Fréttablaðið - 06.03.2021, Blaðsíða 40
Heimavistarstjóri
Hjá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi er laust til
umsóknar starf heimavistarstjóra. FVA er framsækinn og
traustur framhaldsskóli sem starfar samkvæmt þremur
gildum; jafnrétti, virðingu og fjölbreytileika. Nemendur eru
um 500 talsins og starfsfólk skólans um 70. Við skólann er
starfrækt heimavist með 30 tveggja manna herbergjum,
eldhúsi, þvottahúsi og sameiginlegu rými. Leitað er að
fjölhæfum starfsmanni sem á gott með að umgangast ungt
fólk. Áskilið er að heimavistarstjóri búi í íbúð sem tilheyrir
heimavistinni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með íbúum heimavistar
- Eftirlit með húsakynnum
- Þrif á sameiginlegum svæðum og minniháttar viðhald
Hæfnikröfur
- Reynsla af faglegu starfi með ungu fólki
- Menntun í uppeldisfræðum, félags- eða sálfræði er kostur
- Góð samskiptahæfni
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og
efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert. Umsókn skal fylgja
starfsferilsskrá og kynningarbréf auk afrits af prófskír-
teinum ef við á. Tilgreina skal meðmælendur. Ákvörðun um
ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum
umsóknum verður svarað. Ráðið verður í stöðuna frá 1.
ágúst 2021 og er reynslutími 3 mánuðir.
Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 12.03.2021.
Nánari upplýsingar veitir
Steinunn Inga Óttarsdóttir - steinunn@fva.is - 855 5720
Umsóknir berist í gegnum Starfatorg.is
Lausar stöður hjá
Hafnarfjarðarbæ
Hafnarfjordur.is
Nánari upplýsingar á:
Grunnskóli
• Aðstoðarskólastjóri - Öldutúnsskóli
Leikskóli
• Leikskólakennari - Hlíðarberg
• Leikskólakennari - Stekkjarás
• Leikskólastjóri - Stekkjarás
• Leikskólasérkennari - Álfasteinn
• Sérkennslustjóri - Álfasteinn
• Þroskaþjálfi - Skarðshlíðarleikskóli
Mennta- og lýðheilsusvið
• Sálfræðingur - 60% starf
• Talmeinafræðingur - 50% starf
Málefni fatlaðs fólks
• Starfsmaður á heimili - Einiberg
• Sumarafleysing - Einiberg
Fjölskyldu- og barnamálasvið
• Starfsmaður félagsstarfs aldraðra - Hraunsel
Vinnuskóli Hafnarfjarðar
• Umsjónarmaður vinnuskóla - sumarið 2021
kopavogur.is
Leikskólastjóri í
leikskólann Arnarsmára
Leikskólinn Arnarsmári er 5 deilda leikskóli sem stendur á Nónhæð. Í leikskólanum er starfað samkvæmt
Uppbyggingarstefnunni og einkunnarorð hans eru frumkvæði, vinátta og gleði. Mikil og virk útikennsla ein-
kennir Arnarsmára, sem og áhersla á dyggðir, stærðfræði, læsi og virðingu fyrir umhverfinu.
Leitað er að stjórnanda sem hefur góða hæfni í mannlegum samskiptum, er skipulagður og umbótadrifinn
og hefur metnað til að ná árangri í starfi. Viðkomandi þarf að vera leiðtogi í sínum skóla, veita faglega for-
ystu og búa yfir hæfni og frumkvæði til að skipuleggja skapandi leikskólastarf í samvinnu við starfsmenn,
forráðamenn og leikskóladeild.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Kennaramenntun og leyfisbréf kennara
· Reynsla af starfi og stjórnun í leikskóla
· Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða Diplóma að lágmarki) á sviði stjórnunar eða uppeldis- og
menntunarfræða
· Forystuhæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum
· Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi
· Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi
· Góð tölvukunnátta
· Góð íslenskukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 22. mars 2021.
Nánari upplýsingar um starfið má finna á ráðningavef Kópavogsbæjar.
Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is
GILDI VERITAS ERU ÁREIÐANLEIKI, HREINSKIPTNI OG FRAMSÆKNI
LÖGFRÆÐINGUR
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum lögfræðingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum fyrir Veritas og
dótturfyrirtæki í 50-75% starfshlutfalli skv. samkomulagi. Um nýtt og fjölbreytt starf er að ræða hjá hratt
vaxandi fyrirtækjasamstæðu á heilbrigðismarkaði. Starfið heyrir beint undir forstjóra Veritas.
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL OG MEÐ 14. MARS 2021.
Tekið er við umsóknum í gegnum ráðningarvef Veritas, www.veritas.is.
Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Nánari upplýsingar veita Hrund Rudolfsdóttir, forstjóri, hrund@veritas.is og Pétur Veigar Pétursson,
starfsmannastjóri, petur@veritas.is.
Veritas sérhæfir sig í rekstri fyrirtækja á sviði heilbrigðisþjónustu og starfar innan sértæks ramma laga og reglugerða
er snúa að slíkri starfsemi. Veritas er móðurfélag fyrirtækjanna Artasan, Distica, MEDOR, Stoð og Vistor. Fyrirtækið er
kjölfesta samstæðunnar og veitir stoðþjónustu til dótturfyrirtækjanna svo þau geti einbeitt sér að kjarnastarfsemi sinni.
Starfssvið
• Almenn lögfræðiráðgjöf til framkvæmdastjórnar
samstæðunnar
• Samningagerð, rýni og skjalastjórnun á samningum
við birgja og aðra samstarfsaðila, bæði innlenda
og erlenda
• Gerð álita og eftirfylgni vegna ýmissa
stjórnsýslumála gagnvart opinberum aðilum
• Ráðgjöf varðandi vinnuréttarmál
• Ábyrgð á framkvæmd og eftirfylgni
persónuverndarmála
• Ýmis önnur tilfallandi verkefni t.d. gerð
kaupsamninga og áreiðanleikakannana, greiningar
og álitsgerðir vegna samkeppnismála o.fl.
Hæfni, þekking og reynsla
• Fullnaðarpróf í lögfræði
• Starfsreynsla sem nýtist í starfi s.s. reynsla
af samningagerð, þekking á laga- og
reglugerðaramma innan heilbrigðisgeirans
• Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og
rituðu máli
• Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð
vinnubrögð
• Lausnamiðuð hugsun, þjónustulund,
jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
• Yfirsýn og geta til að vinna undir álagi
8 ATVINNUAUGLÝSINGAR 6 . M A R S 2 0 2 1 L AU G A R DAG U R