Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2020, Page 8
Höfundur: Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir
Þann 25. maí 2020 var
George Flynn myrtur af
lögreglumanni í Minneapolis
í Bandaríkjunum. Morðið
leiddi af sér óeirðir sem
vöktu öldur úti um allan
heim — meðal annars á
Íslandi. Friðsamleg mótmæli
breyttust fljótt í alvarleg
átök í Bandaríkjunum,
þar sem yfirvöld skipuðu
lögreglu að beita valdi gegn
mótmælendum og kölluðu til
hervald.
Þessi átök og það sem gerðist
á sér langa sögu en lögregla
og yfirvöld víða um heim
hafa í áraraðir og áratugi
beitt svart fólk kerfisbundnu
lögregluofbeldi. Það ofbeldi
sem svart fólk hefur þurft
að lifa við er eitt og sér nóg
til að valda mikilli reiði, sér í
lagi þegar fólk dregur í efa að
það hafi upplifað það á eigin
skinni. Þetta er eitthvað sem
hinsegin fólk þekkir vel — en
oft og tíðum hefur fólk reynt
að réttlæta fordóma sína
gegn okkur eða gert lítið úr
atburðum eða fordómum
gegn okkur. Réttindabarátta
hinsegin fólks er samofin
réttindabaráttu annarra
minnihlutahópa en svart
hinsegin fólk, heimilislaust
fólk, kynlífsverkafólk og
hinsegin fólk á jaðrinum átti
stóran þátt í því að hrinda af
stað byltingunni sem leiddi
til nútímaréttindabaráttu og
baráttu gegn lögregluofbeldi.
Stonewall-uppþotin
Ekki er hægt að gleyma því
ofbeldi sem lögreglan beitti
borgara í Stonewall Inn í
Bandaríkjunum sem leiddi til
Stonewall-óeirðanna sjálfra
árið 1969 — en þær hafa
gjarnan verið taldar marka
byrjun þess sem við þekkjum
sem Pride. Óeirðirnar leiddu
af sér fyrstu formlegu
kröfugönguna af þessu tagi
á Christopher-stræti í New
York-borg sem var nefnd
Christopher Street Liberation
Day Parade.
Ómögulegt er að segja
nákvæmlega til um hver
atburðarásin var þetta
örlagaríka kvöld. Margar
sögur fara af því hvernig
óeirðirnar byrjuðu og
sögusagnir eru mismunandi
eftir því við hvern er rætt. Ekki
er þó hægt að neita því að sá
hópur sem sótti Stonewall-
barinn var fjölbreyttur
hópur hinsegin fólks, sem
var oft og tíðum útskúfað úr
samfélaginu vegna fordóma
og ofbeldis. Þar á meðal voru
svartar trans konur, kynsegin
fólk og dragdrottningar — og
má þar sérstaklega nefna
Mörshu P. Johnson og Sylviu
Riveru.
Sögur segja meðal annars að
Marsha hafi klifið ljósastaur
fyrir utan Stonewall-barinn
þegar óeirðirnar áttu sér
stað og hent tösku með
múrsteinum ofan á húddið
á lögreglubíl — en þekkt
var á þessum tíma að
kynlífsverkafólk geymdi
múrsteina í töskum sínum
til að verja sig gegn
ofbeldisfullum einstaklingum.
Marsha P. Johnson var svört
kynlífsverkamanneskja sem
á sínum tíma skilgreindi
sig sem dragdrottningu.
Það gerði Sylvia Rivera líka
og báðar voru þær meðal
stofnenda Gay Liberation
Front og Street Transvestite
Action Revolutionaries
(STAR), sem var sett á fót til að
hjálpa heimilislausu hinsegin
fólki.
Óljóst er hvernig þær
myndu nákvæmlega
skilgreina sig í dag en það
hefur gjarnan verið sagt að
þær hafi verið trans konur.
Báðar töluðu þær um að
þær væru dragdrottningar,
klæðskiptingar eða bara
einfaldlega þær sjálfar.
Kyntjáning þeirra var nær
alltaf kvenlæg og þær
notuðust við kvenkyns
fornöfn. Það sem þær minna
okkur á er að kynvitund og
kyntjáning er oft og tíðum
flókin og erfitt er að yfirfæra
nútímaskilgreiningar á fólk
sem ólst upp í allt öðrum
tíðaranda fyrir rúmum
fimmtíu árum síðan.
Bylting okkar allra
Hvað sem því líður er augljóst
að Marsha og Sylvia tilheyrðu
báðar trans samfélaginu
líka og þær voru mikill
drifkraftur í óeirðunum
sjálfum. Báðar léku þær svo
lykilhlutverk í því að vekja
athygli á málefnum hinsegin
fólks í þeim mótmælum og
viðburðum sem áttu sér stað
Hinsegin
barátta fyrir
frelsi allra
8