Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2020, Side 62
segir Ragnhildur og Hildur
skýtur inn í: „Það er mjög
heitur texti. Svo er það lagið
um trukkalessuna, trukka-
bæði og traktorslessa var
hún, eins og segir í laginu.“
„Við nýtum okkur þessar
staðalmyndir til hins ýtrasta,“
segir Ragnhildur sposk.
„Svo þurftum við auðvitað að
semja um ást okkar á ukulele
og ást ukulele á okkur, það
gagnkvæma ástarsamband.
Og hvernig við heillum konur
með ukulelespili. Eins og
blasir við,“ segir Ragnhildur,
sjálfsöryggið uppmálað.
„Já, ég hef heyrt að það sé
mikill tryllingur á tónleikum
hjá ykkur. Konur kasti sér
nánast upp á svið. Er það
rétt?“ Spyr ég si svona.
„Það verður bara að
viðurkennast, þannig er það.
Bera okkur bjóra upp á svið til
að mýkja okkur upp,“ svarar
Ragnhildur og Hildur tekur
í sama streng: „Þetta er allt
satt og rétt.“ Ukulellur héldu
tónleika til þess að fagna árs
afmæli sínu í október 2019.
Tónleikarnir voru haldnir fyrir
húsfylli á Hard Rock Cafe og
stemmningin var vægast
sagt góð. Til upplýsingar
fyrir áhugasama hefur heyrst
að stefnt sé á tónleika til að
fagna tveggja ára afmæli
hljómsveitarinnar í október
næstkomandi.
Ragnhildur minnist
tónleikanna angurvær á
svip: „Svo er líka bara svo
gaman að skella bara í
tónleika, á Hard Rock, fyrir
troðfullu húsi af einhverjum
kellingum á okkar aldri sem
eru alveg jafn hamingjusamar
með breytingaskeiðið og
lesgleraugu og upprifjun á
22.“
„Það var rosalega
skemmtilegt. Það voru
náttúrulega konur á öllum
aldri,“ segir Hildur og
Ragnhildur bætir við: „Já,
okkar aldri, sú okkar sem er
yngst, er hvað, þrítug og sú
elsta er 72 ára.“
„Við dekkum alveg 40 ár,“
segir Hildur, nokkuð ánægð
með sig.
Leiðarvísar lesbía
Textar Ukulella geta jafnvel
haft fræðslugildi, eins og
Hildur bendir á: „Svo höfum
við líka svolítið þurft að
semja um leiðir kvenna til
að veiða konur, eða nálgast
aðrar konur, eða komast í
ástarsamband við konur,
ég meina þessi lög eru bara
leiðarvísir getum við sagt.“
Ragnhildur bætir við: „Það
er auðvitað auðveldara
núna þannig að yngsti
textahöfundurinn, Elísabet
(Thoroddsen), hefur nú verið
dálítið dugleg að skrifa um
Tinder.“ Hildur segist að vísu
stundum þurfa orðskýringar
með textum Elísabetar. „Það
er allt í lagi, við þolum það,
en við kannski skiljum ekki
alveg að „svæpa“ og svona,“
segir hún og hristir höfuðið.
„Textarnir hennar Elísabetar
eru allir um að komast á
séns meðan okkar eru allir
um löngu liðnar ástir. Það
skilur algjörlega þar á milli,
við hinar erum fullkomlega
sestar í helgan stein,“ segir
Ragnhildur og að því er mikið
hlegið.
„Oft er það einhver okkar
sem í miðri ást sinni á
ukulele rekst á lag sem hana
langar að spila. Þá er sá texti
gjarnan á einhverri útlensku
og fjallar jafnvel um ástir
gagnkynhneigðs fólks …“
segir Hildur og Ragnhildur
skýtur inn í: „Jafnvel? Eða
bara alltaf!“ Því verður ekki
neitað að ekki er um auðugan
garð að gresja í tónlist þar
sem hinsegin ástum er gert
hátt undir höfði og kannski
er stundum nauðsynlegt að
geta sungið með og lifað
sig inn í texta sem fjallar um
konu sem elskar konu.
Þær eru komnar á flug og ég
á fullt í fangi með að halda í
við þær. Ég bara hlæ og hríftst
með og reyni að smokra inn
einhverjum spurningum.
En til hvers? Svona eru
Ukulellur bara, svona vinna
þær, einhvern veginn bara
í augnablikinu og flæðinu
en samt alveg með á hreinu
hvað það er sem þær vilja.
„Við erum reyndar ekki búnar
að skrifa um skilnað,“ stingur
Ragnhildur upp á, „svona
lessuskilnað þar sem þær
eru svo vinkonur …“ „... já!
Daginn eftir,“ stingur Hildur
inn í og Ragnhildur heldur
hlæjandi áfram: „... og fara
svo í tjaldútilegu með nýju
konunum …“ „... og öllum
hinum fyrrverandi konunum,“
botnar Hildur að lokum. „Svo
er viðlagið alltaf svona „hún
var mín“ og mismunandi hver
segir það. ÞETTA ER KOMIÐ!
Svona verða textarnir til bara
í beinni,“ segir Hildur. „Þessi
hugmynd er alveg náskyld
textanum við 22.“
„Nú finnum við bara lag
sem passar við. Þetta er nú
heldur betur reynsluheimur
lesbíunnar. Þú losnar aldrei
við þessar fyrrverandi, þær
eru bara alltaf í halarófum
sem vinkonur manns,“ segir
Ragnhildur ákveðin en spyr
svo: „En er búið að skrifa um
þessa sem þú hittir á 22, og
fór svo aldrei heim? Svo bara
allt í einu vaknarðu upp og
ert komin í sambúð? Það
kom alveg oftar en einu sinni
fyrir! Ef maður ætlaði ekki
að festast í sambúð þá varð
maður að fara heim með
henni til þess að geta farið,
annars var maður bara komin
á fast án þess að vita af,“ hlær
Ragnhildur en bætir við: „Nei,
nú erum við bara að bulla.“
„En við eigum samt eftir að
dekka alls konar hluti,“ segir
Hildur að lokum, „og við
vitum bara svo vel, í gegnum
hinsegin lífið, hvað það er
mikilvægt að segja hlutina
upphátt og hafa fyrirmyndir.
Til dæmis bara að segja
upphátt að breytingaskeiðið
sé eitthvað atriði gerir það
minna skelfilegt. Það er bara
þannig.“ Hún bætir svo glettin
við: „Lífið skánar við söng.“
Þess má geta að frá því
að viðtalið var tekið hefur
textinn um fyrrverandi
kærusturnar fæðst og
verður án efa fluttur á
afmælistónleikunum
hljómsveitarinnar í október
næstkomandi.
Um textann: 22
Höfundur: Hildur
Heimisdóttir/Ragnhildur
Sverrisdóttir
Textinn segir frá því hvernig
skemmtistaðurinn 22, á
Laugavegi 22, er bundinn
sögu lesbía órjúfanlegum
böndum. Sú sem söguna
segir rifjar upp hvernig
stemmningin var á 22, þar
sem fastagestir áttu sinn
samastað og konur jafnt og
karlar komu í leit að ástinni.
Í þá daga var hópurinn svo
fámennur að sú sem fór heim
með þér í gær er komin aftur
en situr nú á nýjum stað með
annarri konu.
Á 22 voru ágætir gluggar, svo
ungar stúlkur sem langaði inn
en þorðu ekki gátu gengið
hjá gluggunum og gjóað
augunum inn á þær sem
þegar höfðu stigið skrefið yfir
þröskuldinn. Þegar þær svo
loksins þorðu inn, og fengu
jafnvel gin í glas, og Je t'aime
hljómaði í hátölurunum,
var þeim ljóst að þær voru á
réttum stað og gátu sagt: „Já,
ég er ein af þeim.“
Frásögnin er í afturliti og
konan sem hana segir
upplifði gamla tímann á 22.
Hún horfir nú í forundran á
ungu stúlkurnar, sem eru á
Tinder, fara milli kvenna á
skjánum í símanum sínum og
fá jafnvel ný tilboð daglega.
Hún lætur það ekki trufla
sig því hún kann sannarlega
enn að heilla konur augliti til
auglitis eins og hún gerði á
22 í gamla daga og margar
eflaust gera enn á sama stað,
þótt staðurinn heiti í dag Kíkí
og fleiri konur séu komnar
yfir þröskuldinn.
62