Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2020, Síða 9

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2020, Síða 9
í kjölfarið. Óeirðirnar hafa verið mjög umdeildar innan hinsegin samfélagsins þar sem mismunandi hópar hafa reynt að eigna sér þær á einn eða annan hátt, eða jafnvel þurrka út þátttöku trans fólks, svarts fólks, heimilislausra og kynlífsverkafólks. Það hefur oft valdið miklum sárindum innan hinsegin samfélagsins og myndað ákveðið stigveldi um hver má og má ekki vera hluti af byltingunni. Allar slíkar hugmyndir hundsa það sem óeirðirnar stóðu virkilega fyrir en það voru mótmæli gegn lögregluofbeldi og þeim fordómum sem hinsegin fólk upplifði þá og gerir enn þann dag í dag. Augljóst er að fjölbreyttur hópur hinsegin fólks kom að óeirðunum og mörg þeirra upplifðu ofbeldi og lifðu við heimilisleysi sökum fordóma og útskúfunar. Andi mótmælanna og það sem varð til þann dag, og leiðir hinsegin baráttuna enn í dag, er að mínu mati mun mikilvægara en hver kastaði fyrsta múrsteininum eða hver var hvar hvaða kvöld. Hinseginparadísin Ísland? Þrátt fyrir að þessir viðburðir sýnist oft vera okkur fjarlægir hér á Íslandi þá hefur hinsegin fólk hérlendis sannarlega þurft að berjast fyrir sínum réttindum og fyrstu kröfugöngurnar á Íslandi börðust meðal annars fyrir atvinnuöryggi á vinnustöðum. Ýmislegt hefur runnið til sjávar síðan þá og þrátt fyrir að Ísland hafi leitt í gegn mikilvægar réttindabætur fyrir hinsegin fólk undanfarna áratugi þá er enn langt í land. Hinsegin fólk, sérstaklega flóttafólk, hælisleitendur, trans fólk og intersex fólk, upplifir enn mikla fordóma á Íslandi og lagaleg réttindi þess hafa ekki verið tryggð til fulls. Ekki þarf að líta lengra aftur en til ársins 2019 til að sjá að hinsegin manneskja var handtekin af lögreglunni í sjálfri Gleðigöngu Hinsegin daga og á undanförnum árum hafa sést dæmi um að hinsegin flóttafólki og hælisleitendum hafi verið vísað úr landi af lögreglu og yfirvöldum. Fordómar leynast enn víða, til dæmis innan íþróttaheimsins, og hinsegin fólk má ekki gefa blóð líkt og annað fólk sökum hinseginleika þess. Það er því mikilvægt nú sem áður að við gleymum ekki sögunni og öllum þeim fjölbreytta hópi sem hefur komið að baráttunni hérlendis. Þrátt fyrir að Hinsegin dagar séu vissulega hátíð þar sem mikilvægt er að fagna og sletta aðeins úr klaufunum þá er sömuleiðis mikilvægt að við sofnum aldrei á verðinum. Víðs vegar um heim eru að rísa undiröldur fordóma og haturs og hinsegin fólk — sér í lagi hinsegin fólk sem tilheyrir fleiri minnihlutahópum líkt og svart trans fólk — er hvað viðkvæmast. Baráttan fram undan Á Íslandi er slík undiralda líka að rísa en í forsetakosningunum 2020 hlaut Guðmundur Franklín yfir 13.000 atkvæði. Hann hefur verið kenndur við hægrisinnaðan popúlisma í anda Donalds Trumps Bandaríkjaforseta og Bolsonoro, forseta Brasilíu. Það er mikið áhyggjuefni að svo stór hópur á Íslandi finni sig knúinn til að styðja við orðræðu sem beinist gegn réttindum hinsegin fólks og annarra minnihlutahópa. Það er að mínu mati ógn við samfélag okkar og lýðræði. Höldum því ótrauð áfram og höldum áfram að skapa samfélag þar sem við getum öll lifað í sátt og samlyndi — eins hýr og við getum mögulega verið. Baráttunni er langt frá því að vera lokið. Svo ég hafi nú eftir Mörshu P. Johnson sjálfri: Hinsegin barátta fyrir frelsi allra English translation of this article can be found on www.reykjavikpride.is „No Pride for some of us, without liberation for all of us.“ 9
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.