Fréttablaðið - 20.03.2021, Side 46

Fréttablaðið - 20.03.2021, Side 46
FJARÐABYGGÐ fjardabyggd.is Endurskoðun aðalskipulags Fjarðabyggðar Unnið hefur verið að mótun tillögu um endurskoðað aðalskipulag Fjarðabyggðar í samræmi við lýsingu verkefnisins, sem var kynnt vorið 2020. Nú liggja fyrir drög til kynningar á vinnslustigi en slík kynning er liður í samráði við íbúa og aðra hagsmunaaðila um efni og áherslur í tillögunni eins og kveðið er á um í 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Mikilvægt er að íbúar og hagsmunaaðilar kynni sér tillögudrögin og bendi á það sem betur má fara. Tillögudrögin eru sett fram í greinargerð og uppdráttum og með henni fylgir umhversskýrsla í samræmi við lög um umhversmat áætlana nr. 105/2006. Öll gögn má skoða á vefnum https://ardabyggd.alta.is Tillagan mun einnig vera aðgengileg á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð og í þjónustugáttum bókasafna dagana 17. til 31. mars næstkomandi. Opið hús verður að Búðareyri 1 á Reyðarrði milli klukkan 14:00 og 18:00 þann 24. mars, þar sem skipulagsfulltrúi verður til viðtals um efni tillögunnar. Ábendingar má senda meðan á kynningartímanum stendur í tölvupósti til skipulagsfulltrui@ardabyggd.is eða í bréfpósti til skipulagsfulltrúa. Umhvers- og Skipulagssvið Fjarðabyggðar Laus störf sérfræðinga á skrifstofu háskóla og vísinda Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir laus til umsóknar störf sérfræðinga á skrifstofu háskóla og vísinda. Nánar um störfin: Um full störf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Við ráðningu er tekið mið af jafn- réttisáætlun ráðuneytisins. Til greina kemur að störfin verði skilgreind sem störf án staðsetningar í samræmi við stefnumótandi byggðaáætlun til 2024. Nánari upplýsingar um störfin veitir Svava Þorsteinsdóttir, mannauðsstjóri, í gegnum netfangið svava.thorsteinsdottir@mrn.is. Umsóknum um störfin þurfa að fylgja ítarlegar ferilsskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu um- sóknar og rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda í störfin. Umsóknum skal skilað rafrænt á heimasíðu Alfred.is eða í bréfpósti á Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavík. Umsóknir þar sem óskað er nafnleyndar eru ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl 2021. Sérfræðingur í háskóla- og vísindamálum • Verkefnavinna, stefnumótun og áætlanagerð á sviði háskóla- og vísindamála. • Þátttaka í alþjóðasamstarfi. • Sjá nánar auglýsingu í fullri lengd á Starfatorgi og Alfred.is Hæfni- og menntunarkröfur: • Háskólamenntun á meistara- eða doktorsstigi sem nýtist í starfi. • Þekking og reynsla af gæðastarfi og innri stjórnsýslu háskóla eða vísindastofnana. • Góð samskiptahæfni. • Gerð er krafa um afburða ritfærni og góða tjáningu í íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli. • Sjá nánar auglýsingu í fullri lengd á Starfatorgi og Alfred.is Sérfræðingur • Þátttaka í stefnumótun og áætlanagerð á sviði háskóla- og vísindamála. • Svörun stjórnsýsluerinda. • Aðstoð við skrifstofustjóra. • Sjá nánar auglýsingu í fullri lengd á Starfatorgi og Alfred.is Hæfni- og menntunarkröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. • Þekking og reynsla af starfssviði háskóla eða vísindastofnana er kostur. • Góð samskiptahæfni. • Gerð er krafa um góða ritfærni og kunnáttu í íslensku og ensku. Kunnátta í einu Norðurlandamáli er æskileg. • Sjá nánar auglýsingu í fullri lengd á Starfatorgi og Alfred.is Matartæknir Við leitum af matartækni eða reynslumiklum starfs- manni til að slást í hóp góðra starfsmanna í mötuneyti Reykjalundar. Viðkomandi mun starfa undir stjórn matreiðslumeistara og þarf að geta sinnt afleysingu í fjarveru hans. Um fullt starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. júlí 2021. Krafist er góðrar hæfni í mannlegum samskiptum, frum- kvæði og sjálfstæðis í vinnubrögðum. Umsóknarfrestur er til 5. apríl 2021 Upplýsingar um starfið gefa Gunnar Jónsson, yfirmat- reiðslumeistari í síma 585 2014 og Guðbjörg Gunnars- dóttir, mannauðsstjóri í síma 585 2143 eða í gegnum netfangið gudbjorg@reykjalundur.is Umsóknarform og upplýsingar um Reykjalund má finna á heimasíðunni: www.reykjalundur.is 12 ATVINNUBLAÐIÐ 20. mars 2021 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.