Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2020, Side 47
Skipulegðu þína
Hinsegin daga snemma
og borgaðu minna!
Plan your Pride
early and pay less!
Inni á vefsíðu Hinsegin daga getur þú sett saman þína eigin
dagskrá. Nýttu þér allt það sem hátíðin hefur upp á að bjóða:
menningu, fræðslu og skemmtun á hverjum degi!
On the Reykjavik Pride website you can create your very own
program. Enjoy everything that is offered at the festival: culture,
education and fun everyday!
Dæmi / Examples
DRAGKEPPNI ÍSLANDS
THE ICELANDIC ROYAL DRAG COMPETITION
Forsala / Pre-sale Fullt verð / Full price
3.500 ISK 3.900 ISK
REYKJAVIK PRIDE PARTY
Forsala / Pre-sale Fullt verð / Full price
2.900 ISK 3.900 ISK
STOLT SIGLIR FLEYIÐ MITT
QUEER CRUISE
Forsala / Pre-sale Fullt verð / Full price
2.900 ISK 3.500 ISK
Kauptu miðana á netinu á forsöluverði til 1. ágúst.
Buy your early bird ticket online until August 1st, it’s cheaper.
Dagskrá í stöðugri mótun
Hinsegin dagar 2020 verða 7 daga veisla! Dagskráin er í stöðugri mótun og
nýjasta útgáfan er alltaf aðgengileg á vefnum okkar og samfélagsmiðlum.
Fylgstu með!
HINSEGINDAGAR.IS
REYKJAVIKPRIDE
REYKJAVIKPRIDE
Our programme is a work in progress but the current version can always be
found on our website and on our social media. Stay tuned!
Our programme is a work in progress
ÖRVIÐTAL
Nafn, fornafn, aldur ef vill
Danilo Nava, hann, 33 ára.
Hvenær fórstu fyrst í
gleðigöngu?
Ég gekk með Hinsegin
kórnum í fyrstu
gleðigöngunni minni árið
2018.
Hefur þú farið í
gleðigöngu annars staðar
en á Íslandi?
Nei, þegar ég bjó utan
Íslands þorði ég ekki að fara
í gleðigönguna út af hræðslu
við að eitthvað myndi gerast
og einnig á þeim tíma var ég
ekki 100% út úr skápnum.
Hver er þín
uppáhaldsminning tengd
Gleðigöngunni og hvaða
ár var það?
Það eina sem kemur upp í
hugann var árið 2017. Ég var
að horfa á skrúðgönguna
frá MR og ég sá strætó með
„besta leiðin er að fylgja
hjartanu“. Ég veit að þetta
var svolítil markaðssetning
en setningin bara náði mér.
Hvers vegna gengur þú?
Ég geng af því að ég hélt
áður að það væri ekki
mikilvægt að vera sýnilegur
en núna skil ég að til þess
að fá yngra fólk til að alast
ekki upp í sama ótta og
ég ólst upp í varðandi
skilgreininguna sína þarf ég
að mæta og láta sjá mig.