Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2021, Qupperneq 10
10 FRÉTTIR
K atrín Jakobsdóttir hefði getað valið ótal leiðir í lífinu og farnast vel.
Hún hefði orðið og hefur verið
fyrirtaks kennari, bókmenntir
eiga stóran sess í hjarta henn-
ar, svo skrif og ritstýring
liggur beint við og hún er fær
í mannlegum samskiptum svo
að jafnvel hefði sálfræðistarf
getað átt vel við hana líkt og
móður hennar. En nei, þrátt
fyrir að ætla sér það ekki sér-
staklega fann krafturinn sér
farveg og Katrín Jakobsdóttir
fór á þing.
Katrín er fædd 1. febrúar
1976 og er dóttir Jakobs Ár-
mannssonar, bankamanns og
kennara, og Signýjar Thor-
oddsen sálfræðings. Jak-
ob lést árið 1996, 57 ára að
aldri, og Signý 2011, 71 árs.
Fjölskylda Katrínar var og
er afar samheldin, en hún er
yngst fjögurra systkina. Elst
er Bergljót Njóla, kennari, og
því næst tvíburabræðurnir
Sverrir sagnfræðiprófessor
og Ármann sem er prófessor í
íslensku og rithöfundur.
Katrín er gift Gunnari Sig-
valdasyni heimspekingi og
saman eiga þau þrjá syni, þá
Jakob, Illuga og Ármann Áka.
Stressið í hliðinu
Vinir og kunningjar Katrínar
segja hana yfirleitt spyrja
fólk hvernig því líði þegar
það rekst á hana. „Þó að það
sé örugglega miklu meira í
gangi hjá henni en mér, þá
spyr hún að því,“ sagði fyrr-
verandi skólasystir Katrínar,
aðspurð hvernig týpa forsætis-
ráðherra væri. Að því sögðu er
það fyrsta spurningin. Hvernig
líður þér?
„Ég vissi ekki einu sinni að
ég spyrði að þessu en ég hef
auðvitað áhuga á fólki. Það er
líklega ástæðan fyrir því að
ég spyr. En hvernig líður mér?
Ég er með smá sjóriðu eftir
þessa jarðskjálfta en að öðru
leyti líður mér bara vel,“ segir
Katrín og það er er ekki annað
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra býr í blokk og
segist kunna því vel að búa ekki of rúmt því hún eigi
það til að sanka að sér dóti svo sem bollastellum sem
aðrir ætla að henda. Hún fer í Krambúðina á náttföt-
unum og segir það ekki vera neitt sérstakt markmið að
láta öllum líka við sig, sem er líklega ástæðan fyrir því
að hún er einn vinsælasti stjórnmálamaður landsins.
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is Skiptir máli
að missa ekki
mennskuna
5. MARS 2021 DV
Myndir: Anton Brink
Sérstakar þakkir: Listasafn Íslands
og Steina Vasulka fyrir afnot af
verkinu Of the north