Fréttablaðið - 20.03.2021, Qupperneq 50
Kleifakór 2-4. Breytt deiliskipulag.
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 9. mars 2021 með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulags-
laga nr. 123/2010 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi við Kleifakór 2-4. Í breytingunni
felst að skipulagsmörk gildandi deiliskipulags Hörðuvalla (Vatnsenda) sem samþykkt var í
bæjarráði Kópavogs 24. júlí 2003 víkka til norðausturs og að skilgreind verði ný lóð, Kleifakór
2-4 innan skipulagssvæðisins. Gert er ráð fyrir að lóðin verði 2.480 m2 að flatarmáli og að á
henni verði heimilt að reisa búsetukjarna með 7 minni íbúðum fyrir fatlaða og aðstöðu fyrir
starfsfólk. Nýbyggingin verði allt að 600 m2 að flatarmáli og á einni hæð. Þá er gert ráð fyrir
15 bílstæðum á austurhluta lóðarinnar.
Breytingin er kynnt samhliða tillögu að nýju Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 þar sem land-
notkun á lóðinni er skilgreind sem íbúðabyggð.
Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:2000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags.
9. mars 2021. Nánar er vísað til kynningargagna.
Ofangreind tillaga er aðgengileg á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is. Ef óskað er eftir
nánari upplýsingum um tillöguna er hægt að senda fyrirspurn á starfsmenn skipulagsdeildar
Umhverfissviðs á netfangið skipulags@kopavogur.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna
að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist
skriflega til skipulagsdeildar Umhverfissviðs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið
skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 15:00 fimmtudaginn 6. maí 2021.
Skipulagsstjóri Kópavogs
Auglýsing um breytt
deiliskipulag í Kópavogi
kopavogur.is
Garðabær og Mosfellsbær - útboð
Garðabær og Mosfellsbær óska eftir tilboðum í verkið
Sorphirða Garðabæjar og
Mosfellsbæjar 2021 - 2023.
Verkið fellst í tæmingu á sorp- og endurvinnsluílátum
við íbúðarhúsnæði í Garðabæ og Mosfellsbæ ásamt
flutningi til móttökustöðvar.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Útboðsgögn fást send með beiðni á utbod@efla.is.
Gefið upp nafn samskiptaaðila í útboði, símanúmer
og netfang.
Tilboðum skal skilað til EFLU verkfræðistofu,
Lyngháls 4, Reykjavík fyrir kl 11.00 þriðjudaginn
20. apríl 2021 og verða þau opnuð þar.
MATVÍS
AÐALFUNDUR
Aðalfundur MATVÍS ( Matvæla-og veitingafélags
Íslands ) verður haldinn að Stórhöfða 31 miðvikudaginn
21. apríl n.k. kl. 16.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Önnur mál.
Ath: Grímuskylda og öllum
sóttvarnarreglum fylgt.
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
21361 Markaðskönnun vegna húsnæðis
stofnana ríkisins á Akranesi
Afmörkun verkefnis
Íslenska ríkið áformar að leita eftir húsnæði til langtíma-
leigu (25 ár auk mögulegrar framlengingar) á Akranesi fyrir
stofnanir ríkisins. Gerð er krafa um nútímalegt, verkefna-
miðað og sveigjanlegt húsnæði sem yrði aðlagað fyrir ríkis-
stofnanir á Akranesi.
Markmið
Markmiðið er að kanna hvort á Akranesi sé mögulega
heppilegt húsnæði sem gæti hentað stofnunum ríkisins.
Miðað er við að taka á leigu ef heppilegt húsnæði finnst, eitt
rými (eitt hús, samliggjandi rými og eða nokkrar samliggj-
andi hæðir/svæði) um 1.300 fermetra nettó (um 1.7700 m²
brúttó) fyrir fimm stofnanir ríkisins. Gerð er krafa um góða
staðsetningu á Akranesi í nálægð við helstu aðalgötur/
tengibrautir og almenningssamgöngur.
Ef sýnileg tækifæri verða í boði hyggst ríkið auglýsa eftir
húsnæði til leigu eða aðila sem getur annast byggingu og
hönnun viðkomandi húsnæðis og séð um rekstur þess.
Viðkomandi skal geta afhent húsnæði fullbúið, a.m.k. að
hluta, eigi síðar en á árinu 2023.
Nánari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður
að uppfylla verða aðgengilegar í hinu rafræna útboðskerfi
TendSign, laugardaginn 20. mars 2021 undir heitinu:
21361 RFI: Markaðskönnun vegna húsnæðis stofnana
ríkisins á Akranesi.
Fyrirspurnir varðandi verkefni 21361 skulu einnig berast
rafrænt í gegnum Tendsign til og með 12. apríl 2021 og
verða svör birt þar.
Skilafrestur er til og með 16. apríl 2021 kl. 12:00 í gegnum
TendSign.
Leiðbeiningar varðandi útboðskerfið er að finna á heimasíðu
Ríkiskaupa.
Sjá frekari upplýsingar á vefsíðunni: www.utbodsvefur.is
Markaðskönnun
Þú ert ráðin/n!
FAST
Ráðningar
Uppáhaldssetningin okkar hjá FAST ráðningum
www.fastradningar.is