Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2020, Qupperneq 20

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2020, Qupperneq 20
Árið 2012 ákvað 16 ára strákur að læra íslensku. Þessi strákur var augljóslega ég. Mig langaði að læra þessa einstöku tungu vegna þess að ég taldi landið vera góðan valkost fyrir háskólanám (bandarískir unglingar verða að ákveða slíka hluti á þessum aldri). Ég trúði því af því að, meðal annars, ég heyrði að Íslendingar væru frjálslyndir andrasistar sem byggju í landi þar sem engir fordómar ríktu. Sem ungur, svartur, samkynhneigður Bandaríkjamaður gat ég ekki ímyndað mér betri þjóð. Það hefur ekki farið framhjá neinum að heimalandið mitt er ekki beint vingjarnlegt við fólk eins og mig og þar af leiðandi gat ég ekki beðið eftir að fá loksins tækifæri til að flytja hingað. Þann 12. ágúst 2016 steig ég fæti á nýja heimalandið. Þegar þarna var komið sögu hafði ég hitt íslenskan strák, kíkt á Frónið sem ferðamaður og fengið inngöngu í Háskóla Íslands til að læra íslensku á faglegri hátt. Ég var æsispenntur að kynnast hommunum hér á landi því þeir sem voru heima í Washington-fylki voru svo flottir. Ég hafði ekki mikið Ég er að tjá mig um það sem ég hef orðið fyrir og átt aðild að á einn eða annan hátt. Sumir hommar sem eru hvítir viðurkenna að það grasserar rasismi meðal okkar og það hegða ekki allir hvítir hommar sér eins og ég lýsi hér. Eins og við segjum á móðurmálinu mínu: Don’t shoot the messenger. Ef þér líkar ekki eitthvað sem þú lest hér í þessum pistli væri betra fyrir þig að endurskoða hvernig þú hegðar þér fremur en dæma mig fyrir að segja hvað ég og margir aðrir höfum þurft að upplifa. Að því sögðu fylgja hér lýsingar á nokkrum birtingarmyndum rasisma meðal samkynhneigðra: Blætisgerving Sem svartur maður á Íslandi hef ég mest orðið fyrir blætisgervingu, þekkt sem fetishization á enskri tungu. Fyrir þau sem eru mögulega ókunnug þessu hugtaki á blætisgerving við það þegar einhver er með blæti fyrir ákveðnum hópi eða athöfnum, þ.e. laðast sterkt og jafnvel kynferðislega að þeim. Blætisgervingin vísar þá til þess að hópurinn eða athöfnin er gerð að blæti. Blæti gagnvart svörtu fólki er stundum kallað jungle fever á mínu móðurmáli. Þessi frumskógarveiki gerir að verkum að svart fólk er hlutgert og lítið gert úr mennsku þess. Nokkur dæmi um þetta eru: rekist á aðra homma hér á landi fyrr en ég og íslenski strákurinn sem áður var nefndur ákváðum að opna sambandið okkar þegar ég hafði búið hér á landi í tæpt ár. Það var þá sem hinn saklausi Derek sá allt annan hommaheim en hann hafði búist við. Í hnotskurn má segja að ég hafi séð, heyrt, heyrt um og orðið fyrir viðbjóðslegum rasisma af höndum manna sem eru sífellt að hvetja aðra til að taka betur á móti þeim sjálfum. Ekki láta regnbogafánana plata þig; við fögnum ekki fjölbreytileikanum eins mikið og þú myndir halda. Jafnvel í rýmum þar sem maður er einfaldlega að reyna að skemmta sér, slaka á o.s.frv. er maður dæmdur út frá líkamsbyggingu sinni, kyntjáningu og, eins og nefnt hefur verið í þessum texta, kynþætti. Þar sem ég hef orðið fyrir mestum leiðindum vegna minna afrísku róta ætla ég að ræða rasismann innan hommasamfélagsins og birtingarmyndir hans. Áður en ég held áfram langar mig að benda á að ég tala út frá minni eigin upplifun. Mynd af 18 ára gömlum Derek þegar hann kom til Íslands sem ferðamaður í febrúar 2015. Hann var ekki undir það búinn. Þetta er bara eitt dæmi af blætisgervingu sem ég hef orðið fyrir. En fólk hefur spurt mig um typpastærð mína! Það er örugglega algengt á öppum eins og Grindr að spyrja um typpastærð annars manns en það átta sig ekki allir á hversu gildishlaðin þessi spurning er. Þegar svartur maður er spurður að þessu er mennskur eiginleiki hans tekinn frá honum og honum er sagt að viðkomandi langi einungis í það sem hangir í nærbuxunum hans. Slíkt viðhorf gagnvart öðrum er augljóslega einnig algengt á öppum og börum en í þessu tilfelli ýtir það undir samfélagslegt mynstur þar sem svartir menn hafa verið hlutgerðir í nokkrar aldir og mennska þeirra dregin í efa. En sumir svartir menn nota hugtakið sjálfir! Það er rétt en þetta má ekki skilja á þann hátt að allir svartir menn vilji að aðrir menn tali svoleiðis við þá. Það verður að aðgreina það sem maður sér í klámi og alvöru manneskju sem þarf að lesa BBC á skjánum sínum í tuttugasta skiptið í sama mánuðinum. – Almennar staðalímyndir sem tengjast svörtum karlmönnum eru líka áberandi í hommasamfélaginu á Íslandi. Margir virðast hugsa sem svo að svartir menn séu ofurkarlmannlegir glæponar sem klæðast keðjum og buxum sem eru nokkrum númerum of stórar. Gert hefur verið ráð fyrir því að ég sé einn af þeim og þó að það sé ekkert að slíkum mönnum er augljóst við fyrstu kynni að ég er ekki þannig. Þrátt fyrir að þessar staðalímyndir séu ekki endilega neikvæðar hafa þær samt skaðleg áhrif. Það er særandi þegar maður er dæmdur á slíkan hátt en ekki leyft að tjá sig eins og maður er í raun og veru. Í staðinn finnur maður fyrir pressu að tjá hugmyndir annarra um hver maður sé. Sem dæmi má nefna að margir telja að – Spurningar um BBC. Við erum því miður ekki að tala um breskar sjónvarpsstöðvar heldur big black c*ck (stórt svart typpi). Ég hef verið spurður mörgum sinnum, oft í byrjun samtals, hvort ég sé með BBC. 20
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.