Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2021, Blaðsíða 35
Logi Pedro Stefánsson
Meyja
29. ágúst 1992
n Metnaðarfullur
n Traustur
n Góður
n Vinnuþjarkur
n Of gagnrýninn
n Feiminn
R úrik Gíslason hefur undanfarið vakið at-hygli fyrir laglegar mjaðma hreyfingar fyrir utan fótboltavöllinn. Rúrik keppir
núna í Let’s Dance í Þýskalandi og sýnir þar
leynda hæfileika sína í dansi.
Við óskum Rúrik til hamingju með afmælið
25. febrúar síðastliðinn. Fiskurinn er þægileg
mannvera sem fylgir flæðinu. Hann er til í að
prófa nýja hluti og er gjarnan mjög listrænn.
Fiskurinn er metnaðarfullur, mjög ástkær,
hlýr og góður. Hann er mikil tilfinningavera en
það getur einstaka sinnum flækst fyrir honum.
Tvistur í myntum
Forgangsröðun | Tímastjórnun | Aðlögunarhæfni
Hér reynir sannarlega á aðlögunarhæfni þína og tíma-
stjórnun. Þú tekur skref inn í óvissuna sem er svo spenn-
andi en auðvitað líka krefjandi. Spilið virðist vera þér
hliðhollt en mælir með að þú fáir aðstoð til þess að halda
utan um þín verkefni svo þú náir að sinna þeim öllum vel.
Hér geta markmiðalistar og Excel-skjöl komið að góðum
notum. Hér er líka gott að staldra við og forgangsraða,
passa að veita því meiri athygli sem fyllir bæði vasa og
sál. Annað má bíða og það er allt í lagi að segja „nei“
stöku sinnum.
Styrkur
Styrkur | Hugrekki | Sannfæring | Áhrif | Samkennd
Styrkurinn er fallegt spil sem sýnir að þú ert að finna
þinn innri styrk til að vera nákvæmlega eins og þú ert og
samkvæmur sjálfum þér. Þú lætur ekki utanaðkomandi
aðila stjóra eða stýra þér. Þú tekur ákvarðanir fyrir þig
sjálfan og ert ekki að hafa áhyggjur af því hvað öðrum
finnst. Það er mikill þroski sem þarf til þess að komast
á þennan stað í lífinu og það er mikil frelsistilfinning.
Sjöa í stöfum
Áskorun | Samkeppni | Vernd | Þrautseigja
Það er mikil gæfa sem fylgir þér þannig að þó þetta spil
sé ábending um áskorun þá sýnist mér það enda vel.
Þetta virðist líka vera þannig áskorun sem þú velur þér
sjálfur, ekki eitthvað sem mun koma þér á óvart. Þú ert
að velja sjálfur að fara á nýjar slóðir og ert tilbúinn að
Skilaboð frá spákonunni
Auka spil sem kom hjá þér er Fimma í bikurum, það
spil minnir þig á mátt fyrirgefningarinnar.
Hafðu það í huga...
STJÖRNUSPÁLESIÐ Í TAROT Rúrik Gíslason
SVONA EIGA ÞAU SAMAN
Vikan 05.03. – 11.03.
Laglegar mjaðmahreyfingar…
Ágústbarn á leiðinni
MYND/EYÞÓR
stjörnurnarSPÁÐ Í
T ónlistarmaðurinn Logi Pedro Stefánsson og kærasta hans Hallveig Hafstað Har-aldsdóttir eiga von á sínu fyrsta barni
saman. Fyrir á Logi drenginn Bjart Este ban
Pedro Logason. Parið greindi frá gleðifregn-
unum á Instagram og er von á barninu í ágúst.
DV lék forvitni á að vita hvernig þau eiga
saman ef litið er til stjörnumerkjanna.
Logi er Meyja og Hallveig er Vog. Meyjan er
merki sem þrífst á samkennd og sjarma. Hún
dáist að skýrum huga Vogarinnar og metnað-
inum sem hún leggur í að tryggja að allt sé í
fullkomnu jafnvægi. Þau eiga meira saman
andlega heldur en líkamlega. En þau geta
byggt upp fullnægjandi samlíf með þolin-
mæði, umhyggju og athygli.
Meyjan vill að fólki líki við sig og á það til
að sanka að sér ábyrgð og verkefnum sem óá-
kveðna Vogin á að sjá um. Til að leysa úr því
skipta samskipti og virðing öllu máli. Þó að
samband Meyjunnar og Vogarinnar geti verið
strembið til að byrja með þá verður það bara
sterkara með tímanum, eins og tvö púsl sem
loksins fundu hvort annað. n
MYND/AÐSEND
takast á við þær áskoranir sem fylgja þeim. Hér er spilið
að segja þér að gefast ekki upp, þú getur þetta! Ég get,
ég ætla, ég skal! er mantran sem spilið færir þér. Það er
gott að hugleiða með þessari möntru.
Hallveig Hafstað Haraldsd.
Vog
16. október 1996
n Málamiðlari
n Samstarfsfús
n Örlát
n Félagsvera
n Óákveðin
n Forðast deilur
Hvað segja tarot-spilin um stjörnumerkið þitt?
Hrútur
21.03. – 19.04.
Hrúturinn fær Tíu í spjótum sem
segir okkur að þetta verði óvenju
erilsöm vika hjá þér. Þú finnur
fyrir mikilli ábyrgðartilfinningu
og þarft að biðja um smá hjálp til
þess að komast yfir þenna hjalla.
Naut
20.04. – 20.05.
Nautið fær Vagninn, sem boðar
miklar breytingar. Hér sjáum við
þig pakka saman dótinu og tilbúið
í nýtt ævintýri. Þetta spil kemur
upp hjá fólki sem er að flytja
eða færa sig í starfi, einhverjar
breytingar sem eru kærkomnar.
Tvíburi
21.05. – 21.06.
Tvíburinn fær spilið Ás í stöfum
sem er táknrænt fyrir nýtt upp-
haf. Þetta snýr að verkefnum
eða vinnu. Ef þú ert að hugsa um
að takast á við nýtt verkefni eða
nýja áskorun þá segir spilið þér
að núna sé góður tími til þess að
hefjast handa.
Krabbi
22.06. – 22.07.
Krabbinn fær spilið Áttu í bik-
urum. Þú varðst fyrir ákveðnum
vonbrigðum og ert núna að
ákveða að taka völdin og snúa við
blaðinu. Þú tekur erfiða ákvörðun
um að sleppa því sem þjónar þér
ekki lengur og kveður vinnu eða
samband sem þjónar þér ekki
lengur.
Ljón
23.07. – 22.08.
Ljónið fær Tvist í sverðum og
stendur frammi fyrir erfiðri
ákvarðanatöku. Þú ert hvatt til
þess að líta inn á við og hlusta á
innsæið. Þú í raun og veru veist
svarið en ert hikandi, því það er
ekki auðveld ákvörðun.
Meyja
23.08. – 22.09.
Meyjan fær Sjöu í myntum sem
minnir þig á að ef þú finnir fyrir
uppgjöf þá skulirðu ekki örvænta
því það er ekki langt í land. Sjöan
í myntum sýnir einstakling sem
er búinn að leggja talsvert mikið
á sig og er orðinn ansi þreyttur
en verðlaunin eru rétt handan við
hornið.
Vog
23.09. – 22.10.
Vogin fær Hengda manninn sem
minnir hana á að góðir hlutir
gerast hægt. Það er vissulega
verið að reyna á þolinmæðina
þína en allt er eins og það á að
vera, treystu flæðinu og njóttu
þess að taka því rólega á meðan
þú bíður uppskerunnar.
Sporðdreki
23.10. – 21.11.
Sporðdrekinn fær Djöfulinn sem
er aldrei eins dramatískt og það
hljómar og langt frá því að vera
slæmt spil. Djöfullinn er táknrænn
fyrir samninga. Þú ert að fara að
skrifa undir mikilvægan samning í
vikunni, en gættu þess vel að lesa
smáa letrið.
Bogmaður
22.11. – 21.12.
Bogmaðurinn fær Tíu í bikurum
sem boðar einhvern fjölskyldu-
fögnuð. Mögulega verður þér
boðið í brúðkaup, einhver
nákominn þér á von á barni eða
þú færð góða ástæðu til þess að
draga fram kampavínið og fagna
nýjum áfanga.
Steingeit
22.12. – 19.01.
Steingetin fær Tvist í spjótum og
stendur frammi fyrir því að skipu-
leggja vel komandi tíma. Hér ert
þú að leggja góðan grunn að nýju
verkefni sem mun bera góðan
árangur.
Vatnsberi
20.01. – 18.02.
Vatnsberinn fær Tíu í sverðum.
Þetta spil minnir þig á að ef
þér finnst utanaðkomandi að-
stæður vera að þrengja að þér
þá er kannski tímabært að gera
breytingar. Þú ert alltaf við
stjórnvölinn þó að þér líði ekki
alltaf þannig.
Fiskur
19.02. – 20.03.
Fiskurinn fær Þrist í myntum.
Þú ert að fara að hefja eitthvað
skemmtilegt og skapandi sam-
starf. Þetta virðist tengjast vinnu
og verður afar farsælt samstarf
sem mun gefa af sér meira pen-
ingaflæði, beinustu leið í vasann
þinn.
FÓKUS 35DV 5. MARS 2021