Fréttablaðið - 06.03.2021, Blaðsíða 12
SVEITARSTJÓRNIR Það andar köldu
á milli Hveragerðis og Ölfuss þessa
dagana eftir að Hveragerðisbær
óskaði eftir breytingu á sveitar-
félagamörkum. Því var neitað og
urðu Hvergerðingar svo reiðir
við nágranna sína að þeir ætla að
hækka kostnaðarhlutdeild í sam-
eiginlegum verkefnum.
Um miðjan febrúar sendi bæjar-
ráð Ölfuss grönnum sínum svar-
bréf og benti þeim á að þeir hefðu
til umráða níu ferkílómetra en
nýttu aðeins tvo undir íbúða-
byggð. Þá sagði í bréfinu að Ölfus
gæti ekki fallist á þau rök að íbúar
í Hveragerði gætu ekki notið úti-
vistarsvæða nema þau væru hluti af
skipulagssvæði Hveragerðis. Enda
væri það svo að ýmsir góðir staðir í
Ölfusi nýtast íbúum í Hveragerði til
útivistar þrátt fyrir að tilheyra Ölf-
usi. Hafnar bæjarráð Ölfuss frekari
viðræðum um sveitarfélagamörk
en er ávallt tilbúið til viðræðna við
granna sína um sameiginleg hags-
munamál.
Þetta fór öfugt ofan í Hvergerð-
inga sem bókuðu á bæjarráðsfundi
sínum á fimmtudag að þeir hörm-
uðu afstöðu nágranna sinna. Fyrst
Ölfus sé ekki tilbúið til viðræðna
ætlar bæjarráðið í Hveragerði að
hækka kostnaðarhlutdeild Ölfus-
inga í þeim verkefnum sem rekin
eru sameiginlega.
„Þó að Ölfusingar greiði hlut-
fall af rekstrarkostnaði leik- og
grunnskóla miðað við fjölda nem-
enda á hverjum stað er ljóst að
annar afleiddur kostnaður er ekki
greiddur,“ segir í bókun bæjarráðs
og er talin upp vinna tæknideildar,
umhverfisdeildar og bæjarskrif-
stofu sem allar sinni mikilli vinnu
við fræðslustofnanir bæjarins.
„Eðlilegt hlýtur að teljast að Ölf-
usingar greiði hlutdeild í rekstrar-
kostnaði þessara stoðdeilda miðað
við umfang rekstrar fræðslumála í
bæjarfélaginu,“ segir enn fremur í
bókuninni.
Hefur Aldísi Hafsteinsdóttur bæj-
arstjóra ásamt skrifstofustjóra verið
falið að ræða við Elliða Vignisson og
félaga í Ölfusi um aukna þátttöku í
þeim kostnaði sem felst í rekstri
fræðslustofnana bæjarins. – bb
Ölfus og Hveragerði í hart
Elliði Vignisson,
bæjarstjóri í
Ölfusi.
Aldís Hafsteins-
dóttir, bæjar-
stjóri í Hvera-
gerði.
BANDARÍKIN Meðalfjöldi daglegra
bólusetninga í Bandaríkjunum fór
í fyrsta skipti yfir tvær milljónir á
miðvikudag. Fyrir mánuði var með-
alfjöldinn um 1,3 milljónir. Þetta
er haft eftir upplýsingum frá CDC,
bandarísku sóttvarnastofnuninni.
Um 54 milljónir Bandaríkja-
manna hafa nú fengið að minnsta
kosti einn skammt af bóluefni gegn
COVID-19. Þá eru ekki teknar með
tölur fyrir eins skammts bóluefni
Johnson & Johnson, sem var heim-
ilað til neyðarnotkunar fyrir um
viku.
Joe Biden Bandaríkjaforseti setti
landinu það markmið skömmu eftir
að hann tók við embætti að dagleg-
ar bólusetningar yrðu 1,5 milljónir.
Þá hefur hann einnig lofað að ná
100 milljónum bólusetninga fyrir
30. apríl, sem verður hundraðasti
dagur hans í embætti.
Biden hefur undanfarna daga
gagnrýnt Greg Abbott, ríkisstjóra
Texas, og aðra sem hafa slakað á
COVID-19 takmörkunum og sagt
að það væru „stór mistök“ fyrir fólk
að hætta að nota grímur.
„Það síðasta sem við þurfum er
Neanderdals-hugsunarháttur um
að fyrst allt sé í lagi í augnablikinu
sé hægt að taka grímuna af sér og
gleyma henni,“ sagði Biden á blaða-
mannafundi í Hvíta húsinu. „Þvoið
hendurnar með heitu vatni. Gerið
það oft, notið grímu og virðið fjar-
lægðarviðmið. Ég veit að þið vitið
það öll. Ég vildi óska þess að nokkrir
af kjörnum embættismönnum
okkar vissu það líka.“
Dr. Rochelle Walensky, yfirmaður
CDC, lýsti fyrr í vikunni yfir áhyggj-
um vegna þróunar sjúkdómsins og
sagðist óttast að ný og meira smit-
andi afbrigði veirunnar gætu valdið
fjórðu bylgjunni þar í landi.
Í dag hafa 28,9 milljónir greinst
með COVID-19 í Bandaríkjunum
og 520 þúsund látið lífið af völdum
veirunnar.
arnartomas@frettabladid.is
Bólusetja yfir tvær
milljónir daglega
Fjöldi daglegra bólusetninga í Bandaríkjunum er nú kominn yfir tvær millj-
ónir. Um 54 milljónir hafa nú fengið að minnsta kosti einn skammt. Joe Biden
Bandaríkjaforseti hefur lofað 100 milljónum bólusetninga fyrir lok apríl.
Biðröð eftir bóluefni við ráðstefnuhús í New York. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Breytingu á mörkum sveitarfélaganna var hafnað. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Innviðasjóður
Umsóknarfrestur 15. apríl kl. 15.00
Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Innviðasjóði
Hlutverk sjóðsins er að byggja upp rannsóknarinnviði á Íslandi.
Innviðasjóður veitir styrki til kaupa og uppbyggingar á tækjum,
gagnagrunnum, hugbúnaði og öðrum þeim búnaði sem telst
mikilvægur fyrir framfarir í rannsóknum.
Sérstaklega verður tekið tillit til innviðaverkefna á vegvísi sem
njóta, að öðru jöfnu, forgangs við úthlutun styrkja.
Við úthlutun úr Innviðasjóði er tekið mið af úthlutunarstefnu
Innviðasjóðs og eftirtalin atriði lögð til grundvallar:
l Að innviðirnir séu mikilvægir fyrir framfarir í rannsóknum á
Íslandi og fyrir rannsóknir umsækjenda
l Að fjárfesting í innviðum skapi nýja möguleika til rannsókna
og/eða innviðirnir tengist verkefnum sem Rannsóknasjóður
styrkir
l Að samstarf verði um nýtingu innviða milli stofnana eða milli
stofnana og fyrirtækja með fyrirsjáanlegum hætti
l Að áætlanir um kostnað og fjármögnun séu raunhæfar
l Að innviðirnir auki möguleika á menntun og þjálfun á
viðkomandi fræðasviði
l Innviðir sem komið er upp með styrk frá sjóðnum skulu vera
aðgengilegir öðrum rannsóknahópum eftir því sem svigrúm
er til og skal sjóðnum gerð grein fyrir hvernig aðgengi
verður háttað
Umsækjendur skulu kynna sér vel reglur sjóðsins
áður en umsókn er gerð.
Nánari upplýsingar og aðgangur að
rafrænu umsóknarkerfi á www.rannis.is.
Dunlop stígvél
Dunlop Acifort stígvél með ilja-
og távörn. Hentug og efnaþolin.
Leðurhanskar
Fóðraðir Tegera leðurhanskar
með riflás.
Vnr. 9640 335
Frábær tilboð
í verslunum N1
um land allt
ALLA LEIÐ
Bremsuhreinsir
Öflugur fituleysir sem gerir
yfirborð hreint og þurrt.
Nítrilhúðaðir hanskar
Nítrilhúðaðir hanskar úr
örtrefjaefni sem andar vel.
Smurolía
Samsett, hágæða 5W-30
smurolía, fyrir bensín- og
dísilvélar frá VW-Audi.
Olíuhreinsir
Óþynntur olíuhreinsir tilbúinn
til notkunar. Fæst í 5l og
20l brúsum.
Skoðaðu
fleiri tilboð
í vefverslun
okkar
Verslanir N1 um land allt
440 1000
Tilboðin gilda í mars 2021
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
-
0
0
4
5
9
3
6 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð