Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2021, Síða 29
B etsy Faria var veik. Brjóstakrabbamein sem hún hélt sig hafa
haft betur gegn hafði dreift
sér og var komið í lifrina. Út
litið var ekki gott. Betsy átti
að líkindum ekki langt eftir,
en engu að síður barðist hún
hvað hún gat og mætti sam
viskusamlega í lyfjameðferð.
Fimmtíu og fimm stungur
Þann 28. desember 2011 barst
Neyðarlínunni símtal frá
eiginmanni Betsyar, Russ.
Hann greindi í örvinglan frá
því að eiginkona hans hefði
framið sjálfsvíg. Um leið og
viðbragðsaðila bar að garði
gerðu þeir sér ljóst að hér var
ekki um sjálfsvíg að ræða.
Betsy lá í blóði sínu á stofu
gólfinu og út úr hálsi hennar
stóð eldhúshnífur. Hún hafði
verið stungin fimmtíu og
fimm sinnum víðs vegar um
líkamann, stundum svo djúpt
að hnífsblaðið nam við bein.
Grunur beindist fljótlega
að eiginmanninum, Russ.
Blóð hafði fundist á inniskóm
Russ sem voru faldir inni í
fataskáp, auk þess greindi
vinkona Betsyar, Pam Hupp,
lögreglu frá því að erfiðleikar
hefðu verið í hjónabandinu og
hefði Betsy verið hrædd við
eiginmann sinn.
Við fyrstu sýn virtist um
fjölskylduharmleik að ræða
– heimilisofbeldi sem gekk
of langt. En ýmislegt kom þó
ekki heim og saman.
Líftryggingunni breytt
Lögmaður Russ átti bágt með
að skilja hvers vegna lög
regla hafði ekki skoðað vin
konu Betsyar betur, því Pam
Hupp virtist hafa ýmislegt
óhreint í pokahorninu.
Pam og Betsy kynntust
þegar þær unnu saman á
árum áður en höfðu verið í
litlu sambandi áður en Betsy
greindist með krabbameinið.
Þá hafði Pam orðið óvenju
lega mikil stuðningsmann
eskja og varla vikið frá Betsy
nema rétt yfir blánóttina.
Hún fylgdi Betsy í lyfjameð
ferðir og var í stöðugu sam
bandi við hana.
Nokkrum dögum áður
en Betsy dó hafði hún gert
breytingu á líftryggingu
sinni og gert Pam að við
takanda tryggingarinnar.
Talið er að Betsy hafi óttast
að unglingsdætur hennar
tvær og eiginmaður kynnu
illa með peninga að fara og
myndu eyða fjárhæðinni
allri á einu bretti. Pam átti
að tryggja að peningarnir
myndu duga fjölskyldunni í
lengri tíma.
Pam var einnig síðasta
manneskjan sem sá Betsy
á lífi. Hún hafði ekið Betsy
heim úr lyfjameðferð og
hjálpað henni inn í húsið. Hún
Erla Dóra
Magnúsdóttir
erladora@dv.is
hafði heldur enga fjarvistar
sönnun og neitaði að gangast
undir lygapróf.
Vildu bara eiginmanninn
Lögregla hafði engan áhuga
á Pam, bara Russ. Engu að
síður þurftu ákæruvald og
lögregla að útskýra það að
Russ væri með fjarvistar
sönnun, en hann hafði verið
á spilakvöldi hjá vinum og
á heimleiðinni komið við í
sjoppu og því ekki haft tíma
til að myrða konu sína. Russ
neitaði líka sök allan tímann
á meðan framburður Pam
Hupp breyttist í hvert sinn
sem rætt var við hana.
Því fór ákæruvaldið þá leið
að mála stórfurðulega sviðs
mynd af málinu. Samkvæmt
þeirri atburðarás væru Russ
og vinir hans með hlutverka
leiki á heilanum og hefðu
þessar fantasíur ágerst,
þar til þeir gripu til þess að
myrða Betsy í sameiningu.
Því væru vinirnir að ljúga til
um fjarvistarsönnun Russ og
hefðu sjálfir farið í sjoppuna
með kort hans til að styðja
við fjarvistarsönnunina. Russ
hefði svo farið heim, notið
ásta með konu sinni, myrt
hana svo, síðan klætt líkið
og sjálfan sig, farið í inniskó
og dýft þeim í blóðpoll, síðan
sett inniskóna inn í skáp og
svo hringt í Neyðarlínuna.
Hirti peningana
Enginn vinanna fjögurra var
þó sóttur til saka fyrir neitt.
Lögmanni Russ var þó bannað
að haga málflutningi sínum
með þeim hætti að grun yrði
varpað á Pam. Meðal þeirra
gagna voru símagögn sem
sýndu fram á að Pam væri
að ljúga – hún hefði ekki bara
skutlað Betsy heim heldur
dvalið á heimilinu í hálf
tíma þetta kvöld. Síðan voru
það peningarnir. Pam hafði
reyndar sett meirihluta trygg
ingarinnar í sjóð fyrir dætur
Betsyar á meðan málið var
rekið fyrir dómi, svo allt leit
út fyrir að vera með felldu
varðandi þá tilhögun.
Hins vegar var sjóðurinn
afturkallanlegur – enda beið
Pam ekki lengi eftir að málinu
lauk með að tæma sjóðinn að
nýju – fjölskylda Betsyar hef
ur aldrei fengið að sjá krónu
af líftryggingunni.
Móðir Pam deyr
Undir rekstri málsins lést
móðir Pam einnig. Sú hafði
glímt við Alzheimer en engu
að síður fallið til bana af
þriðju hæð með áttfaldan
skammt af sljóvgandi lyfjum
í blóðinu. Pam dóttir hennar
var síðust til að sjá hana á
lífi og var jafnframt einn
erfingja sem og viðtakenda
líftryggingar móður sinnar.
Russ var dæmdur í þrjátíu
ára fangelsi. Eftir dóminn
birti rannsóknarblaðamaður
ítarlega frétt um málið þar
sem fjallað var um hlut Pam
að málinu, reikulan fram
burð hennar, líftrygginguna
og allt. Eins var sýnt fram á
annmarka við rekstur málsins
hjá ákæruvaldinu, en yfir
rannsóknarlögreglumaðurinn
og saksóknarinn áttu í ástar
sambandi og svo virtist sem
saksóknari hefði nýtt sér það
samband til að fá lögreglu til
að einbeita sér aðeins að Russ.
Blóðugu inniskórnir
Málinu var áfrýjað og þá
mátti lögmaður Russ leggja
fram sannanir sínar.
Blóðugu inniskónum hans
Russ hafði greinilega verið
dýft í blóð, en ekki stigið í
það. Það væri mjög undar
legt. Hupp hafði sífellt breytt
framburði sínum, neitað að
gangast undir lygapróf og
haldið því meðal annars fram
að hún og Betsy ættu í kyn
ferðislegu sambandi. Pam
var síðust til að sjá Betsy á
lífi, og svo var það líftrygg
ingin. Russ var sýknaður og
síðan þá hefur dómaranum í
upprunalega málinu, sem og
saksóknaranum báðum verið
vikið úr starfi. En Pam var
ekki sótt til saka og gekk því
laus.
Myrti fatlaðan mann
Þann 6. ágúst árið 2016
hringdi Pam í Neyðarlínuna
og óskaði eftir aðstoð. Þegar
lögreglu bar að garði kom
hún að 33 ára karlmanni,
Louis Royse Gumpenberger,
látnum á heimilli Pam. Hann
hafði verið skotinn fimm
sinnum. Pam sagði að Lo
uis hefði reynt að ræna sig
og neyða sig til að afhenda
honum peningana úr líf
tryggingu Betsyar. Hún hefði
skotið hann í sjálfsvörn.
Fundu lögreglumenn miða í
vasa Louis sem virtist benda
til að Russ hefði fyrirskipað
morð á Pam.
Lögregla tók þetta ekki
trúanlegt. Louis þessi var
fatlaður eftir bílslys, átti
erfitt með gang og hafði
skerta greind. Lögreglu þótti
líklegra að Pam hefði platað
hann heim til sín og síðan
sett atburðarásina á svið til
að láta Russ líta út fyrir að
vera morðingja.
Pam var því loksins hand
tekin. Í haldi fór hún á sal
ernið og reyndi að fyrir
fara sér með kúlupenna. En
lögreglumönnum þótti það
benda til þess að hún hefði
sitthvað óhreint á samvisk
unni.
Hún lifði þó af og var
ákærð fyrir morð þar sem
farið var fram á dauðarefs
ingu. Hupp ákvað að reyna
að bjarga lífi sínu og gerði
því dómsátt þar sem hún
gekkst við broti sínu og slapp
í staðinn við dauðarefsingu.
Hún er nú í lífstíðarfang
elsi og á ekki möguleika á
reynslulausn.
Málið þykir hið ævintýra
legasta og væri það efni
í heila bók að greina frá
hverju einasta smáatriði. Það
verður þó reynt fljótlega því
í bígerð eru sjónvarpsþættir
sem byggja á sögu Pam Hupp
og mun stórleikkonan Rénée
Zellweger fara með aðal
hlutverkið. Þættirnir kallast
„The thing about Pam“ en
eru framleiddir af sjónvarps
stöðinni NBC. Ekki er komið
á hreint hvenær þættirnir
hefja göngu sína en ljóst er
að söguþráðurinn verður
æsispennandi og lyginni lík
astur. n
SAKAMÁL
HVER DRAP BETSY FARIA?
Betsy Faria var myrt, það fór ekki á milli mála. En hver myndi drepa konu
sem átti að líkindum aðeins skamman tíma eftir ólifaðan og hvers vegna?
Pam Hupp
var tilbúin að
gera ýmislegt
fyrir pening-
ana – mögu-
lega jafnvel
að myrða sína
eigin móður.
MYND/SKJÁSKOT
FÓKUS 29DV 5. MARS 2021