Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2021, Page 4
MEST LESIÐ
Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST...
Jarðskjálftar og órói
Reykjanesið hefur heldur betur minnt á sig í vikunni með líf-
legri jarðskjálftahrinu og vísbendingum um að eldgos sé að
hefjast. Rúmlega 11 þúsund jarðskjálftar hafa mælst í liðinni
viku og sérfræðingarnir á Veðurstofu Íslands eiga fullt í fangi
með að staðfesta skjálftana. Vel hefur fundist fyrir stærri
skjálftunum á höfuðborgarsvæðinu, svo mikið að fólk er farið
að kvarta undan jarðskjálftaþreytu. Veðurstofan sagði á mið-
vikudag að óróapúls hefði mælst, en slíkt sé gjarnan undan-
fari eldgoss. Ekki er talið að eldgos á þessu svæði verði lang-
varandi, líklega um vika, en þetta gæti markað upphafið að
keðjuverkandi gosum á landinu.
Farbann vegna Rauðgerðismáls
Anton Kristinn Þórarinsson athafnamaður hefur verið leystur
úr haldi vegna rannsóknar á manndrápinu í Rauðagerði. Hon-
um hefur hins vegar verið gert að sæta farbanni til 30. mars.
Fimm karlmenn eru enn í gæsluvarðhaldi vegna málsins og
hefur fjórum verið gert að sæta farbanni.
Konur áhyggjufullar
Eftir að skimun eftir leghálskrabbameini fluttist til heilsu-
gæslunnar geta konur ekki óskað eftir frumurannsókn. HPV-
neikvæð krabbamein munu því ekki finnast við skimum 30 ára
og eldri. Hjá Krabbameinsleitarstöðinni var HPV-veirumæl-
ing gerð í kjölfar frumurannsóknar en nú hefur þessu verið
snúið við. Konur eru mældar fyrir HPV og aðeins er farið í
frumuskoðun ef sýni er HPV-jákvætt. Tíðni HPV-neikvæðra
krabbameina er talin vera um fimm prósent. Einnig hefur
komið fram að meinafræðideild Landspítalans geti rannsakað
leghálssýni, en ekki hafi verið óskað eftir því. Sýnin eru sem
stendur send úr landi til greiningar.
Jólasímtal Áslaugar áfram í kastljósi
Símtal Áslaugar Örnu Sigur-
björnsdóttur dómsmálaráð-
herra til lögreglustjórans á
höfuðborgarsvæðinu er áfram
til umræðu. Áslaug segist ekki
hafa brotið neinar verklags-
reglur með símtalinu, sem
raunar voru tvö og áttu sér
stað í kjölfar dagbókarfærslu
lögreglu um að Bjarni Bene-
diktsson fjármálaráðherra,
hefði verið viðstaddur meint
sóttvarnabrot í Ásmundarsal á Þorláksmessu. Kveðst hún hafa
hringt vegna ítrekaðra fyrirspurna fjölmiðla til hennar sem
hún hafi þurft að svara. Hún bætti þó við að í kjölfarið hafi
hún ákveðið að svara fjölmiðlum ekki.
Mygla í Fossvogi
Foreldrar barna í Fossvogsskóla gagnrýna Reykjavíkurborg
fyrir upplýsinga- og aðgerðaleysi vegna myglu sem fannst
í skólanum. Sumir foreldrar eru hættir að senda börn sín í
skólann. Samkvæmt skýrslu sem birtist í síðustu viku fundust
vafasamar sveppategundir í húsnæðinu jafnvel þó að á fimmta
hundrað milljónum hafi verið varið til úrbóta á húsnæðinu frá
því að mygla kom fyrst upp árið 2019. Skólinn er enn opinn og
hefur það verið gagnrýnt harðlega.
Óánægja með rafíþróttamót
Frjálsíþróttafólk í Reykjavík sem stefnir á Ólympíuleikana í
Tókýó er óánægt með að stærsta rafíþróttamót heims, League
of Legends Mid-Season Invitational, verði haldið í Laugardals-
höll í maí. Mótið mun taka sex vikur og missir frjálsíþróttafólk
æfingaaðstöðu sína yfir þann tíma. Mótið var skipulagt með
milligöngu Íslandsstofu sem kom leikjaframleiðandanum Riot
Games í samband við Reykjavíkurborg og aðra þjónustuaðila
sem koma að undirbúningi mótsins, en Rafíþróttasamband
Íslands segir það gífurlega viðurkenningu að svona stór við-
burður fari fram hér á landi.
1 Ungt par var með réttu tölurnar í lottóinu – Þetta er
ástæðan fyrir því að þau fá ekki
32 milljarða Par á Englandi missti
af stóra vinningnum því ekki hafði
verið innistæða á reikningi þeirra
fyrir áskriftinni.
2 Anton Kristinn laus úr gæsluvarðhaldi – Lögmaður
blæs á kjaftasögurnar Anton
Kristinn Þórarinsson er með stöðu
sakbornings í Rauðagerðismálinu.
3 Nýja kynlífstískan sem ætti að vera ólögleg – „Ljósin
voru slökkt, en ég vissi strax að
það var enginn smokkur“ Karlmenn
eru farnir að stunda það að fjarlægja
smokk í samförum án samþykkis.
4 Bríet ætlaði að fá Bubba til að syngja með sér „Esjan“
en hætti við – Þetta er ástæðan
Bríet var hrædd um að fólk myndi
halda að Bubbi hefði samið lagið.
5 Útvarpsstjóri segir klám-fengið tíst tilefni 30 sek-
úndna tafa á beinum útsendingum
– Enn ekkert tjáð sig um Gettu
betur atvikið Klámfengið tíst birtist
í beinni útsendingu á Vikunni með
Gísla Marteini.
6 Guðrún eyddi Tinder eftir hræðilegt stefnumót með
forstjóranum – „Þá skildi ég af
hverju hann var alltaf með lokaðan
munn á myndum“ Guðrún Gyða
Eyþórs Árnadóttir, blaðamaður
Mannlífs, sagði frá slæmum stefnu-
mótum í pistli.
7 Alræmdur alkóhólisti dott-inn í það á nýjan leik – „Ég
ræð mjög vel við drykkjuna núna
og nýt lífsins“ Paul Gascoigne,
einn besti knattspyrnumaður sem
England hefur alið af sér, er dottinn
aftur í það eftir langa baráttu við
Bakkus.
8 Hélt að hún væri að góma eiginmanninn með annarri
konu – Raunveruleikinn átti eftir
að koma henni rækilega á óvart
Kona í Bandaríkjunum kom að manni
sínum dansandi með hárkollu.
BÍLASMIÐJURINN HF.
Þú hitar bílinn með
fjarstýringu og nýtur
þannig þæginda og
öryggis
ALDREI AÐ SKAFA!
MEÐ WEBASTO BÍLAHITARA
4 FRÉTTIR 5. MARS 2021 DV