Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2021, Side 34
Stjörnurnar
og heimsmetin
Sumar stjörnur eru svo magnaðar að það er
met. Þar að auki hafa margar þeirra slegið
met og unnið sér inn stað í Heimsmetabók
Guinness, þó svo að metin hafi sum síðar
verið slegin af öðrum.
MYNDIR/GETTY
DWAYNE JOHNSON
Harðnaglinn og hasarleikarinn
Dwayne Johnson sló heimsmet í
janúar 2017 þegar hann tók þátt í
að gera rúmlega 250 kílóa sjö laga
ídýfu. Því miður var þetta met svo
slegið út í janúar 2020 þegar rúm-
lega 500 kílóa ídýfa leit dagsins
ljós. Dwayne sló einnig met í
sjálfsmyndum þegar hann tók
105 sjálfsmyndir á aðeins þremur
mínútum.
SNOOP DOGG
Snoop Dogg á heimsmetið í því að blanda
stærsta Paradísar-kokteilinn. Kokteilinn bland-
aði hann árið 2018 og innihélt hann 315 lítra af
gini, 156 lítra af líkjör og 106 lítra af appelsínu-
safa. Í einu vinsælasta lagi sínu rappar Snoop um
gin og djús og nú státar hann af því að eiga stærstu
blönduna sem gerð hefur verið í heiminum.
JUSTIN BIEBER
Justin Bieber á heimsmet í flestum
áhorfum á YouTube og líka fyrir að
vera yngsti söngvarinn til að ná
að koma fimm plötum í fyrsta sæti
bandaríska vinsældalistans.
Bieber átti líka öllu leiðinlegra
heimsmet, en hann átti metið í
hataðasta myndbandinu á Inter-
netinu, fyrir lagið Baby. En það
met hefur nú verið slegið af mynd-
bandinu YouTube Rewind 2018.
PHARRELL WILLIAMS
Tónlistarmyndband Pharr ells
William við vinsæla lagið Happy
sló heimsmet, en í fullri lengd er
það 24 klukkustundir. Þetta met
var svo slegið aftur árið 2020 af
hljómsveitinni 21 Pilots sem gerði
tónlistarmyndband sem var 177
dagar, 16 klukkustundir, tíu mín-
útur og 25 sekúndur að lengd.
BEYONCÉ
Beyoncé á heimsmet í því að vera tilnefnd til Grammy-
verðlaunanna en hún hefur verið tilnefnd 79 sinnum,
engin önnur söngkona hefur náð þeim árangri. Hún sló
einnig met árið 2012 þegar hún var fyrsta söngkonan til
að hljóta sex Grammy-verðlaun á sömu hátíðinni en því
meti deilir hún í dag með söngkonunni bresku Adele.
ARIANA GRANDE
Söngkonan vinsæla Ariana Grande hefur slegið
tuttugu heimsmet. Árið 2019 sló hún metið sem
konan með flesta fylgjendur á Instagram, en
hún er með yfir 220 milljónir fylgjenda. Hún á líka
metið fyrir lagið sem oftast hefur verið streymt á
einni viku og lagið sem hefur oftast verið streymt
á tónlistarveitunni Spotify á einu ári.
BETTY WHITE
Hin viðkunnanlega leikkona Betty White er elskuð af
öllum og það ætti ekki að koma mörgum á óvart að
Betty er skráð í heimsmetabókina fyrir að vera leik-
konan með lengsta ferilinn í sjónvarpi, en ferill hennar
hófst árið 1939 sem þýðir að Betty White hefur leikið
í yfir 80 ár!
JACKIE CHAN
Leikarinn, framleiðandinn og
áhættuleikarinn Jackie Chan á
heimsmet í því að framkvæma
flest áhættuatriði allra núlifandi
leikara. Þetta met sló hann árið
2012 og hefur haldið því síðan.
34 FÓKUS 5. MARS 2021 DV