Fréttablaðið - 20.03.2021, Síða 6
Á Heathrow og öðrum brottfararstöðum til Íslands bera flugfélög nú ábyrgð á COVID-vottorðum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
RAFMAGNAÐ ÆVINTÝRI MEÐ ALVÖRU 4X4
Einu rafknúnu Plug-In Hybrid jepparnir í sínum stærðarflokki með lágt drif.
Ótrúlegt verð á bílum hlöðnum lúxusbúnaði.
JEEP COMPASS PLUG-IN HYBRID VERÐ 5.999.000 KR.* JEEP RENEGADE PLUG-IN HYBRID VERÐ 5.499.000 KR.*
*G
ildir m
eðan birgðir endast, hvítur R
enegade, svartur Com
pass Lim
ited.
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
GERIÐ VERÐSAMANBURÐ
Þrjú í fréttum
Formaður,
forstöðumaður
og prófessor
Valmundur Valmundsson
formaður Sjómannasambandsins
segir félagsmenn
sína fullyrða að
þeim hafi verið
greitt alltof lítið
fyrir sinn hlut í
loðnuvertíðinni
sem nú er lokið.
„Við teljum bara
mjög óeðlilegt að það sé hægt að
borga norskum skipum 220-230
krónur á kíló fyrir loðnu sem er
ekki eins verðmæt og loðnan sem
íslensku skipin voru að veiða. Þau
fá líklega um hundrað krónur.“
Laufey Guðjónsdóttir
forstöðumaður Kvikmynda
miðstöðvarinnar
segir Ísland ekki í
tísku heldur snúist
velgengnin um
hæfileika íslensks
kvikmyndagerð-
arfólks og góðan
stuðning hins opin-
bera, en stuttmyndin Já-fólkið er
tilnefnd til Óskarsverðlauna. Þá
var lagið Húsavík úr Eurovision-
kvikmyndinni tilnefnt sem besta
lagið. „Þetta varpar ekki aðeins
ljóma á myndina sem slíka, heldur
Ísland allt,“ segir Laufey, um hvað
tilnefning Já-fólksins þýði.
Magnús Tumi
Guðmundsson
prófessor í jarðeðlisfræði
segir Reykjanes-
skaga meira og
minna allan
eldbrunninn,
þar hafi runnið
hraun eftir að
ísöld lauk. Elstu
hraunin á skagan-
um hafi runnið um 800
í Brennisteinsfjöllum. Síðan hafi
lítið gerst í 100 til 150 ár í Krýsuvík
og á nærliggjandi svæðum. Engar
gossprungur liggi um Grinda-
vík enda yrði bærinn tafarlaust
rýmdur væri hætta á gosi þar.
TÖLUR VIKUNNAR 14.03.2021 TIL 20.03.2021
1
ár var liðið í vikunni frá því fyrst
var sett á samkomubann á
Íslandi. 5
manns var bjargað
um borð í þyrlu af
lekum báti út af
Hornströndum.
2
starfsmenn greindust
með berkla á hjúkrunarheimili
í Reykjanesbæ.
6.000
milljónir króna eru
óinnleystar af ferða-
gjöfinni frá í fyrra.
700
manns
skoðuðu
hvalshræ á
Suðurnesjum
um síðustu
helgi.
FLUGMÁL „Í raun er þetta verklag
sem við erum að fylgja og þessar
reglur setja bara skýrari ramma,“
segir Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Icelandair, um hertar
reglur í farþegaflugi til Íslands.
Í bréfi sem Samgöngustofa sendi
f lugrekendum í fyrradag segir að
íslensk stjórnvöld hyggist „setja
nýjar reglur um skyldu f lugrek-
enda og umráðenda loftfara sem
f ljúga með farþega til Íslands, til
að kanna áður en farþegar fara um
borð í loftfar hvort þeir hafi fullnægt
skyldu til forskráningar og hafi til-
skilið viðurkennt vottorð um bólu-
setningu gegn COVID-19, vottorð
um að COVID-19 sýking sé afstaðin
eða vottorð eða staðfestingu á nei-
kvæðri niðurstöðu prófs gegn
COVID-19,“ eins og segir í bréfinu.
„Flugrekendum verður jafn-
framt gert skylt að synja farþega um
flutning, geti farþegi ekki framvísað
slíku vottorði eða staðfestingu,“
segir áfram í bréfinu. Slík synjun
feli ekki í sér neitun um far á grund-
velli reglugerðar um skaðabætur og
aðstoð til handa farþegum í f lugi
sem neitað er um far og þegar flugi
er aflýst. Þetta þýðir að sé farþega
meinað að koma um borð vegna
annmarka á COVID-vottorði þurfi
f lugfélagið ekki að endurgreiða við-
komandi farmiðann.
„Þá tekur skylda til að synja far-
þega um f lutning ekki til farþega
sem eru handhafar íslenskra vega-
bréfa,“ er tekið fram. Þannig þarf
f lugfélagið ekki að neita þeim sem
eru með íslensk vegabréf um f lug
til Íslands jafnvel þótt eitthvað sé
athugavert við COVID-vottorð við-
komandi.
Þeim sem f lytur til Íslands far-
þega sem ekki getur framvísað
vottorði verður skylt að sjá til þess
að farþeginn verði f luttur til baka.
„Brot gegn framangreindum
skyldum geta varðað flugrekanda/
umráðanda loftfars stjórnvalds-
sektum allt að 300 þúsund íslensk-
um krónum vegna sérhvers far-
þega,“ segir í bréfinu.
„Þótt það sé ekki ákjósanlegt að
sektarheimildum sé komið á eða
beitt, þá eru þessar reglur í sam-
ræmi við reglur sem ýmis önnur
ríki hafa sett, til dæmis Danmörk
og Holland þar sem okkur ber að
tryggja að allir farþegar sem fara
um borð hjá okkur séu með gild
vottorð,“ segir Ásdís Ýr Pétursdóttir.
Búist sé við því að nýju reglurnar
taki gildi þegar næsta miðvikudag.
Ytra eru það stundum ekki starfs-
menn Icelandair sem sjá um innrit-
un heldur þjónustuaðilar þar. Spurð
hvort þetta valdi Icelandair engum
vandræðum, segir Ásdís Ýr farið
eftir ferlum sem Icelandair setji.
„Við erum í reglulegum samskipt-
um og uppfærum og þjálfum fólk
eftir því sem við á. Það er eins og í
öllum f lugrekstri í þessu ástandi,
hlutirnir eru að breytast hratt og
við bregðumst hratt við og vinnum
þetta með okkar þjónustuaðilum,“
segir upplýsingafulltrúi Icelandair.
gar@frettabladid.is
Flugfélög borgi sekt flytji þau
vottorðalaust fólk til landsins
Stjórnvöld boða hertar reglur vegna farþegaflugs. Flugrekendum verður gert að hleypa ekki fólki á leið
til landsins um borð, geti það ekki framvísað vottorði vegna COVID-19. Í slíkum tilvikum þurfi flug-
félögin ekki að endurgreiða farmiða. Flugfélögin geta átt von á 300 þúsund króna sekt á hvern farþega.
Það er eins og í
öllum flugrekstri í
þessu ástandi, hlutirnir eru
að breytast hratt og við
bregðumst hratt við.
Ásdís Ýr Péturs-
dóttir, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair
2 0 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð