Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2021, Side 6
6 FRÉTTIR
FALDIR VALKOSTIR Í BÓLU-
SETNINGUM VIÐ HPV-VEIRU
Foreldrar eru undrandi yfir skorti á upplýsingagjöf vegna HPV-bólusetn-
ingar barna. Tvö bóluefni eru á markaði en það sem ríkið notar veitir vernd
gegn færri stofnum en hitt. Foreldrar geta borgað 90 þúsund á milli.
T vö bóluefni við HPV-veirunni eru nú með markaðsleyfi á Íslandi,
Cervarix og uppfærð út-
gáfa af Gardasil, Gardasil-9.
Veiran er talin bera ábyrgð á
99% tilfella af leghálskrabba-
meini og smitast með kynlífi.
Bólusetningar virka ekki við
smiti sem þegar hefur orðið
og kappkosta því stjórnvöld
að bólusetja stúlkubörn áður
en þær byrja að stunda kynlíf.
Skipulögð leit var hafin
að leghálskrabbameini árið
1968 og hefur tekist að fækka
tilfellum gríðarlega síðan.
Mikið framfaraskref var svo
tekið árið 2011 þegar yfirvöld
hófu skipulagða bólusetningu
sem er nú hluti af almennum
bólusetningum barna. Þó eru
áfram aðeins stúlkur bólu-
settar og aðeins Cervarix-bólu-
efnið er notað við almennar
bólusetningar sem fram fara
í grunnskólunum. Þær stelpur
sem voru fyrst bólusettar fyrir
veirunni nálgast nú áhættu-
aldur og má því vænta þess að
sjá afrakstur bólusetningará-
taksins á næstu árum.
Foreldrum stendur þó til
boða að afþakka bólusetning-
una innan skólans með Cerv-
arix og kaupa sjálf Gardasil-
efnið fyrir börnin sín.
Skipulögð þöggun
eða klaufaskapur?
Miklar umræður hafa síðan
skapast á meðal foreldra
stúlkubarna sem og drengja,
um þennan „falda valkost“.
Hafa sumir foreldrar gengið
svo langt að tala um að þögn
heilbrigðisyfirvalda sé að
yfirlögðu ráði þar sem yfir-
völdum þætti umræðan um
kaup á betra bóluefni fyrir
tugi þúsunda vafalaust óþægi-
leg. „Ekki beint partur af
skandinavíska módelinu,“
sagði ein áhyggjufull móðir
sem látið hafði skoðun sína í
ljós í foreldrahópi á Facebook.
DV ræddi við móðurina sem
segist sannfærð um að hún
hefði valið Gardasil hefði hún
vitað af valkostinum. Dóttir
hennar var bólusett með Cerv-
arix seint á síðasta ári. Lyfja-
fræðingar sem DV ræddi við
sögðust ekki treysta sér til
þess að staðhæfa hvort hægt
væri að framkvæma aðra bólu-
setningu á sama barni með
öðru bóluefni og vísuðu þess
í stað á framleiðanda. Engar
upplýsingar er að sjá um slíkt
á fylgigögnum með skráningu
lyfjanna og því nokkuð víst að
slíkt yrði útilokað af læknum.
Samkvæmt upplýsingum
frá framleiðendum lyfjanna,
GlaxoSmithKlein og Merck
& Co. er talsverður munur á
virkni bóluefnanna. Ljóst er
að Gardasil-efnið veitir vernd
gegn fleiri stofnum af veirunni
en Cervarix sem hið opin-
bera kaupir fyrir íslenskar
stúlkur. Cervarix veitir vernd
gegn tveimur stofnum HPV
en Gardasil níu og munar
þar mestu um verndina gegn
kynfæravörtum sem Garda-
sil hefur fram yfir keppinaut
sinn. Tekið skal fram að þessir
tveir stofnar sem Cervarix
veitir vernd við bera ábyrgð
á yfirgnæfandi meirihluta
tilfella leghálskrabbameins.
Þá eru líka rannsóknir sem
benda til þess að meira mótefni
gegn HPV-veiru mælist í þeim
sem bólusettir hafa verið með
Cervarix-efninu.
Á heimasíðu Embættis land-
læknis má sjá frétt frá árinu
2011 um að samið hafi verið
við GlaxoSmithKlein um að
kaupa bóluefnið Cervarix
vegna almennrar bólusetn-
ingar sem ráðist var í þá um
haustið. Þremur árum síðar
var Gardasil-bóluefnið upp-
fært og heitir nú Gardasil-9
þar sem það veitir, sem fyrr
sagði, vörn við níu stofnum
veirunnar.
Nágrannaríkin
farið aðrar leiðir
Í Danmörku hafa yfirvöld nú
afráðið að styðjast eingöngu
við Gardasil-9 og jafnframt
hafið bólusetningu á strákum
jafnt sem stelpum. Bólusetning
drengja með HPV-bóluefni
hefur tvíþætt áhrif. Í fyrsta
lagi veitir það báðum kynjum
vernd gegn HPV-veiru sem
veldur kynfæravörtum. Í öðru
lagi dregur það úr hættu á
að strákar dreifi veirunni til
óbólusettra kvenkyns rekkju-
nauta sinna sem síðar gætu
þróað með sér leghálskrabba-
mein.
Annar hjúkrunarfræðingur
sem DV ræddi við sem meðal
annars hefur komið að bólu-
setningu barna í grunnskólum
benti þó á að Danir hefðu
verið í miklum vandræðum
með þátttöku í bólusetningu,
sem væri að öllum líkindum
ástæða þess að drengir væru
nú teknir inn í almenna bólu-
setningu. Sú yfirlýsing á sér
sterka stoð, en Danir hafa á
undanförnum árum horft upp
á þátttöku í HPV-bólusetningu
nánast helmingast. Hefur nú
verið ráðist í mikið fræðslu-
átak þar í landi til að ná þessu
hlutfalli upp aftur.
Vegna samdráttar í sölu var
Cervarix jafnframt tekið úr
dreifingu í Bandaríkjunum
árið 2016 og er því ekki lengur
fáanlegt þar.
Gríðarlegur kostnaður
Til þess að fá barn sitt bólu-
sett með Gardasil hér á landi
þurfa foreldrar fyrir það
fyrsta að vita af möguleik-
anum á að afþakka Cervarix
í grunnskóla barnsins. Það
eitt og sér getur reynst snúið
í ljósi þess að engin skipulögð
upplýsingagjöf fer nú fram,
hvorki af hálfu grunnskólanna,
heilsugæslunnar né sóttvarna-
læknis. Sé foreldri meðvitað
um valkostinn og velji að nýta
sér hann þarf foreldrið að fara
með barnið til læknis, fá þar
lyfseðil fyrir efninu og kaupa
það svo sjálft í apóteki.
Skammturinn af Gardasil
bóluefni kostaði þegar DV at-
hugaði í Lyfju 28.857 krónur.
Börn á aldrinum 9-14 ára þurfa
tvo skammta. 15 ára og eldri
þurfa þrjá. Kostnaðurinn við
val foreldris á breiðvirkara
bóluefni er því á milli 60 og
90 þúsund krónur, eftir aldri
barns.
DV hafði samband við nokk-
ur apótek í landinu og spurði
lyfjafræðinga þar út í ráð-
leggingar um HPV-bóluefni
til áhyggjufulls föður ungrar
stúlku. Ekki stóð á svörum hjá
lyfjafræðingunum fjórum. Að-
spurðir hvað þeir myndu gera
í sporum áhyggjufulla föður-
ins sögðust þau öll sem eitt
myndu velja Gardasil-efnið.
„Hiklaust,“ sagði einn lyfja-
fræðingurinn. „Þó það kosti
helling.“
Sömu svörin fengust þegar
blaðamaður hringdi í hjúkrun-
arfræðinga á tveimur heilsu-
gæslustöðvum í borginni undir
sama yfirskini.
Aukið upplýsingaflæði
ekki á borðinu
Aðspurður hvort komið hefði
til tals að auka upplýsinga-
flæði um þennan valkost sagði
Óskar Sesar Reykdalsson,
forstjóri Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins, í samtali
við blaðamann DV það ekki á
borði heilsugæslunnar. Óskar
sagði að ákvörðun um val á
bóluefni og upplýsingagjöf
um almennar bólusetningar
á Íslandi væru á borði sótt-
varnalæknis. Eðlilegast væri
því að frumkvæði að upplýs-
ingagjöf til foreldra í þessum
málaflokki kæmi þaðan, enda
sinnir hver heilsugæsla aðeins
sínu nærumhverfi.
DV spurði Embætti land-
læknis og sóttvarnalækni um
aðdraganda þess að samið var
við framleiðanda Cervarix,
hvernig uppsagnarákvæði
samningsins líta út og hvort
til skoðunar hefði komið að
endurtaka valferlið í ljósi þess
að keppinautur bóluefnafram-
leiðandans sem samið var við
árið 2011 hefur síðan kynnt
talsvert breiðvirkara bóluefni
en var á markaði þegar val-
ferlið átti sér stað, Gardasil-9.
Þá spurði DV sóttvarnalækni
hvort til greina kæmi að bólu-
setja stráka, líkt og Danir
gera, og hvort til stæði að efla
upplýsingagjöf til foreldra um
valkosti í þessum efnum.
Engin svör höfðu borist
þegar blaðið fór í prent. Berist
svör við fyrirspurnum blaða-
manns verða þau birt á vefsíðu
blaðsins, DV.is. n
Hér á landi
stendur
öllum tólf ára
stúlkum til
boða ókeypis
bólusetning
við HPV
veirunni.
MYND/GETTY
Heimir
Hannesson
heimir@dv.is
5. MARS 2021 DV