því fyrir sér
hverjir kunna að verma ráð-
herrasætin. En ef við gefum
okkur tvennt, annars vegar að
það takist að koma Miðflokki
og Framsóknarflokki saman
í stjórn og hins vegar að ein-
hvern tímann verði hægt að
aflétta ferðahöftum, þá kynni
Sigurður Ingi því líklega best
að hafa Sigmund Davíð Gunn-
laugsson sem mest í burtu og
hann fengi því utanríkisráðu-
neytið sem hann myndi án efa
taka fegins hendi. – Það skyldi
þó aldrei fara að svo að þeir
erkifjendur, Sigurður Ingi
og Sigmundur Davíð settust
aftur við sama ríkisstjórnar-
borðið eftir fimm ára að-
skilnað? Ólafur Thors og Her-
mann Jónasson töluðust ekki
við eftir „eiðrofið“ 1942. Þeir
áttu þó eftir að setjast saman
í ríkisstjórn átta árum síðar,
í stjórn undir forystu fram-
sóknarmannsins Steingríms
Steinþórssonar. Framsóknar-
maddömuna skorti ekki aðdá-
endur þá frekar en nú. n
15
9 9
8
7 7
5
3