Fréttablaðið - 06.03.2021, Blaðsíða 30
DJI Reykjavík er eini sölu-aðilinn á landinu sem er í samstarfi við hinn leiðandi
drónaframleiðanda DJI. Þetta
samstarf gerir fyrirtækinu kleift að
bjóða betra verð og víðtækari þjón-
ustu en gengur og gerist. Nýjasti
dróninn er kappakstursdróni sem
getur flogið lipurlega á allt að 140
km hraða og í allt að 20 mínútur í
senn og skilar sér alltaf heim.
„DJI er stærsti drónafram-
leiðandi í heimi og fyrirtækið
er í f lestum tilfellum fyrst með
nýjungarnar, enda eyðir það
mikilli orku og mannafla í þróun,
en um 30% starfsmanna eru verk-
fræðingar sem vinna að þróun á
vörum,“ segir Sigurður Helgason,
stofnandi og eigandi DJI Reykja-
vík. „Þessi áhersla á þróun útskýrir
kannski hvers vegna fyrirtækið er í
þessari leiðandi stöðu.“
Mikið aðhald frá DJI
„Ég hafði samband við DJI vorið
2016 og hafði áhuga á að selja
þessa vöru, enda hafði mig sjálfan
dreymt um að geta flogið dróna í
nokkra áratugi áður en þeir voru
til,“ segir Sigurður. „Þau tóku mér
fagnandi og ég seldi svo mikið á
fyrstu þremur mánuðunum að þau
buðu mér að vera dreifingaraðili
fyrir DJI á Íslandi.
Stuttu síðar báðu þau mig svo
um að opna stóra sérverslun í mið-
bænum í samstarfi við fyrirtækið
þar sem það var svo mikil ánægja
með samstarfið og söluna,“ segir
Sigurður. „Þannig að núna erum
við viðurkennd sérverslun með
vörur DJI.
Við fáum bæði mikla þjálfun og
stuðning frá framleiðandanum
sjálfum, sem gerir okkur meðal
annars kleift að bjóða betra verð
en aðrir og við stöndumst vel verð-
samanburð við önnur Evrópu-
lönd,“ segir Sigurður. „DJI gerir
líka ríka kröfu um fagmennsku
og sérþekkingu, þar sem við erum
andlit fyrirtækisins á Íslandi.
Samstarfið hefur verið mjög
náið frá upphafi og við hjálpum
þeim til dæmis varðandi ýmis
mál sem tengjast áhrifavöldum
og markaðsefni. DJI leggur líka
áherslu á að halda okkur þjálf-
uðum og sendir okkur reglulega á
námskeið til að viðhalda sér-
þekkingu okkar,“ segir Sigurður.
„Við erum líka send á þjónustu-
námskeið og þurfum að standast
próf á því sviði, þannig að við
erum í stöðugum skóla.“
Einstaklega víðtæk þjónusta
„Þetta samstarf gefur okkur líka
tækifæri til að bjóða mjög víðtæka
og góða þjónustu og við leggjum
mikla áherslu á það. Viðskipta-
vinir sem nota dróna frá okkur
sem atvinnutæki þurfa til dæmis
aldrei að hafa áhyggjur af því að
geta ekki unnið verkefni sín ef
dróninn bilar, brotlendir eða eitt-
hvað kemur upp á,“ segir Sigurður.
„Við erum alltaf með lánstæki af
öllum drónunum okkar sem við
rukkum ekki krónu fyrir. Það er
fjárfesting í þjónustu sem tryggir
að viðskiptavinir geta alltaf haldið
áfram að gera verkefnin sem þeir
ætla. Núna er hægt að kaupa
kaskótryggingar hjá okkur með
öllum drónum sem við seljum.
Ef það þarf að leysa úr ágrein-
ingsefnum með ábyrgð, sem gerist
stundum, gera þessi góðu tengsl
við DJI okkur líka yfirleitt alltaf
kleift að fá niðurstöður sem eru
viðskiptavinum að skapi,“ segir
Sigurður.
„Ólíkt f lestum framleiðendum
býður DJI upp á tveggja ára ábyrgð
á sínum vörum til allra, líka fyrir-
tækja og stofnana, og ef dróninn
hrapar vegna notendamistaka
gildir ábyrgðin samt áfram út
tímabilið eftir viðgerð,“ segir Sig-
urður. „Þessi ábyrgð gengur miklu
lengra en neytendalöggjöf segir til
um og er hluti af okkar sérstöðu.
Þetta sérlega háa þjónustustig
hefur gert okkur kleift að ávinna
okkur traust frá mörgum af
stærstu fyrirtækjum og stofn-
unum landsins,“ segir Sigurður.
„Viðskiptavinir okkar eru meðal
annars Vegagerðin, Fiskistofa,
RARIK, Landsnet, Lögreglan,
Ríkislögreglustjóri, Reykjavíkur-
borg, Orkuveitan, Háskóli Íslands,
björgunarsveitir, RÚV, ÍAV,
Svarmi, Resource og ótal aðrir. Við
erum alltaf á tánum og með bak-
vakt til að leysa úr vandamálum og
veita ráðgjöf.“
Vinnuþjarkur með LIDAR
„Við leggjum mikla áherslu á
atvinnudeildina okkar, sem
kallast Enterprise deildin, og
við erum að fá mjög spennandi
nýjungar þangað. Einn öflugasti
atvinnudróninn sem við seljum er
Matrice 300 RTK, sem er til dæmis
notaður af björgunarsveitum,
lögreglunni og Fiskistofu og
Landsnet notar hann í eftirlit með
rafmagnslínum,“ segir Sigurður.
„Þetta er veðurþolinn dróni sem
getur flogið í allt að 20 metrum
á sekúndu og grenjandi rigningu
eða ausandi snjókomu. Hann getur
flogið þegar aðrir drónar geta það
ekki, til dæmis við leitarstörf eða
snjóflóðaeftirlit.
Þessi dróni er að fá viðbót þann-
ig að hann verður ekki bara með
hitamyndavél og góða aðdráttar-
linsu sem er vatns- og veðurþolin,
heldur er líka að bætast við LIDAR.
Hann getur skannað landslag eða
vettvang, til dæmis slysavettvang,
í þrívídd með blöndu af laser og
myndavél á mun styttri tíma en
er gert í dag með LIDAR á þrífæti,“
útskýrir Sigurður. „Þetta nýtist
líka við ýmsar rannsóknir, til
dæmis á hopun jökla eða vegna
breytinga vegna hugsanlegs eld-
goss.“
Öruggur og flugþolinn
kappakstursdróni
„Við erum líka mjög öflugir í
drónum fyrir almenning og þar
erum við að kynna nýjasta fjöl-
skyldumeðliminn. Hann heitir DJI
FPV og þetta er kappakstursdróni
sem getur flogið á allt að 140 km
hraða, tekið krappar beygjur og
flogið hratt upp og niður. Þetta
er sannkallaður adrenalíndróni,“
segir Sigurður. „DJI hefur ekki
farið inn á þennan markað áður
en svona drónar hafa verið frekar
takmarkaðir. Þeir hafa haft tak-
markaðar rafhlöður sem endast
bara 3-10 mínútur og takmarkað
myndsamband. En dróninn frá DJI
getur flogið í allt að 20 mínútur og
það þarf ekki að setja hann saman
sjálfur.
Marga hefur dreymt um svona
fimleikaflug og þetta er góður stað-
ur til að byrja, því þetta er mjög
öruggt tæki. Það er hægt að ýta á
„panik“ takka á fjarstýringunni og
þá stoppar dróninn í loftinu, fer í
GPS mode og getur komið öruggur
heim aftur,“ segir Sigurður. „Þetta
er ekki hægt á öðrum kappaksturs-
drónum, þeir nota ekki GPS og eru
því óáreiðanlegri. Ef þú missir sam-
band við þá brotlenda þeir bara.
Það er líka hægt að læra á hann
í skrefum. Það er hægt að fljúga
honum eins og venjulegum dróna,
setja hann á miðlungshraða og þá
fer hann upp í allt að 100 km hraða
og svo er manual mode og þá fer
hann upp í allt að 140 km hraða,“
útskýrir Sigurður. „Þú sérð svo allt
með gleraugum. Það er áskorun
að fljúga svona en DJI er með flug-
hermi svo það er hægt að æfa sig
vel heima í stofu. Það er hrikalega
gefandi að ná þessu og þetta er
rosaleg upplifun. Ég skora á fólk að
kíkja á netið og sjá myndbönd úr
drónanum og skoða dómana sem
hann hefur fengið.
Við erum með alla breiddina af
drónum, allt frá þungavigtardrón-
um alveg niður í 249 gramma 4K
GPS dróna á 77.990 kr. sem er mjög
öflugur,“ segir Sigurður. „Hann
heitir DJI Mini 2 og þolir allt að 10
m/sek, þrátt fyrir smæðina.“
Nánari upplýsingar er að finna á
www.djireykjavik.is.
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Sigurður segir
að nýi dróninn
sé sannkallaður
adrenalíndróni
og það þurfi að
æfa sig vel til að
ná tökum á að
fljúga honum á
140 km hraða.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
DJI bað
Sigurð um að
opna stóra
viðurkennda
sérverslun í
samstarfi við
sig í mið-
bænum. Búðin
er rúmgóð og
glæsileg og þar
er frábært úrval
af drónum og
aukabúnaði
fyrir þá.
Matrice 300 RTK atvinnudróninn getur flogið í mjög vondu veðri og er með
hitamyndavél og góða aðdráttarlinsu. Hann er nú líka að fá LIDAR viðbót.
Sérstök gleraugu eru notuð til að
stýra DJI FPV. Ef sambandið rofnar
skilar hann sér svo aftur heim.
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . M A R S 2 0 2 1 L AU G A R DAG U R