Fréttablaðið - 06.03.2021, Blaðsíða 26
Bryndís Bolladóttir varð ástfangin af eiginleikum ullarinnar í námi við Listaháskólann, en það var ekki fyrr en eftir hrun að hug
mynd hennar að hljóðdempandi
kúlu fékk vængi.
„Ég varð ástfangin af eiginleikum
ullar og sérstaklega þæfðrar ullar
þegar ég kynntist henni í námi.
Ég fann strax að hún gæfi mikla
möguleika og ekki eyðilagði að
hún væri mér svona nærri. Það
var síðan kona úr Setberginu sem
hringdi í mig árið 2006 og biðlaði
til mín að búa til fyrir sig listaverk.
Verk sem jafnframt hefði hljóð
dempandi virkni fyrir heimili
hennar,“ útskýrir Bryndís.
Konan bjó í stóru húsi með
leðursófa og stórum glergluggum.
„Hún þekkti til verka minna og sá
eitthvað í mér sem ég var ekki sjálf
búin að gera,“ segir Bryndís en
þetta varð upphafið að því að hún
fór að horfa í þessa átt en hönnun
hennar hefur vakið heimsathygli.
„Ég reyndi að nálgast hljóðverk
fræðinga og annað fagfólk árið
2007, en það var allt á yfirsnúningi
og fáir tilbúnir í að fjárfesta tíma í
nýsköpun. Það var síðan í ársbyrj
un 2009 sem tækifærin sköpuðust
eftir hrunið. Þá fékk skapandi
hugsun að njóta sín og þverfag
legt starf átti auðveldara með að
blómstra.“
Bryndís var þá sjálf í fæðingar
orlofi en nýtti tímann vel og kynnti
minni gerðina af Kúlu árið 2010, en
hún er brýtur hljóð upp og ári síðar
kynnti hún fyrstu hljóðdempandi
kúluna.
„Síðan þá hefur hún verið í þó
nokkurri þróun þó svo útlitið hafi
haldist óbreytt. Eftir 2011 hef ég
svo búið til öll helstu form sem
hægt er að finna í þrívídd.“
Góð hljóðvist mikilvæg
Mik ilvæg i góðrar hljóðv istar
verður fólki sífellt ljósara. „Einbeit
ingarskortur, höfuðverkir og önnur
vanlíðan er algengur fylgifiskur
slæmrar eða rangrar hljóðvistar,“
segir hún og bendir á að víða megi
gera betur í þessum efnum.
„Góð hljóðvist eykur vellíðan og
einbeitingu, dregur úr þreytu og
auðveldar samskipti. Fjölmargar
rannsóknir hafa sýnt fram á mikil
vægi hljóðvistar til að bæta heilsu
og auka lífsgæði fólks. Margar
þeirra hafa síðan verið heimfærðar
upp á krónur og aura: Til dæmis
að hljóðvandamál geti leitt til 66
prósenta minnkunar á framleiðni.
ULLIN BÝÐUR LÍKA UPP Á
HLÝLEIKA SEM PLAST Á TIL
DÆMIS ERFITT MEÐ AÐ NÁ.
VIÐ EIGUM AÐ BÚA
TIL VANDAÐA HLUTI SEM
KOSTA MEIRA OG ÆTLA
HLUTUNUM Í KRINGUM
OKKUR AÐ ENDAST
LENGUR.
Hefur aldrei skilið
fjöldaframleiðslu
Bryndís Bolladóttir varð ástfangin af eiginleikum ullarinnar í
námi við Listaháskólann, en það var ekki fyrr en eftir hrun að
hugmynd hennar að hljóðdempandi kúlu fékk vængi og sló í gegn.
Lina sem hér má sjá, kemur sem hálfur og heill sívalningur. „Hún gefur
óþrjótandi möguleika rétt eins og teiknuð lina. Það hefur verið gaman að
fylgjast með hugmyndaauðgi okkar erlendu samstarfsaðila þegar kemur
að Línu því takmörkin á því sem hægt er að gera eru lítil,“ segir Bryndís.
Fyrsta og þekktasta verk Bryndísar
er Kúlan sem notið hefur mikilla
vinsælda, enda hefur hún fyrir
löngu sannað eiginleika sína, en nú
hafa bæst við verkin Land og Lina.
Bryndís hefur þróað leið til að nýta ull sem fellur til í framleiðslu. „Í okkar framleiðslu höfum við fundið skapandi
leið til að minnka sóunina en búa um leið til verk sem við teljum einstök og við erum mjög stolt af.“ MYND/AÐSEND
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
Einnig að tilraunir hafi sýnt fram á
48 prósenta aukningu á einbeitingu
og 10 prósentum betra skammtíma
minni þegar hljóðvist er bætt. Auk
fjölmargra rannsókna sem hafa
sýnt fram á neikvæð áhrif á heilsu
starfsmanna ef hljóðvist er léleg.“
Fyrsta og þekktasta verk Bryn
dísar er Kúlan sem notið hefur
mikilla vinsælda og sjá má víða,
enda hefur hún fyrir löngu sannað
eiginleika sína, en nú hafa bæst við
verkin Land og Lína.
„Kúla hefur þá eiginleika að eftir
henni er tekið. Hún er áræðin og
kraftmikil og því vel sýnileg. Þó
svo hún sé f lókin í framleiðslu er
hún einföld í útliti og fólk tengir við
hana. Kúluformið hreyfir við okkur
sem manneskjum. Rannsóknir hafa
sýnt að form af þessari gerð ná að
slá á strengi sem bæta líðan og eru
okkur svo eðlislægir.“
Bryndís segir eina bestu viður
kenningu sem hún hafi fengið,
koma frá erlendum kollegum henn
ar sem hafa sagst oftar en ekki hafa
spurt sig: Af hverju datt mér þetta
ekki í hug? „Það sem vinnur með
Kúlu er einnig hennar Akkílesar
hæll því margir eiga erfitt með að
trúa því að eitthvað svona ólíkt því
sem finnst á markaði sé að virka svo
vel. Hún er náttúrlegur skúlptúr
með hljóðdempandi virkni í hæsta
gæðaflokki.“
Þróaði sinn eigin textíl
Ástríða Bryndísar liggur í áferðinni:
„Þannig hafa efnin sem ég hef klætt
Kúlur í í gegnum tíðina verið mín
efni. Eiginleikar efnisins og fram
leiðsluaðferð hafa töluverð áhrif á
hljóðísogseiginleika þess sem ég
hef gert. Sumarið 2019 hóf ég að
þróa nýtt efni, Earth Matters textíl
þar sem sköpunargleðin fær að
njóta sín. Vélbúnaðurinn er auð
vitað ennþá til staðar en honum er
nú beitt þannig að hugur og hönd
ráða meiru um útkomuna,“ segir
Bryndís sem sækist eftir að skapa
náttúruáferð í efninu.
Hún segist aldrei almennilega
hafa skilið fjöldaframleiðslu. „Ég
hef alltaf sagt að maður beri meiri
virðingu fyrir því sem kostar aðeins
meira. Þannig virka hlutirnir og
við vitum það öll. Offramleiðsla
og ofneysla hefur verið að ágerast
síðustu 50 ár og hraðinn eykst og
eykst. En ég vona svo innilega að
heimurinn sé að átta sig á að við
þurfum öll að vanda okkur mikið
meira, hugsa meira í langtíma
Bryndís sækist eftir því að skapa
náttúruáferð í Earth Matters.
6 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð