Fréttablaðið - 20.03.2021, Síða 54
A U S T U R HÖ F N
H a f i ð s a m b a n d o g b ó k i ð s k o ð u n
a u s t u r h o f n . i s
G L Æ S I L E G A R Í B Ú Ð I R
Ný viðmið í hönnun og þjónustu
Austurhöfn markar nýja tíma í borginni. Við Reykjavíkurhöfn
hefur risið glæsileg bygging með sjötíu og einni íbúð þaðan
sem útsýnið er óviðjafnanlegt. Á jarðhæð hússins verða
veitingastaðir og verslanir sem vísa út á hafnarsvæðið
og Reykjastræti sem er nýjasta göngugata Reykjavíkur.
Nálægðin við gömlu höfnina, Hörpu tónlistarhús, fimm
stjörnu Reykjavík Edition hótelið, spennandi veitingastaði
og þekktar verslanir gerir þessa íbúðabyggingu einstaka
í borgarumhverfi Reykjavíkur. Mikill metnaður hefur verið
lagður í hönnun íbúða, frágang og efnisval íbúða sem á sér
ekki hliðstæðu á íslenskan mælikvarða.
Aukin þjónusta í boði
Í Austurhöfn eru sett ný viðmið hvað varðar metnaðarfulla
þjónustu við íbúa. Í framtíðinni verða allar sameignir
þjónustaðar af starfsmanni húsfélags sem jafnfamt mun sjá
um allt viðhald. Þar að auki munu íbúar Austurhafnar hafa
sérstakt aðgengi að fjölbreyttri þjónustu Reykjavik Edition
á vildarkjörum, s.s. kaup á veitingum, leigubílaþjónstu,
þrifum og þvottaþjónustu. Einnig býðst íbúum Austurhafnar
afnot af líkamsrækt og heilsulind hótelsins á sérkjörum
ásamt því að hægt verður að panta herbergisþjónstu af
matseðli Reykjavík Edition í íbúðir Austurhafnar.
Innbyggð snilld
Allar íbúðir eru búnar snjall heimilis kerfi sem býður upp á
ótalmargar leiðir til að laga heimilið að þörfum íbúa með
stýringu ljósa, hitastigi, gluggatjöldum, sjónvarpi o.fl.
Nærandi nágrenni
Í næsta nágrenni er fjölbreytt flóra matsölustaða sem mun
aukast til muna eftir að allt svæðið verður uppbyggt.
Á neðri hæðum Austurhafnar munu koma veitingastaðir í
einskonar mathöll þar sem auðvelt verður að grípa með
rétti til að taka með eða borða á staðnum. Einnig verður
stutt að ganga yfir í Edition hótelið sem mun skarta
glæsilegum veitingastöðum og börum.
Með útsýni að Hörpunni
103 fm
Íbúðirnar liggja meðfram göngu götu
er leiðir að Hörpu. Stofan er opin og
stór og baðherbergið rúmgott með
fataherbergi og stóru baðherbergi.
Tvennar svalir opna íbúðina í tvær
áttir og gefa góða birtu.
Ótrúlega notalegar íbúðir fáanlegar
frá annari hæð upp að fimmtu.
Verð frá 95 millj.
Við Reykjastræti og inngarð
Austurhafnar 130 fm
Stórar og einstakar 2ja herbergja
íbúðir og einstaklega vel skipu
lagðar. Stofan er opin og stór
og baðherbergið rúmgott með
fataherbergi og stóru baðherbergi.
Tvennar svalir opna íbúðina í tvær
áttir og gefa góða birtu.
Fáanlegar frá 2. upp að 5. hæð.
Verð frá 120 millj.
Við inngarð Austurhafnar
81 fm
Úr forstofunni er gengið beint
inn í bjarta og stóra stofu. Úr
svefnherberginu er gengt út á
stórar svalir sem ná yfir allan
endavegginn og snúa að líflegum
miðbænum.
Fáanlegar á annarri, þriðju
og fjórðu hæð
Verð frá 80,5 millj.
Íbúðir eru fáanlegar al l t f rá 2ja herbergja íbúðum og stærr i . Hér eru nokkur dæmi.
Fasteignasalan Miklaborg hefur umsjón með sölu eigna í Austurhöfn.