Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2021, Page 38
38 SPORT 433
A rnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari karla, mun eftir tvær vikur
velja sinn fyrsta landsliðshóp.
Arnar tók við starfinu í des-
ember en aðstoðarmenn hans
eru Eiður Smári Guðjohnsen
og Lars Lagerbäck. Þegar ís-
lenska landsliðinu mistókst
að komast inn á Evrópumótið
seint á síðasta ári mátti heyra
raddir um að nú væri kominn
tími á breytingar, sami kjarni
hefur skipað íslenska landslið-
ið í tæp tíu ár með mögnuðum
árangri. Arnar Þór hefur lítið
gefið út um hvort hann fari í
miklar breytingar á hópnum
en ætla má að þær verði miklu
minni en margir höfðu spáð.
Markvarðarstaðan
Arnar Þór Viðarsson viður-
kenndi í viðtali í vikunni að
engin ákvörðun hefði verið
tekin um stöðu markvarðar,
talið hafði verið að Hannes
Þór Halldórsson myndi missa
stöðu sína sem fyrsti kostur
í markið, en sviðsmyndin í
dag er allt önnur. Rúnar Alex
Rúnarsson, sem flestir töldu
öruggt að tæki stöðu mark-
varðar Íslands, hefur mátt
þola mikla gagnrýni eftir
mistök sín með Arsenal í leik
gegn Manchester City í des-
ember. Síðan þá hefur hann
varla fengið að spila og hefur
misst stöðu sína á bekknum
hjá Arsenal, sjálfstraust þessa
öfluga markvarðar gæti verið
í molum. Ögmundur Kristins-
son gekk í raðir Olympiakos
síðasta haust og hefur spilað
sárafáa leiki síðan þá. Þessir
tveir keppinautar Hannesar
síðustu ár hafa því lítið gert
til að verðskulda sætið fram
yfir Hannes. Hannes er 36
ára gamall og er að hefja sitt
þriðja tímabil með Val en lík-
legast verður að teljast að
hann haldi stöðu sinni til að
byrja með undir stjórn Arnars
Þórs.
Varnarlínan
Helstu breytingarnar í liðinu
gætu átt sér stað í varnarlín-
unni, staða hægri bakvarðar
hefur verið til vandræða en
Guðlaugur Victor Pálsson
leysti stöðuna á síðasta ári og
gerði það með miklum glæsi-
brag. Arnar Þór sem áður var
þjálfari U21 árs landsliðs-
ins hafði mikla trú á Alfons
Samp sted í því hlutverki og
bendir margt til þess að hann
taki hann með sér í A-landslið-
ið og geri hann að lykilmanni.
eru teymi sem aldrei er hægt
að afskrifa. Stöðu vinstri bak-
varðar munu svo Ari Freyr
Skúlason og Hörður Björgvin
Magnússon halda áfram að
berjast um.
Miðsvæðið
Ef allt fer að óskum munu
allir helstu miðjumenn ís-
lenska landsliðsins síðustu
ár verða heilir heilsu seinni
hlutann í mars. Líklegt er að
Guðlaugur Victor muni koma
inn sem miðjumaður hjá Arn-
ari Þór, en Arnar hefur mest
notað 4-1-4-1 kerfið í sinni
þjálfun. Jón Dagur Þorsteins-
son, sem er í miklu uppáhaldi
hjá Arnari, gæti fengið stærra
hlutverk með A-landsliðinu
en áður. Annars má búast við
að Aron Einar Gunnarsson,
Birkir Bjarnason, Gylfi Þór
Sigurðsson og Jóhann Berg
Guðmundsson verði áfram í
algjöru lykilhlutverki. Stærsti
hausverkur Arnars er heilsu-
leysi Jóhanns Berg síðustu
mánuði og hvernig leysa skuli
málin ef hann er fjarverandi.
Sóknarlínan
Arnar Þór bíður nú og vonar
að besti íslenski framherjinn
síðustu árin, Alfreð Finn-
bogason, verði heill heilsu
eftir tæpar tvær vikur. Fram-
herjinn hefur misst af síðustu
leikjum Augsburg og misst út
mikið á þessu tímabili. Arnar
mun að öllum líkindum aðeins
spila með einn framherja og
ef Alfreð verður ekki heill
heilsu þarf hann að skoða
aðra kosti. Jón Daði Böðvars-
son, Albert Guðmundsson og
Viðar Örn Kjartansson gætu
leyst Alfreð af hólmi og þá er
möguleiki á því að Kolbeinn
Sigþórsson verði í hópnum en
hann á enn eftir að spila sinn
fyrsta leik með IFK Gauta-
borg.
Niðurstaða
Líklegast er að þegar Arnar
Þór rennir yfir hóp sinn og
sína möguleika til að stilla
saman sterkasta mögulega
byrjunarliðinu, verði breyt-
ingarnar sárafáar. Hann er
líklegur til þess að setja Alf-
ons Sampsted inn sem hægri
bakvörð. Sverrir Ingi Ingason
sem hefur verið fastamaður
í hópnum en aldrei fengið
traust sem byrjunarliðs-
maður ætti að fá stórt hlut-
verk. Framar á vellinum má
búast við því að sama gamla
bandið slái taktinn, Arnar Þór
þarf hins vegar að hafa betri
lausnir en Erik Hamrén fann,
ef Alfreð Finnbogason og Jó-
hann Berg eru fjarverandi
vegna meiðsla. n
LITLAR BREYTINGAR Í KORTUNUM
Arnar Þór Viðarsson fer af stað sem landsliðsþjálfari Íslands síðar í þessum mánuði, fram
undan eru þrír mikilvægir leikir í undankeppni Heimsmeistaramótsins. Liðið leikur gegn
Þýskalandi, Armeníu og Liechtenstein núna í mars og fara allir leikir fara fram á útivelli.
Hörður Snævar
Jónsson
hoddi@433.is
Með því gefst líka færi til að
koma Guðlaugi Victori upp á
miðsvæðið sem er hans nátt-
úrulega staða. Arnar Þór þarf
svo að velta því fyrir sér hvað
hann gerir með miðvarðar-
stöðuna í fyrsta verkefni sínu.
Þegar þetta er skrifað hefur
Ragnar Sigurðsson ekki spilað
deildarleik frá því í september
og Kári Árnason verður 39
ára síðar á þessu ári. Arnar
hefur sagt frá því að hann
horfi enn til þess að Kári geti
verið leikmaður liðsins. Sverr-
ir Ingi Ingason mun líklega fá
fullt traust í fyrsta verkefni
Arnars en Ragnar og Kári
5. MARS 2021 DV
Arnar Þór stekkur út í djúpu laugina síðar í þessum mánuði þegar undankeppni HM hefst. MYND/ANTON
Hannes er 36 ára
gamall en líklegast
er að hann haldi
stöðu sinni í mark-
inu.