Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2021, Side 13
Þú getur ekkert
farið á nammi
barinn í gúmmí
stígvélum og nátt
buxum ef þú ert
forseti.
FRÉTTIR 13DV 5. MARS 2021
Síminn er sími
Sífellt áreiti í gegnum sam-
félagsmiðla, síma og tölvu-
póst kallar á gífurlegt álag og
hafa hinar ýmsu þjóðir leitast
við að breyta vinnulagi til að
reyna að auka lífsgæði fólks.
Í því samhengi samþykkti
Frakkland ný verkalýðslög
árið 2017 sem kveða á um að
starfsfólk þurfi ekki að svara
tölvupóstum utan vinnutíma.
Fjöldi fyrirtækja þar í landi
hefur einnig tekið upp á því að
slökkva á póstþjóninum utan
vinnutíma svo tölvupóstar
safnast upp en sendast ekki
nema á vinnutíma. Holland,
Lúxemborg, Belgía, Spánn og
jafnvel New York eru að skoða
útfærslur á því sem kallað
hefur verið „rétturinn til að
aftengjast“. Aðspurð hvort til
standi að skoða slíkt hérlendis
svarar Katrín: „Nei, það hefur
ekki verið rætt en við ættum
kannski bara að gera það, ég
sjálf er allavega þeirrar skoð-
unar að það verði að draga
einhver mörk og þetta fer illa
með marga – og það sama á
við um samfélagsmiðla.“
Katrín segir að samfara
styttingu vinnuvikunnar þurfi
að skoða þessi mál og hvers
sé ætlast til af fólki. „Með
sveigjanlegri vinnutíma er
oft verið að biðja fólk um að
vera sveigjanlegt í svörum og
það þarf að ræða. Til hvers er
ætlast af fólki? Það þarf að
vera skýrt.
Ég get unnið á öllum tímum
dags og þó ég sé að senda
tölvupósta á kvöldin ætlast ég
ekki til þess að starfsfólkið
hér til dæmis sé að svara mér
á kvöldin. Mér finnst ágætt að
geta sent en ætlast ekki til að
mér sé svarað strax.
Sjálf er ég ekki með sam-
félagsmiðla eða tölvupóst í
símanum. Ég tók þá ákvörðun
að lesa tölvupóst í tölvu. Ef
það er eitthvað sem má ekki
bíða þá hringir fólk. Ég get
alltaf kíkt í tölvuna ef það er
eitthvað sérstakt.“
Kíkja í tölvuna til að lesa
tölvupóst hljómar eins og þú
ætlir að kveikja á túbusjón-
varpi.
„Já. En ég verð að hafa þetta
svona, annars yrði ég alveg
rugluð. Ég er líka með reglu
um að síminn er ekki inni í
svefnherbergi. Ég er að reyna
að miðla þessu til sona minna
og sá yngsti er 9 ára. Hann er
með síma en ekki snjallsíma.“
Forsetaframboð og
náttbuxur
Hugrekkið sem einkennir
Katrínu nær í allar áttir. Inn í
fataskáp og inn á ríkisstjórn-
arfundi. Hún er líka þekkt
fyrir að taka oftast símann og
er jafnvel skráð í símaskrána
sem er óvenjulegt fyrir þjóð-
arleiðtoga.
Það er því ekki að undra,
þegar Katrín var orðuð við
forsetaembættið 2016, að hún
hafi tekið símann þegar fjöl-
miðlar hringdu á víxl.
„Það hringir fullt af frá-
bæru fólki sem ég ber mikla
virðingu fyrir og segir mér að
láta vaða. Svo hringir einhver
fjölmiðill og ég segist ætla að
leggjast undir feld,“ hún skell-
ir upp úr. „Ég hefði ekki átt að
segja þetta því fólk tók þessu
af mikilli alvöru og taldi fram-
boð handan við hornið, þegar
staðreyndin var sú að ég var
bara að hugsa málið. Stundum
er það hins vegar þannig að
maginn er rétta tólið og mag-
inn í mér sagði mér að þetta
væri ekki fyrir mig. Þú getur
ekkert farið á nammi barinn í
gúmmístígvélum og náttbux-
um ef þú ert forseti. Þetta er
myndin sem ég sá fyrir mér.
Ég í Krambúðinni á náttbux-
unum. Það var augljóst að ég
gat ekki verið forseti. Ég sagði
náttúrlega ekki við fjölmiðla
að ástæðan væri sú að ég vildi
geta farið á náttbuxunum út í
búð.“
Er ekki hægt að henda í
nammibar á Bessastöðum?
Eða ertu alveg búin að af-
skrifa þetta?
„Aldrei að segja aldrei. Ég
ætlaði aldrei að vera svona
lengi á þingi heldur. Ég elska
pólitík en ég elska bókmenntir
líka og það er svo margt sem
ég ætla að gera og ég fæ svo
margar hugmyndir. Þegar
ég hætti er svo margt í boði.
Gallinn er að maður ákveður
oft ekki sjálfur hvenær mað-
ur hættir en það lærist visst
æðruleysi í stjórnmálum. Ég
veit heldur aldrei hvenær ég
er búin á þingfundi. Maðurinn
minn segir reyndar að það
tengist ekki þessu starfi, ég
sé alltaf of sein hvort sem ég
er bókagagnrýnandi eða for-
sætisráðherra. Ef ég sendi
honum skilaboð og segist
koma klukkan hálf sjö sendir
hann á móti: „Nei, þú kemur
ekki klukkan hálf sjö,““ segir
forsætisráðherra Íslands og
lítur á klukkuna. Hún á að
vera mætt á fund eftir 13
mínútur. n
Forsætisráð-
herra Íslands
hefur ein-
lægan áhuga
á fólki og fer
ekki á sjálfsaf-
greiðlsukassa.
MYND/ANTON
BRINK