Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2021, Page 30
Leyfðu þér að lesa
og finna hvernig
líkaminn kveikir
á sér og hitnar við
sjóðheitar kynlífs-
lýsingar.
Mér líður eins og ég sé ósýnileg. Það er eins og samfélagið
hafi afskrifað mig. Ég er
gamalt krumpað krútt en
ekki þroskuð kona með
ólgandi ástríðu og ósval
andi lífsþorsta. Það er líkt
og nú, á mínum svokölluðu
„bestu árum“, sé hlutverk
mitt bundið við prjóna
skap, göngutúra og potta
spjall í lauginni. Ekki að
það sé neitt að því, en hvar
er rómansinn og ástalífið?
Stunda eldri borgarar einn
ar nætur gaman? Og ef svo
er, talar þá enginn um það?
Mér finnst eins og ég tali
fyrir daufum eyrum þegar
ég reyni að ræða þetta eða
jafnvel hneyksli viðstadda!
Er þetta bara búið? Þarf ég
að finna mér aðra leið til út
rásar?“
Lausn frá staðalmyndinni
Örvæntu eigi! Lífinu er langt
í frá lokið þó kynlífsleysi hrjái
þig.
Byrjum á ósýnileikanum.
Konur greina gjarnan frá
því á ólíkum tímabilum í lífi
sínu að vera ósýnilegar, eða
kannski er réttara að tala um
að kynveran falli í dá. Þetta
eru nefnilega tvö ólík mál þó
þau séu nátengd. Ósýnileikinn
er út á við, hugmyndir sam-
félagsins um okkur, eins og þú
kemur inn á, þessar bannsettu
staðalmyndir sem þjóna eng-
um. Og svo innri kynveran
og samband okkar við okkur
sjálf.
Byrjum á þér út á við.
Hvernig þú birtist sjálfri
þér, eða sýnir sjálfa þig, og
hvernig þú (mögulega) birtist
öðrum.
Leyfðu þér að halla þér aft-
ur, loka augunum, slökkva á
öllum þessum ærandi röddum
um hver þú ert og reyna að
hlusta á innri röddina þína –
hvað finnst þér? Hvað langar
þig að tala um? Hvað langar
þig að gera? Hvernig langar
þig að klæða þig? Eða klippa
þig? Það er ærlegt verkefni að
taka pláss og dansa eftir eigin
takti. Og það er kannski loks-
ins á þínum efri árum sem þú
getur leyft þér að taka það
pláss. Það er nefnilega líka
rými í staðalmyndinni fyrir
„eldri borgara flipp“. Þann-
ig að hvort sem þú fellur inn
í staðalmyndina eða ögrar
henni, finndu lífsgleðina þína
í tjáningunni sem tekur ekki
mið af öðrum.
Ef vinkonurnar hneykslast
á kynlífstali – spurðu þá út í
það, af hverju er þetta málefni
svona tabú? Kynlíf er eitthvað
sem brennur á flestum, en
fæstir þora að tala um af ótta
við að verða dæmdir, þú gætir
verið sú sem skapar öruggt
rými til að ræða um kynlíf,
án fordæmingar og skammar.
Það er dýrmætt og ber ekki að
vanmeta. Og ég hvet þig til að
opna á þennan ósýnileika og
skoða hann bæði sjálf og jafn-
vel með vinkonum þínum og
vinum.
Hvernig viltu vera séð?
Hver viltu að sjái þig?
Svo förum við inn á við, í
kynveruna þína.
Þarf ekki alltaf leikfélaga
Það er undir okkur hverju
og einu komið að rækta sam-
band okkar við kynveruna
sem býr innra með okkur
öllum. Það blómstrar ekki í
tómarúmi heldur þarf athygli
og alúð. Þó er ekki þar með
sagt að það þurfi leikfélaga.
Gáðu að því. Þó vissulega
geti slíkt verið skemmtilegt
og gefandi þá er það á okkar
eigin ábyrgð að sjá sjálfar um
okkar eigin kynferðislegu
útrás, eins og mig grunar
að margar konur sem giftar
hafa verið körlum í mörg ár
þekki ansi vel. Nú er ráð að
gefa sér rými og tíma til að
kortleggja hvað einkennir
þína kynveru.
Hvernig lítur píkan þín
út? Hefur hún breyst? Hvað
kemur þér til? Hvað finnst
þér gott og hvað æsandi?
Hvernig viltu láta snerta þig?
Hvað viltu prófa?
Í leiðangrinum að þessari
kortlagningu er um að gera
að næla sér í „verkfæri“,
kanna fantasíur, og splæsa í
kynlífstæki og sleipiefni. Það
eru til ógrynni af alls konar
erótískum klámskruddum á
bókasöfnum landsins – svo
ég tali nú ekki um veraldar-
vefinn! – og kynlífstæki og
sleipiefni er hægt að fá sent
upp að dyrum! Kynlíf byrjar
nefnilega á því að kveikja á
heilanum og það gerum við
í gegnum fantasíur. Gott er
að hafa í huga að hér á siða-
löggan og pólitísk réttlætis-
kennd ekki heima. Leyfðu
þér að lesa og finna hvernig
líkaminn kveikir á sér og
hitnar við sjóðheitar kynlífs-
lýsingar, skítt með staðal-
myndir og þess háttar.
Er þetta æsandi? Kveikir
þetta bál í lendunum?
Kynveran þróast út ævina
Það gleymist ansi oft kyn-
veran breytist og þróast út
ævina, ekki svo ólíkt bragð-
laukunum, og það sem okkur
áður þótti gott þykir okkur
það jafnvel ekki lengur og
þar fram eftir götunum. Því
er um að gera að leyfa sér að
vera svolítið forvitin um þig
sjálfa og leyfa þér að setja
smá leik inn í kynlífið þitt
með sjálfri þér. Já, þú last
það rétt. Þú getur átt frá-
bært kynlíf með sjálfri þér
og nú er um að gera að taka
sér pláss og fróa sér!
Láttu renna í bað, settu
notalega tónlist á fóninn, með
bók í annarri hendi og sturtu-
hausinn í hinni.
Nú eða ef þú ert tæknivædd
þá er um að gera að hlusta
bara á hljóðbók og hafa báðar
hendur lausar! Kynlíf er leik-
ur og það má setja gleði inn í
hann. Kynlíf er til að njóta, til
að láta okkur líða vel. Þetta er
gjöf sem þú gefur þér.
Svo ef þú vilt finna þér leik-
félaga þá er um að gera að
tala opinskátt um kynlíf, ég
hugsa að þeir sem ekki kunna
að meta það, séu ekki réttir
leikfélagar fyrir þig!
Gangi þér vel og góða
skemmtun! n
Við hvetjum lesendur til að senda
spurningar og vangaveltur sínar til
Siggu Daggar í tölvupósti á:
sigga@siggadogg.is
Spurningunum verður svo svarað
hér í Kynlífshorninu, að sjálfsögðu
nafnlaust og í fullum trúnaði.
,
Kynlífshornið
Sigga Dögg kynfræðingur er landsmönnum
kunn en hún hefur um árabil rætt um kynlíf
á hispurslausan hátt. Kynlífshorn Siggu
Daggar leysir af Fjölskylduhorn Kristínar
Tómasdóttur í tvær vikur í DV, en Kristín er
upptekin við að fjölga mannkyninu. Sigga
Dögg svarar hér spurningu frá eldri konu
sem finnst hún vera afskrifuð. Sérfræðingur svarar
MYND/GETTY
KYNVERAN ÞÚ Á EFRI ÁRUM
30 FÓKUS 5. MARS 2021 DV