Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2020, Side 8

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2020, Side 8
Höfundur: Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir Þann 25. maí 2020 var George Flynn myrtur af lögreglumanni í Minneapolis í Bandaríkjunum. Morðið leiddi af sér óeirðir sem vöktu öldur úti um allan heim — meðal annars á Íslandi. Friðsamleg mótmæli breyttust fljótt í alvarleg átök í Bandaríkjunum, þar sem yfirvöld skipuðu lögreglu að beita valdi gegn mótmælendum og kölluðu til hervald. Þessi átök og það sem gerðist á sér langa sögu en lögregla og yfirvöld víða um heim hafa í áraraðir og áratugi beitt svart fólk kerfisbundnu lögregluofbeldi. Það ofbeldi sem svart fólk hefur þurft að lifa við er eitt og sér nóg til að valda mikilli reiði, sér í lagi þegar fólk dregur í efa að það hafi upplifað það á eigin skinni. Þetta er eitthvað sem hinsegin fólk þekkir vel — en oft og tíðum hefur fólk reynt að réttlæta fordóma sína gegn okkur eða gert lítið úr atburðum eða fordómum gegn okkur. Réttindabarátta hinsegin fólks er samofin réttindabaráttu annarra minnihlutahópa en svart hinsegin fólk, heimilislaust fólk, kynlífsverkafólk og hinsegin fólk á jaðrinum átti stóran þátt í því að hrinda af stað byltingunni sem leiddi til nútímaréttindabaráttu og baráttu gegn lögregluofbeldi. Stonewall-uppþotin Ekki er hægt að gleyma því ofbeldi sem lögreglan beitti borgara í Stonewall Inn í Bandaríkjunum sem leiddi til Stonewall-óeirðanna sjálfra árið 1969 — en þær hafa gjarnan verið taldar marka byrjun þess sem við þekkjum sem Pride. Óeirðirnar leiddu af sér fyrstu formlegu kröfugönguna af þessu tagi á Christopher-stræti í New York-borg sem var nefnd Christopher Street Liberation Day Parade. Ómögulegt er að segja nákvæmlega til um hver atburðarásin var þetta örlagaríka kvöld. Margar sögur fara af því hvernig óeirðirnar byrjuðu og sögusagnir eru mismunandi eftir því við hvern er rætt. Ekki er þó hægt að neita því að sá hópur sem sótti Stonewall- barinn var fjölbreyttur hópur hinsegin fólks, sem var oft og tíðum útskúfað úr samfélaginu vegna fordóma og ofbeldis. Þar á meðal voru svartar trans konur, kynsegin fólk og dragdrottningar — og má þar sérstaklega nefna Mörshu P. Johnson og Sylviu Riveru. Sögur segja meðal annars að Marsha hafi klifið ljósastaur fyrir utan Stonewall-barinn þegar óeirðirnar áttu sér stað og hent tösku með múrsteinum ofan á húddið á lögreglubíl — en þekkt var á þessum tíma að kynlífsverkafólk geymdi múrsteina í töskum sínum til að verja sig gegn ofbeldisfullum einstaklingum. Marsha P. Johnson var svört kynlífsverkamanneskja sem á sínum tíma skilgreindi sig sem dragdrottningu. Það gerði Sylvia Rivera líka og báðar voru þær meðal stofnenda Gay Liberation Front og Street Transvestite Action Revolutionaries (STAR), sem var sett á fót til að hjálpa heimilislausu hinsegin fólki. Óljóst er hvernig þær myndu nákvæmlega skilgreina sig í dag en það hefur gjarnan verið sagt að þær hafi verið trans konur. Báðar töluðu þær um að þær væru dragdrottningar, klæðskiptingar eða bara einfaldlega þær sjálfar. Kyntjáning þeirra var nær alltaf kvenlæg og þær notuðust við kvenkyns fornöfn. Það sem þær minna okkur á er að kynvitund og kyntjáning er oft og tíðum flókin og erfitt er að yfirfæra nútímaskilgreiningar á fólk sem ólst upp í allt öðrum tíðaranda fyrir rúmum fimmtíu árum síðan. Bylting okkar allra Hvað sem því líður er augljóst að Marsha og Sylvia tilheyrðu báðar trans samfélaginu líka og þær voru mikill drifkraftur í óeirðunum sjálfum. Báðar léku þær svo lykilhlutverk í því að vekja athygli á málefnum hinsegin fólks í þeim mótmælum og viðburðum sem áttu sér stað Hinsegin barátta fyrir frelsi allra 8

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.