Fréttablaðið - 06.03.2021, Blaðsíða 32
Samband okkar einkennist af miklum systrakærleik. Auð-vitað rífumst við stundum,
eins og önnur systkin, en við erum
aldrei ósáttar í langan tíma í einu.
Við erum svo rosalega samrýmdar
og góðar vinkonur, og höfum alltaf
verið,“ segir Brynja Mary Sverris-
dóttir, sautján ára tónlistarkona
um einstakt og skapandi samband
þeirra Söru Victoriu, fimmtán ára
systur hennar.
„Persónuleikar okkar eru mjög
ólíkir, sem og stíllinn,“ segir Sara
Victoria, beðin um að lýsa systur
sinni. „Brynja Mary er þolin-
móðari, sveigjanleg og með mikið
jafnaðargeð. Stíllinn hennar er
stelpulegur og hún elskar allt sem
er bleikt.“
Brynja Mary hefur þetta að segja
um systur sína:
„Sara Victoria er ákveðnari en ég
og með meiri fullkomnunaráráttu,
hún er óhrædd við að segja skoð-
anir sínar og lætur engan vaða yfir
sig. Stíllinn hennar er svalur og
hún er meira fyrir svart en ég. Per-
sónuleikar okkar eru mjög góðir
saman, sérstaklega á framabraut-
inni, því að við vegum hvor aðra
upp og vinnum mjög vel saman.“
Þær systur vita vel hversu dýr-
mætar þær eru hvor annarri.
„Það besta við að eiga systur er
að vera besta vinkona annarrar
manneskju sem maður elst upp
með og enginn getur skilið betur.
Maður hefur alltaf einhvern til að
tala við og um hvað sem er. Systur
eru alltaf til staðar fyrir hvora
aðra og maður getur deilt öllu með
þeim, bæði upplifunum og tilfinn-
ingum,“ segja þær.
Endalaust þakklátar
Frá barnsaldri hefur systurnar
dreymt um frægð og frama á tón-
listarsviðinu og hafa samið eigin
tónlist. Í dag skipa þær dúettinn
EYJAA og á dögunum lönduðu
þær samningi við útgáfurisann
Universal, sem er eitt af þremur
stærstu plötuútgáfufyrirtækjum
heims og hafa á sínu bandi margar
af stærstu stjörnum veraldar.
„Marga dreymir um að komast
að hjá Universal og það er sannar-
lega stórt að hafa fengið samning
hjá þeim. Þeir gera allt fyrir sína
listamenn, fjárfesta í þeim, taka
upp tónlistarmyndbönd, mark-
aðssetja, kynna og gefa út tónlist-
ina, taka viðtöl við þá og auglýsa
í bak og fyrir. Síðast en ekki síst
redda þeir manni tónleikahaldi,“
upplýsir Brynja Mary, sæl með
tímamótin.
„Við gætum ekki verið þakk-
látari fyrir að fá svona góða byrjun
á okkar framabraut og geta unnið
með jafn traustu, góðu og frá-
bæru fólki sem heldur vel utan um
okkur og er yndislegt í alla staði,“
segir Sara Victoria.
Þær vita hvað þarf til til að
komast á mála hjá Universal.
„Fyrst og fremst hæfileika til
að semja lög og syngja. Það er líka
mikill kostur ef maður spilar á
hljóðfæri og við spilum báðar á
gítar, ukulele og píanó. Persónu-
leiki listamannsins skiptir líka
miklu máli sem og trú á sjálfan
sig og mikill vilji til að gera sitt
besta og ná langt,“ segja systurnar
sem gætu séð draum sinn rætast
um samstarf við stóru nöfnin í
bransanum.
„Já, við myndum elska að vinna
með Ariana Grande, Camila
Cabello, Lauv og Dua Lipa.“
Sakna Íslands mikið
Þótt Brynja og Sara séu aðeins
táningar að aldri hafa þær þegar
búið í sex löndum: í Danmörku,
Noregi, Þýskalandi, Hollandi, á
Spáni og Íslandi.
„Það er ótrúlega dýrmætt að
hafa átt heima á svona mörgum
stöðum. Við höfum fengið að
upplifa svo margt fjölbreytt og
skemmtilegt og kynnst yndislegu
fólki alls staðar að, með mismun-
andi menningu. Það er líka gjöf að
læra sex tungumál og mun koma
sér vel í framtíðinni. Þetta hefur
þroskað okkur mikið, gefið okkur
aukið sjálfstraust og reynslu, og
gert okkur sveigjanlegri og sjálf-
stæðari. Þetta hefur gert okkur að
þeim manneskjum sem við erum
í dag og hjálpað okkur að takast á
við markmið okkar í lífinu og að
ná svona langt miðað við ungan
aldur. Við erum endalaust þakk-
látar fyrir það,“ segir þær Brynja
Mary og Sara Victoria.
Þeim hefur þó þótt best að búa í
Danmörku.
„Þar líður okkur mest heima,
því þar höfum við búið lengst og
þar búa margir vina okkar. Annars
fannst okkur líka æðislegt að búa
á Spáni út af veðrinu. Öll löndin
hafa fært okkur eitthvað gott. Við
söknum svo alltaf Íslands, aðallega
fjölskyldu og vina, en auðvitað
líka fallegu náttúrunnar, góða
matarins og vatnsins! Það væri
geggjað að koma heim til tónleika-
halds þegar heimurinn opnast á
ný. Við erum meira en tilbúnar til
þess og getum ekki beðið eftir að
syngja lögin okkar saman á tón-
leikum fyrir framan fólk!“
Óttinn við að missa vini
Fyrsta lag EYJAA hjá Universal,
Don‘t forget about me, kom út
föstudaginn 26. febrúar.
„Lagið fjallar um óttann við
að missa vini þína. Við höfum
alltaf verið svolítið hræddar um
að í hvert skipti sem við eignumst
góða vini glatist samband okkar
þegar við flytjum burt. Við erum
einfaldlega hræddar um að minn-
ingar okkar dugi ekki til að halda
vinskapnum á lofti,“ segir Brynja
Mary.
Samfélagsmiðlar hjálpi þó mikið
við að halda vinskap á milli landa.
„Við höfum auðvitað misst
einhverja vini, en sannir vinir
fara ekki, sama hvar maður er.
Stundum er vinskap kannski ekki
ætlað að endast en öðrum er það.
Þegar við höfum flutt höfum við
séð hverjir eru raunverulega vinir,
og hverjir ekki, og við erum þakk-
látar fyrir þá sem eru enn vinir
okkar þótt lönd og höf skilji að,“
segir Sara Victoria.
Þær semja tónlist sína í sam-
einingu. Brynja er góð í að finna
laglínur og Sara texta.
„Þegar kemur að því að semja lög
erum við gott teymi. Við byrjum
venjulega á að spila nokkra hljóma
á hljóðfæri, sköpum síðan nokkrar
laglínur sem passa og skrifum
textann,“ upplýsir Sara og fleiri lög
eru væntanleg.
„Við reynum að semja eins
mikið og við getum þegar við
erum saman, en COVID hefur
verið mjög erfitt í Þýskalandi. Þar
hefur verið tekið hart á hlutunum
og strangara útgöngubann miðað
við önnur lönd. Við nutum þess þó
fyrir stuttu að Sara gat komið með
mér í skólann minn í Hollandi,
Wisseloord Academy, og þá viku
notuðum við mjög vel og sömdum
mörg lög í Wisseloord Studios sem
eru heimsþekkt stúdíó,“ upplýsir
Brynja Mary.
Plan B er í bakhöndinni ef tón-
listin verður ekki framtíðarstarf.
„Ég mun alltaf vinna að tón-
list en hef einnig áhuga á leiklist,
dansi, förðun og eldamennsku,“
segir Sara Victoria.
„Plan B hjá mér er að verða fata-
hönnuður og hanna eigin fatalínu,
en ég sé líka alveg fyrir mér að
vinna við dans, leiklist og módel-
störf,“ segir Brynja Mary.
Helginni munu þær systur verja
sín í hvoru landinu.
„Vegna útgöngubanns hér í
Þýskalandi er lítið hægt að gera sér
til skemmtunar. Ég ætla bara að
njóta tímans með fjölskyldunni
og borða góðan mat,“ segir Sara
Victoria.
Brynja Mary er stödd í skólanum
sínum í Hollandi.
„Ég fer í tíma á laugardögum.
Annars ætla ég að vera í stúdíóinu
alla helgina að semja tónlist.“
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Sannir vinir hverfa ekki
Íslensku systurnar Brynja Mary og Sara Victoria Sverrisdætur hafa búið í sex löndum á ævi sinni.
Þó táningar séu eru þær komnar á samning hjá útgáfurisanum Universal, sem dúóið EYJAA.
Brynja Mary og Sara Victoria sjá æskudraumana rætast með samningi við Universal. MYND/PHILIP TEMPEL/UNIVERSAL
Sælar systur eftir undirritun samnings hjá Universal. MYND/SVERRIR EINISSON
Uppáhaldstónlistarmaður?
Sara: Whitney Houston og
Ariana Grande.
Brynja: Ariana Grande, Kiana
Lede og Lauv.
Uppáhaldsleikari?
Sara: Rebel Wilson, Adam
Devine, Adam Sandler og Kat-
herine Heigl.
Brynja: Zendaya, Rebel Wilson,
Dwayne Johnson, Adam De-
vine og Vanessa Hudgens.
Uppáhaldsmatur?
Sara: Kínverskur og mexíkóskur
matur.
Brynja: Grillkjöt með kart-
öflum og piparsósu, sushi,
snitzel með steiktum kart-
öflum og Hollandaise-sósu og
sænsku snúðarnir, Gifflar.
Uppáhaldsdrykkur?
Sara: Jarðaberja-smoothie og
íste með ferskjubragði
Brynja: Macchiato, ískaffi,
mjólk, vatn og íste.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur?
Sara: Riverdale, Insatiable, Gos-
sip girl, You, RuPauls Drag Race.
Brynja: Modern Family, The
Good place, Keeping up with
the Kardashians, Jane the
virgin, Alexa and Katie, Un-
solved Mysteries Crime.
Uppáhaldsbók?
Sara: Baksturs- og matreiðslu-
bækur.
Brynja: From Start to Stardom
eftir Lisu London.
Uppáhalds TikTok stjarnan?
Sara: Addison Rae.
Brynja: @sjbleau, @Jameschar-
les og @madison bee
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . M A R S 2 0 2 1 L AU G A R DAG U R