Fréttablaðið - 06.03.2021, Blaðsíða 82
LYKTIN ER
NÁTTÚRLEGA
ÞAÐ FYRSTA
SEM GRÆN-
INGJAR SEM
ERU MEÐ VIÐ
KRUFNINGU
BREGÐAST
VIÐ.
Réttarlæknirinn Pétur Guðmann Guðmannsson lendir reglulega í því að rithöfundar og aðrir sem fást við skapandi sk rif um
morð og aðra glæpi leita til hans
með spurningar um réttarmeina
fræðileg atriði. Samt er lítill skortur
á alls kyns dellu og rangfærslum í
glæpaskáldskap sem fara stundum
í hans fínustu fræðataugar.
„Jú, það gerir það svolítið. Ég held
að ég myndi líklega gera meira af því
að horfa á þannig efni ef það væri
aðeins meira sannfærandi varð
andi réttarlæknisfræðilega þáttinn.
Maður er alltaf, aftur og aftur, að
sjá sömu villurnar sem virðast lifa
góðu lífi bæði í svona þáttum og líka
í bókum,“ segir Pétur Guðmann sem
ætlar að reyna að leiðrétta eitthvað
af þessu með sérstöku og vægast
sagt öðruvísi námskeiði, Réttar
læknisfræði fyrir rithöfunda, hjá
Endurmenntun HÍ í næsta mánuði.
Hvernig er lyktin?
„Þar sem ég var að vinna í Svíþjóð
komu reglulega fyrirspurnir til
okkar frá fólki sem var að skrifa
og þetta hefur haldið áfram hjá
mér eftir að ég kom hingað,“ segir
Pétur sem krufði um 190 lík vegna
óútskýrðra dauðsfalla hér á landi í
fyrra og hefur komið að fjölmörgum
morðrannsóknum.
Hann segir fyrirspurnir höfund
anna oft bera með sér að þeir geti
verið mjög skapandi. „Þetta getur
snúist um lík sem á að vera búið að
vera á tilteknum stað við einhverjar
mjög furðulegar aðstæður í sautján
ár eða eitthvað slíkt. Þau vilja þá
kannski fá að vita hvernig líkið
myndi líta út. Hvernig lyktin er og
hvort það myndi sjást í beinin og
eitthvað svoleiðis.
Þetta eru alls
k o n a r o g
m j ö g
oft sértækar spurningar þannig að
ég sá það strax að það hlyti eiginlega
að vera til vettvangur þar sem væri
bara hægt að fá þetta fólk saman til
þess að setja allavegana almenna
rammann utan um þetta,“ segir
Pétur um námskeiðið sem er ætlað
þeim sem vilja geta fjallað á raun
hæfan hátt um dauða, lík og réttar
læknisfræðilega rannsókn dauðs
falls.
„Já, þetta er svolítið spennandi. Ég
kvitta alveg undir það,“ segir Pétur
þegar blaðamaður getur ekki leynt
áhuga sínum og veltir því upp að
sjálfsagt muni fleiri en rithöfundar
vilja fá nasaþef af nályktinni hjá
réttarlækninum þótt námskeiðs
lýsingin vari við því að máli sínu til
stuðnings muni Pétur sýna myndir
af áverkum og látnu fólki sem geti
vakið óhug.
Nályktarstemning
„Já, já, svo sannarlega og hún er
mjög margbrotin sko,“ svarar Pétur
umhugsunarlaust þegar hann er
spurður hvort það sé hægt að lýsa
nálykt með orðum. „Lyktin er nátt
úrlega það fyrsta sem græningjar
sem eru með við krufningu bregðast
við.
Þetta er kannski lykt sem maður
er löngu hættur að finna sjálfur
þannig að það getur verið svolítið
áhugavert að upplifa það með þeim.
Þá koma fram alls konar lýsingarorð
og maður gerir sér grein fyrir því að
er eitthvert munstur í þessu og það
fer eftir tilfellum hvaða lykt ríkir,
hvenær hún kemur og af hvaða líf
færi.
Síðan tengist þetta allt áferð, lifn
aði og rotnun. Ég held það sé sko
mjög mikið að hafa þarna fyrir orða
perra. Svona stemningslýsingar,“
segir Pétur um þennan óplægða
en illa þefjandi akur glæpaskáld
skaparins.
Kyrking og eitur
Pétur skýrir á námskeiðinu frá
helst u v iðfa ngs
efnum réttar
meinafræðinnar og hlutverki rétt
arlækna í rannsókn dauðsfalla og
manndrápa. Þá verður rætt um
dauðann frá sjónarhóli læknis
fræðinnar og það hvernig lík eru
rannsökuð, hvernig þau koma fyrir
og hvaða breytingar verða á líkam
anum eftir dauðann.
Hugtök áverkafræði verða kynnt
sem og túlkun á tilurð áverka og
fáeinar mýtur og furður varðandi
dauðann verða tíundaðar og
rannsóknaraðferð réttar
læknisins, krufningin,
útskýrð í helstu atriðum.
Þá ætlar Pétur að kynna
valdar dánarorsakir
eins og til dæmis
eitrun og kyrkingu.
Eitrun?
„Já, hví ekki?“
spyr Pétur á móti og
segir að vissulega sé
litið svo á að eitur sé
ekki notað til morða
og eitrun oft tengd
slysum eða sjálfsvígum. Þá bendir
Pétur á að það sé svo margt sem geti
valdið eitrun og að alls konar einföld
módel spretti upp í því sambandi
en í réttarmeinafræðunum er ekki
gengið að neinu sem gefnu.
Skekkjumörk dauðans
„Til dæmis komst orðið „dauða
skammtur“ í umferð um daginn.
Eins og það sé þannig að ef þú
tekur þetta margar töflur af þessu
þá deyrðu. Ef þú tekur einni töflu
færri þá á að vera allt í lagi og eitt
hvað svoleiðis. Þessi vísindavinkill
er aldrei svona og er alltaf miklu
meira f ljótandi og það eru alltaf
þessi skekkjumörk sem maður vill
kannski aðeins miðla áfram.
Svo er náttúrlega líka mögu
leikinn á því að eitrun sé beitt sem
manndrápsaðferð og það er eitt
hvað sem maður þarf alltaf að hafa í
huga,“ segir Pétur og bætir við að þá
þurfi að huga að því hversu auðvelt
getur verið að dylja eitrun, hversu
ofboðslega margar gerðir eiturs eru
til og annað í þeim dúr.
„Hvað kyrkinguna varðar þá er
það náttúrlega bara algeng mann
drápsaðferð í okkar heimshluta og
líka frekar misskilin af bæði fag
fólki og leikmönnum; hvernig þetta
er, hvernig þetta fer fram og hvaða
ummerki eru til staðar. Um leið er
þetta afskaplega áhugavert fyrir
bæri og sniðugt að rýna í það.“
Venjulegt fólk
Réttarmeinafræðingar eru sjálfir
algeng klisja í glæpaskáldskap þar
sem staðalmyndin af innhverfum
sér vitringum með kolsvartan
húmor er gegnumgangandi.
Eruð þið öll eitthvað skrítin?
„Nei, ég held að þetta sé mjög fínn
hópur. Þessi litla stétt,“ segir Pétur
Guðmann og hlær. „Þetta er mjög
Nálykt
má vel lýsa
með orðum
Hvernig rotna lík? Þessari spurningu og
öðrum álíka ætlar réttarlæknirinn Pétur
Guðmann Guðmannsson að svara á nám-
skeiði fyrir þá sem fást við dauðann í skáld-
skap enda orðinn mátulega leiður á alls
kyns bábiljum um fag sitt í glæpasögum.
Pétur Guðmann
hyggst gera út
um algengan
misskilning um
dauða og rétt-
arlæknisfræði
á námskeiðinu
Réttarlæknis-
fræði fyrir
rithöfunda hjá
Endurmenntun
HÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Banvænar árásir
Pétur Guðmann Guðmannsson
er réttarlæknir sem starfað
hefur við fagið í níu ár, fyrst í Sví-
þjóð og síðar á Íslandi.
Hann hefur komið að
fjöldamörgum rannsóknum
á manndrápum og ofbeldis-
verkum. Hann hefur sérstak-
lega rannsakað áverka á hálsi
og banvænar árásir dýra. Pétur
kennir réttarlæknisfræði og
hjartameinafræði við lækna-
deild Háskóla Íslands.
Allar frekari upplýsingar um
námskeiðið Réttarlæknisfræði
fyrir rithöfunda eru á Endur-
menntun.is.
mismunandi fólk og ég get bara í
fullri hreinskilni ekki sagt að það
hafi einhvern samnefnara og langt
í frá því að það sé skrýtið fólk eða
eitthvað öðruvísi en aðrir. Alls ekki.
Meira að segja enn þann dag í
dag þegar ég kynnist nýju fólki í
stéttinni þá furða ég mig á því hvað
þetta er eðlilegt fólk,“ heldur hann
áfram og telur kollega sína almennt
vera eðlilega, úthverfa og aðlaðandi.
„Þannig að þessi steríótýpa, sem ég
finn á sjálfum mér að er einhvern
veginn föst, er alls ekki sönn.“
Teygjanleg dauðastund
Dauðinn kemur í ýmsum myndum
og í flestum tilfellum er flóknara að
deyja en aðeins að geispa golunni
og Pétur Guðmann segir aðspurður
að tal um að deyja samstundis eigi
sjaldnast við.
„Það er hægt að flokka þetta svo
lítið. Það er alveg hægt að tala um
svona augnabliksdauða en það á
þá kannski við ef þú deyrð þegar
þú stendur við hliðina á kjarnorku
sprengju þegar hún springur eða
dettur ofan í heitt hraun í eldfjalli
og eitthvað þannig lagað.
Annars er þetta bara skali og
suma tekur tvo, þrjá daga að deyja
hægt og hægt en það er þá kannski
meira eins og fólk sem er í líknandi
meðferð með mjög mikinn lyfja
stuðning.
Þetta er allt þar á milli og þarna
eru mörg samspilandi kerfi þannig
að það er yfirleitt ekki neitt prakt
ískt að tala um dauðastundina,
dauðaaugnablikið. Ef ég er spurður
um dánarsekúnduna reyni ég yfir
leitt alltaf að tala frekar um dauða
ferlið. Hvenær það er að hefjast og
hvernig það fer fram. Enda erum við
að reyna að lesa í það til þess að fatta
hvað gerðist og sjálft dánarferlið
skilur eftir sig spor í líkinu.“
Þórarinn
Þórarinsson
thorarinn@frettabladid.is
6 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R50 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ