Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2021, Blaðsíða 11
að sjá en svo sé. Hún brosir.
Það segir sig sjálft að starf
hennar er óhefðbundið og
álagið mikið. Kulnun er hug-
tak sem sífellt oftar er rætt
um og eftir að Íslendingar
hættu að vinna sig líkamlega
í þrot í sveitum landsins tók
hið andlega þrot við. Fjöldi
einstaklinga í ábyrgðarstöð-
um forðast umræðuefnið og
hugmyndin um að eitthvað sé
„of mikið“ er sett til hliðar.
Íslendingar vilja vera afreks-
fólk og því er kappkostað að
hlaða á sig verkefnum. For-
sætisráðherra segist þekkja
tilfinninguna.
Hlátur gegn vonleysi
„Mér hefur fundist ég vera við
það að drukkna, upplifa ekki
margir það? Að það þyrmi
yfir mann og maður sjái ekki
fram úr verkefnunum. Ég hef
gengið í gegnum svoleiðis
skeið. Maður lærir af reynsl-
unni og ég hef fundið að fyrir
mig skiptir miklu máli að vera
úti undir berum himni. Mér
finnst ekki gaman að vera inni
í leikfimi – ég bara tengi ekki
við það. Ég verð bara stressuð
strax í hliðinu. Allir virðast
vita hvað þeir eru að gera en
ég er bara föst í hliðinu eða
get ekki opnað tæknistýrðan
skáp,“ segir Katrín og hlær.
Útihlaup og ganga gera
henni gott að eigin sögn og
þar hreinsar hún hugann og
fær hugmyndir. „Hreint loft
og birta. Ég finn núna þegar
dagurinn er að lengjast að
orkan mín eykst með birtunni.
Svo er annað sem mér finnst
virka vel þegar ég finn fyrir
vonleysi. Það er að hlæja. Það
er sálfræðimeðferðin sem er
boðið upp á heima hjá mér.
Þá horfum við á asnalegt
grín eins og Naked Gun. Þar
sem fólk er að detta í tjörn og
svona, ég er með mjög „banal“
húmor. Það kenndi mér eldri
kona að það má ekki missa
húmorinn. Alveg sama hvað
verkefnin og lífið geta verið
krefjandi.“
Katrín hefur oft talað um
það að hún hafi ítrekað verið
skömmuð fyrir að brosa og
hlæja of mikið með þeim varn-
aðarorðum að það muni enginn
taka mark á henni ef hún hlæi
svona mikið. „Mér hefur líka
verið sagt að það sé ekki við
hæfi að hlæja þegar það eru
Katrín Jakobs
dóttir er
lík lega eini
þjóðarleið
toginn í heimi
sem deilir
þvottahúsi
með nágrönn
um sínum.
MYND/ANTON
BRINK
DV 5. MARS 2021
alltaf einhver óleyst vandmál
úti í heimi. Það er rétt en það
er hægt að taka vandamálin
alvarlega þó að maður hafi
húmor fyrir lífinu.“
Eiginmaðurinn stíliserar
Katrín segist hafa ákveðið að
ef hún ætlaði að halda áfram
í stjórnmálum yrði hún að fá
að vera hún sjálf. Með hlátr-
inum og öllu sem henni fylgir.
Að því sögðu þá hefur hún þó í
gegnum tíðina þegið ráð varð-
andi fataval frá eiginmanni
sínum. „Ég játa að maðurinn
minn hefur haft mikil áhrif á
klæðaburð minn. Hann segir
að ég hafi verið eins og trúður
í stórum buxum og miklum
litum og Converse-skóm.
Hann er minn stílisti,“ segir
Katrín og hlær, en hún hefur
oftar en einu sinni ratað á lista
yfir best klæddu konur lands-
ins svo samstarf þeirra hjóna
gengur vel.
Katrín segist vera veik fyrir
góðum afslætti og gera helst
mistök í innkaupum á útsölum.
„Ég held að verstu kaupin séu
líklega litskrúðugt strokk-pils
sem ég keypti á 70% afslætti
í fínni búð í bænum. Þegar ég
kem heim spyr Gunnar: „Hvað
er þetta?“ og horfir á mig eins
og ég sé að koma með fram-
andi lífveru inn á heimilið.
Ég sagði honum hvað þetta
væri ljómandi fínt og dásam-
legt. Ég ætlaði ekki að gefa
þetta eftir og klæddi mig í
pilsið daginn eftir og mætti
á einhvern viðburð. Svo sé ég
mynd af mér í blaðinu og þetta
var alveg hræðilegt. Þetta fór
mér eins illa og hugsast gat.
Ég er alltaf eitthvað að reyna
að vera sniðug en þarna var
ég eins og litskrúðugur sí-
valningur. Ég á það líka til að
kaupa fatnað sem er ætlaður
mjög hávöxnum konum.“
Af gleðinni í andliti hennar
að dæma virðast þessi stöku
innkaup hennar hafa mikið
skemmtanagildi fyrir fjöl-
skylduna áður en þau enda svo
í Rauða krossinum eða í fata-
skiptiklúbbnum sem hún er í.
Kleinur í dós
Drengir Gunnars og Katrínar
eru 15, 13 og 9 ára. Það þýðir
þrjú barnaafmæli á ári og
samkvæmt samfélagsmiðlum
þarf helst að ákveða þema
tveimur mánuðum fyrir af-
mælið svo hægt sé að panta
skraut frá AliExpress og
tryggja að allt sé sem „mynd-
arlegast“. Hvernig skyldi for-
sætisráðherra tækla slíka til-
búna streitu?
„Er fólk að gera það? Ég
er alin upp af móður sem
var sko ekki að stressa sig á
þessum hlutum. Ef maður átti
að mæta með heimabakstur
á bekkjarkvöld þá skellti
hún Ömmubaksturskleinum
í Mackintosh-dós. Mér finnst
mikilvægt að ala mín börn
upp í því að vera ekki með of
miklar væntingar. Það er ekki
allt frábært. Afmælin sem ég
held eru stundum bara Dom-
ino’s og Svali. Ég hef reynt að
baka einhverja rosalega köku
sem átti að vera geimskip en
varð geimskip sem hafði lent
í árekstri. Þeim fannst það
bara fínt. Börn eru ekki að
gera svona miklar kröfur, það
erum við sem erum að gera
þessar kröfur.“
Synir Katrínar eru vanir
starfsumhverfi móður sinnar
og eru þeir eldri jafnvel farnir
að fylgja stjórnmálamönnum
á samfélagsmiðlum. „Þeir
eru mjög vanir þessu stjórn-
málavafstri og vita mikið um
stjórnmál. Ég veit ekki hvern-
ig ég yrði ef ég kæmi heim og
ætti alveg að kúpla mig út og
mætti ekkert ræða stjórnmál.
Ég tek svolítið vinnuna heim
en það er meira þannig að ég
segi þeim frá hvað var rætt
í þinginu eins og þeir segja
mér frá sínum degi. Maðurinn
minn hefur mikinn áhuga á
stjórnmálum og mér finnst að
það eigi að tala við börn eins
og fullorðið fólk. Það og ekki
ala þau upp í of miklum vænt-
ingum. Og auðvitað að ala upp
sjálfstæða einstaklinga.“
Merkel og rýmisgreindin
Katrín hefur ósjaldan gert
grín að sjálfri sér fyrir tak-
markaða rýmisgreind og að
vera ómannglögg og er óspör á
hrakfallasögur til að létta lund
samferðamanna sinna. Það er
eiginmaðurinn sem oft verður
vitni að slíkum gjörningum –
og tilfallandi þjóðarleiðtogar.
„Öll rifrildi okkar hjóna
virðast hefjast í verslunum.“
Þar mætast þessir tveir
hlutir, rými og ómannglöggvi
af fullum krafti.
„Það byrjar yfirleitt þann-
ig að mér er bent á að það sé
einhver búinn að reyna að
komast fram hjá okkur í græn-
metiskælinum í þrígang. Svo
þekki ég ekki þann sem heils-
ar mér þó hann vinni með mér
og þetta endar svo á kassanum
þar sem Gunnar vill fara á
sjálfsafgreiðslukassa en ég
vil hitta manneskju og ég vel
alltaf kassann þar sem röðin
stoppar. Ég held að það sé
alger pína að vera með mér í
opinberu rými. Það sást þegar
ég heimsótti Angelu Merkel
og ég fékk einföld fyrirmæli
um hvar ég ætti að standa
og ganga, en samt varð hún
að vippa mér yfir sig því ég
stóð röngum megin þegar við
stoppuðum fyrir framan mjög
hátíðlegan þýskan heiðurs-
vörð.“
Málamiðlanir
Katrín hefur verið gagnrýnd
fyrir að gefa of mikið eftir
í samstarfi við Sjálfstæðis-
flokkinn á kostnað stefnumála
Vinstri grænna. „Það sem ég
er stundum skömmuð fyrir af
stuðningsmönnum mínum er
að ég sé ekki mikið að leysa
málin í fjölmiðlum heldur
við ríkisstjórnarborðið. Ég
segi að þetta sé karma, ef
við hugsum til lengri tíma þá
leysum við málin með sam-
tölum og málamiðlunum en þá
er maður gjarnan gagnrýndur
af því að fólk sér ekki hvernig
málamiðlanirnar verða til.
Mitt fólk í flokknum er opin-
skátt í gagnrýni sinni á mig
ef því finnst ég gefa of mikið
eftir, en þá finnst mér gott að
setjast niður og hugsa: „Hvað
erum við að fá út úr þessu?
Hvað skiptir máli fyrir Ís-
land?“ Það er ekki hægt að
vera á sjálfstýringu, maður
verður að geta svarað sjálfum
sér því að þetta sé þess virði.“
Hefur þú áhyggjur af VG?
Að stóru baráttumálin séu
að verða almenn baráttu-
mál og það sé að kvarnast úr
flokknum?
„Við auðvitað erum búin að
missa tvo þingmenn en um
leið hafa aldrei verið fleiri fé-
lagar í flokknum. Mér finnst
við á góðum stað. Og með bar-
áttumálin, þá er það enginn
stjórnmálaflokkur sem á eitt-
hvert mál. Það er auðvitað frá-
bært að aðrir flokkar séu að
tala um umhverfismál og að
fólk sé að tala um jafnréttis-
mál. Stjórnmálaflokkur er
ekki til fyrir sjálfan sig. Hann
er til fyrir málin og gildin
annars vegar og hins vegar
fyrir fólkið sem vill taka þátt
og ég hef ekki áhyggjur af því.
Það er mikill áhugi á að taka
þátt og það er frábært fyrir
málin að fleiri séu að verða
grænir og fleiri séu að verða
femínistar.“
Persónukjör og gott fólk
Hvað með persónukjör? Það
kemur reglulega upp sú hug-
mynd að koma á persónukjöri
og þá oft í samhengi við þitt
nafn og þitt persónufylgi?
„Ég er svo mikill sósíalisti
að ég segi að fólk eigi að kjósa
gildi og hugmyndir en ekki
einstaklinga svo þetta verði
ekki bara vinsældakosning.
Það er mín afstaða en það er
ekkert óeðlilegt við að fólk
geti kosið fólk og flokk eins
og hefur verið rætt. Sá vilji
hefur ítrekað komið fram og
þó að ég sé svona gamaldags
Mér hefur fundist ég vera við
það að drukkna, upplifa ekki
margir það?
FRÉTTIR 11