Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2021, Síða 14
Þ að er í fyrsta skipti bið-listi eftir að komast í meðferð hjá átrösk-
unarteymi BUGL frá stofnun
teymisins árið 2000. „Það er
búin að vera 60 prósenta aukn-
ing í tilvísunum til okkar frá
því í september 2020,“ segir
Tinna Guðjónsdóttir, hjúkrun-
arfræðingur og teymisstjóri
átröskunar Barna- og ungl-
ingageðdeildar Landspítala.
Það er margt sem gæti
spilað inn í þessa gríðarlegu
aukningu. „Það hefur verið
breytt samfélag í COVID.
Við hjá teyminu hugsum það
þannig að það hefur verið
titringur í rútínu barnanna,
foreldrarnir eru meira heima
og sjá mynstrið, börnin eiga
erfiðara með að fela það. Ég
vil ekki henda neinu fram þar
sem við erum ekki viss. Mögu-
lega COVID-árið góða. Svo
getur það verið að heilbrigðis-
starfsfólk sé meðvitaðra um
áhættuna. En þetta er mikil
aukning og sérstaklega hjá
ungum krökkum. Þetta eru al-
veg ótrúlega alvarleg veikindi
og það má ekki myndast bið-
listi því börnin veikjast bara
á meðan þau bíða, ástandið
verður bara verra ef þau fá
ekki strax hjálp.“
Tinna segir að það vanti
fleira starfsfólk og það þurfi
að auka fjárframlög ríkisins
til BUGL og átröskunar-
teymisins. „Við þurfum fleira
starfsfólk. Til dæmis eru allar
Norðurlandaþjóðir og flestar
Evrópuþjóðir með sérdeild
eða einhvers konar dagdeild
fyrir þennan hóp, því þetta er
svo flókin meðferð og þarfn-
ast svo þéttrar þjónustu til
að byrja með. Það er öðruvísi
meðferð á þessum geðsjúk-
dómi en öðrum. Þetta snýr að
grunnþörfum mannsins.“
Börn í lífshættu
Tinna segir að það komi fyrir
að börn hér á landi séu í lífs-
hættu vegna átröskunar. Hún
bendir einnig á að þegar ein-
staklingur er í sveltiástandi til
lengri tíma, getur hann ekki
farið að borða eins og venjuleg
manneskja þar sem það getur
skapað hættu fyrir líffæra-
kerfin.
„Þetta er lífshættulegur
sjúkdómur og ef það er ekki
gripið inn í snemma þá getur
þetta farið mjög illa. Þetta
er fljótt að ágerast og það er
auðveldara aðgengi að börnum
heldur en fullorðnum, því for-
eldrar hafa enn stjórnina yfir
þeim.“
Mismunandi átraskanir
Það er yfirleitt talað um tvær
mismunandi tegundir átrask-
SÍFELLT FLEIRI OG YNGRI
BÖRN MEÐ ÁTRÖSKUN
Gífurleg aukning hefur verið undanfarna mánuði á tilvísunum til átrösk
unarteymis BUGL. Tinna Guðjónsdóttir, teymisstjóri hjá BUGL, segir
vandamálið vera stórt og að í fyrsta skipti frá upphafi sé biðlisti.
14 FRÉTTIR 5. MARS 2021 DV
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is