Fréttablaðið - 06.03.2021, Blaðsíða 45
kopavogur.is
Kópavogsbær leitar að metnaðarfullum og reynslumiklum einstaklingi í starf deildarstjóra nýrrar inn-
kaupadeildar. Deildarstjóri er yfirmaður innkaupadeildar og gegnir forystuhlutverki í innkaupum hjá
Kópavogsbæ. Innkaupadeild heyrir undir fjármálasvið sem hefur yfirumsjón með fjármálastjórn Kópa-
vogs og veitir stjórnendum upplýsingar, stuðning og aðhald. Deildarstjóri heyrir undir sviðsstjóra
fjármálasviðs og starfar með stjórnendum á öllum sviðum Kópavogsbæjar.
Helstu verkefni og ábyrgð
· Uppbygging á nýrri innkaupadeild í samráði við sviðsstjóra og aðra stjórnendur.
· Umsjón og eftirlit með samningagerð og annarri framkvæmd innkaupa, útboða og
verðkannana á vegum bæjarins.
· Stefnumótun og áætlanagerð varðandi innkaup hjá Kópavogsbæ.
· Þjónusta, upplýsingagjöf og ráðgjöf við svið og stofnanir bæjarins vegna innkaupamála.
· Umsjón og ábyrgð á að innkaup bæjarins séu í samræmi við lög og reglur sem um þau gilda.
· Þróun innkaupaaðferða og rafrænnar stjórnsýslu á sviði innkaupamála.
· Dagleg verkstjórn innkaupadeildar.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Háskólapróf í verkfræði, viðskiptafræði, vörustjórnun eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
· Þekking og reynsla af innkaupum.
· Reynsla af því að leiða verkefni og vinna að umbótum.
· Þekking á upplýsingakerfum á sviði innkaupa er kostur.
· Þekking og reynsla af opinberum innkaupum er kostur.
· Reynsla á sviði innkaupa í stórri rekstrareiningu er kostur.
· Hæfni í mannlegum samskiptum og framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni.
· Frumkvæði, skipulagshæfni, sjálfstæði, umbótavilji og metnaður.
· Hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Umsóknarfrestur er til og með 15. mars n.k.
Allar nánari upplýsingar um starfið má finna á vef Kópavogsbæjar undir auglýst störf.
Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is.
Nánari upplýsingar veitir Pálmi Þór Másson, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs, palmi@kopavogur.is
Deildarstjóri
innkaupadeildar
Textaskrif og vinnsla á efni
inn á visiticeland.com
HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ:
• Textaskrif um land og þjóð í samræmi við ritstjórnarstefnu visitIceland.com
• Uppfærsla upplýsinga og leiðbeininga á visitIceland.com
• Samstarf við áfangastaðastofur, sveitarfélög og fyrirtæki í ferðaþjónustu um gerð efnis fyrir ferðamenn
• Þýðing og staðfærsla efnis og texta fyrir stafræna miðlun
Ferðamálastofa leitar að starfsfólki til efnisvinnslu og texta-
skrifa fyrir vefinn visiticeland.com og miðla tengdum honum.
Ferðamálastofa, Íslandsstofa og Atvinnuvega- og ný-
sköpunarráðuneytið hafa með samkomulagi sín á milli
ákveðið að vefurinn visitIceland.com verði helsta upp-
lýsingaveita fyrir ferðamenn á leið til landsins, á meðan dvöl
þeirra á landinu stendur og eftir að heim er komið. Er þá m.a.
horft til upplýsinga um framboð þjónustu, menningu,
sögu, náttúru, fjölbreytileika landsins, aðgengi ferðamanna-
staða, öryggi og umhverfisvernd, veður og færð á vegum.
Mikilvægt er að í slíkri miðlun upplýsinga sé ítarlegt og vel
unnið efni, bæði texti og myndir. Uppfærsla og endurnýjun á
efni þarf að vera stöðug til að miðillinn sé lifandi og
áreiðanlegur.
Leitað er að einstaklingum með víðtæka þekkingu á landi og
þjóð, menningu og staðarháttum og tengsl við ólík byggðar-
lög landsins.
Störfin eru á landsbyggðinni en að öðru leyti er um að ræða
störf án staðsetningar. Miðað er við að starfshlutfall sé að
lágmarki 50%.
Störf án staðsetningar á landsbyggðinni
HÆFNISKRÖFUR:
• Yfirgripsmikil reynsla af textaskrifum fyrir vef (leitarvélabestun) og þekking á sviði ferðaþjónustu, háskólapróf er kostur
• Mjög góð enskukunnátta og reynsla af skrifum á ensku. Þekking á fleiri tungumálum þ.m.t. íslensku er kostur
• Góð þekking á landi og þjóð, menningu og staðháttum og sérstöðu Íslands s.s. veðráttu og öryggi
• Góð tengsl við ólík byggðarlög landsins
• Tölvukunnátta og góð þekking á samfélagsmiðlum og vefmiðlun
• Frumkvæði og metnaður í starfi
• Rík þjónustulund og jákvæðni
• Hæfni í mannlegum samskiptum
Nánari upplýsingar
Umsóknum skal skila á netfangið
upplysingar@ferdamalastofa.is fyrir 11. mars nk.
Umsóknin skal m.a. innihalda starfsferilskrá ásamt
kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfni og
sýn á starfið.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem
fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi
stéttarfélag hafa gert.
Nánari upplýsingar veitir Inga Rós Antoníusdóttir
ingaros@ferdamalastofa.is
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi
hagvangur.is