Fréttablaðið - 06.03.2021, Blaðsíða 76
ÞAR ERU MARGAR
MAGNAÐAR MYNDIR
ALLT FRÁ EINSTAKLINGS
PORTRETTUM UPP Í STÓRVIÐ
BURÐI Í ÍSLANDSSÖGUNNI, EINS
OG HERNÁM BRETA 1940 OG
LÝÐVELDISSTOFNUNIN 1944.Hið þögla, en göfuga mál, er yfirskrift 40 ára afmælissýn-ingar Ljósmynda-safns Reykjavíkur sem verður opnuð
í dag, laugardaginn 6. mars. Þar eru
sýnd verk eftir Sigurhans Vignir
(1894-1975) sem starfaði sem ljós-
myndari frá 1917 til 1965, lengst af
í Reykjavík. Hann skildi eftir sig
verðmætt filmusafn sem varðveitt
er á Ljósmyndasafni Reykjavíkur í
Borgarsögusafni. Í því eru ríf lega
40 þúsund myndir, f lestar teknar
á árunum 1940-1965. Sýningargerð
önnuðust: Gísli Helgason, Sigríður
Kristín Birnudóttir, Kristín Hauks-
dóttir, Helga Maureen Gylfadóttir
og Sigrún Kristjánsdóttir.
Vignir notaði nafnið Vignir og
þess má geta að nafnið er ekki fall-
beygt. Um Vignir segir Gísli: „Vignir
var bóndasonur úr Laxárdal, einn
af níu systkinum. Hann fór suður til
Reykjavíkur um 1917 til að læra ljós-
myndun. Sneri síðan aftur í sveitina
í nokkur ár, opnaði ljósmyndastofu
á Stykkishólmi en fluttist til Reykja-
víkur 1926 og opnaði ljósmynda-
stofu með Óskari Gíslasyni. Hann
opnaði síðan sína eigin ljósmynda-
stofu í Reykjavík árið 1929.“
Alls kyns verkefni
Ragnar Vignir, sonur Vignir, færði
Ljósmy nd a sa f ni Reyk jav ík u r
filmusafn föður síns árið 2006.
„Þetta filmusafn, 40.000 myndir,
er frá árunum 1940-1966. Safn hans
fyrir þann tíma er að stórum hluta
glatað, fyrir utan tímabilið sem
hann vann með Óskari Gíslasyni,
en það safn er einnig varðveitt hér
á safninu,“ segir Gísli. „Og óhætt
Þetta eru algjörlega magnaðar heimildir
Á afmælissýningu Ljósmyndasafns Reykjavíkur eru myndir eftir ljósmyndarann Vignir sem skildi eftir
sig verðmætt filmusafn. Myndefnið er afar fjölbreytt. Myndvarpssýning þar sem fjallað er um myndir.
Mynd eftir Vignir af skautahlaupi á Tjörninni um 1950.
Verkamenn við vinnu í Malbikunarstöð Reykjavíkur.
Vignir. Myndin er tekin árið 1955. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
er að segja að myndefnið sé afar
fjölbreytt, enda virðist Vignir hafa
tekið að sér öll verkefni sem voru í
boði; tók portrettmyndir af fólki,
myndaði brúðkaup, skírnir, afmæli
einstaklinga og fyrirtækja. Þá
myndaði Vignir mikið fyrir Reykja-
víkurborg, ýmsar framkvæmdir,
fyrirtæki í borginni og skólastarf.
Þetta eru algjörlega magnaðar
heimildir,“ bætir Gísli við.
Magnaðar myndir
Að sögn Gísla má skipta sýning-
unni í fjóra hluta: „Stærsti hluti
salarins fer undir ríf lega 100 nýjar
stækkanir sem ljósmyndarinn
okkar, Sigríður Kristín, prentaði út.
Þar eru margar magnaðar myndir
allt frá einstaklingsportrettum
upp í stórviðburði í Íslandssög-
unni, eins og hernám Breta 1940
og lýðveldisstofnunin 1944. Þá
fá atvinnulífsmyndir einnig gott
pláss á sýningunni. Síðan verðum
við með rými sem er helgað orginal
ljósmyndum eftir Vignir, meðal
annars má þar sjá handlitaðar
myndir og portrett, að meginhluta
eldra efni en nýju stækkanirnar.
Í myrkvuðum Kubbnum verður
svo myndvarpssýning þar sem við
fjöllun nánar um nokkrar myndir
eða myndasyrpur. Þar verður
meðal annars fjallað í stuttu máli
um braggahverfi í Reykjavík, Tív-
olí, innréttingar, gæsluvelli, hand-
litaðar myndir og f leira.
Síðan var Vignir leikhúsljós-
myndari til margra ára og mynd-
aði meðal annars fyrir Leikfélag
Reykjavíkur og Þjóðleikhúsið.
Myndir sem meðal annars voru
notaðar í sýningaskrár og birtust
sem kynningarmyndir í dagblöð-
um. Þeim hluta ferilsins gerum við
skil með því að láta um 400 leik-
húsmyndir rúlla á f latskjá.“
Sý ning in í Ljósmy ndasaf ni
Reykjavíkur í Tryggvagötu er opin
alla daga og stendur til og með
19. september á þessu ári.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Gísli Helgason er í hópi þeirra sem sáu um sýningargerð en sýningin stendur fram í september. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
www.borgarsogusafn.is
Sjó
min
jas
afn
ið í
Re
ykj
aví
k
frá
bæ
rum
Lan
dná
ms
sýn
ing
in
safnE
itt
Árb
æja
rsa
fn
Ljó
sm
ynd
asa
fn R
eyk
jav
íku
r
á fi
mm
Við
ey
stö
ðu
m
6 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R44 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING