Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2020, Síða 67

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2020, Síða 67
Tíminn breytist og mennirnir með ÖRVIÐTAL Nafn, fornafn, aldur Birna Hrönn Björnsdóttir, hún, 35 ára. Hvenær fórstu fyrst í gleðigöngu? Ætli það séu ekki að verða 19 ár. Fyrsta skiptið var ég ennþá inni í skápnum og fannst það ofsalega óþægilegt, leið eins og allir vissu að ég væri lesbía af því að ég var þarna og vildi helst bara drífa mig heim. Eftir að ég var komin út úr skápnum hlakkaði ég svo til að ég hélt ég myndi springa. Síðan þá hef ég gengið á hverju ári og gleðigöngudagur er alltaf uppáhaldsdagurinn minn á hverju ári. Hefur þú farið í gleðigöngu annars staðar en á Íslandi? Já, ég hef gengið í pride-göngunum í Osló og Kaupmannahöfn og svo gerðum við heiðarlega tilraun til að taka þátt í göngunni í Barcelona þar sem Weather Girls áttu að koma fram á stóra sviðinu. En í stað þess að rigna mönnum, þá rigndi bara eldi og brennisteini, þátttakendur í göngunni leituðu skjóls á börum og kaffihúsum og Weather Girls stigu ekki á stokk. Mér fannst eilítil kaldhæðni í því. Hver er þín uppáhaldsminning tengd Gleðigöngunni og hvaða ár var það? Það eru nýjar minningar á hverju ári sem eru uppáhalds, að sjá fjölskyldu og vini flykkjast í bæinn og taka þátt í hátíðahöldunum. Vinahópurinn minn tók þátt saman í nokkur ár og þá gengu foreldrar mínir, bróðir og amma með vagninum, það bætti heldur betur á gleðina að ganga með þeim. Önnur er þegar ég var í forsvari fyrir Ungliðahóp Samtakanna '78 um árabil, ég var mjög ákveðin í að hópurinn tæki alltaf þátt í göngunni og skipulagði pride-atriðið okkar á hverju ári. Eitt árið vorum við frægir hinsegin einstaklingar og það voru tveir í hópnum sem voru ekki alveg komnir út en vildu ganga með, þeir voru því í búningum þar sem sást ekki í andlit þeirra. Það kom okkur öllum í opna skjöldu þegar í miðri göngu á Laugavegi þeir sviptu hulunni af andlitinu og voru sýnilegir. Gleðin og stoltið sem lá í loftinu veitti þeim styrk og löngun til að taka þetta skref og fagnaðarlætin sem brutust út í hópnum voru rosaleg. Hvers vegna gengur þú? Þetta er ólýsanleg tilfinning, að taka þátt í þessari göngu, ég held að það kristallist í slagorði hátíðarinnar í ár, stolt í hverju skrefi. Ég fagna því hver ég er, að ég fái að vera eins og ég er og fyrir sýnileikann. Það skipti mig svo miklu máli þegar ég sá gönguna eftir að ég kom út úr skápnum að sjá og upplifa gleðina og stoltið sem einkenndi þátttakendur, ég vissi að ég vildi upplifa það sama. Þegar skyggnst er til baka þá er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í Hinsegin dögum þó svo að sá beiski bikar, að halda utan um budduna, hafi orðið minn. Fundirnir í samstarfsnefnd um Hinsegin daga í árdaga voru oft langir og stundum erfiðir, ólík sjónarmið voru uppi og fundað var vikulega. Fjármögnun hátíðarinnar var í upphafi erfið. Fyrirtækin stóðu ekki í biðröð eftir að auglýsa en ekki leið þó á löngu uns tryggingafélag og banki styrktu Hinsegin daga með rausnarlegu framlagi. Verslunar- og veitingahúsaeigendur í miðbænum reyndust fyrstu árin mikilvægt hryggjarstykki við fjármögnun hátíðarinnar. Þeir keyptu auglýsingar og regnbogafána af Hinsegin dögum og þekktir lista- og stjórnmálamenn lögðu sín lóð á vogarskálarnar þegar kom að fánasölunni. Hér gafst þeim líka kjörið tækifæri til að komast í beint og milliliðalaust samband við kjósendur sína og/eða aðdáendur. Ólíkt því sem þekktist víða annars staðar í heiminum urðu Hinsegin dagar í Reykjavík að fjölskylduhátíð þar sem ekki sást vín á nokkrum manni. Salan á regnbogavarningnum var að mínu mati mikilvæg, sér í lagi fyrir manninn sem hélt utan um budduna. Samþykki og stuðningur samfélagsins skiptu þó meiru sem birtist skýrast í því að fjölskyldur þessa lands veifuðu nú regnbogafánum. Orð Gunnars á Hlíðarenda við Njál á Bergþórshvoli ná vel utan um tilfinningar mínar, gamla gjaldkerans, þegar hann rifjar upp veru sína í samstarfsnefnd Hinsegin daga: „Góðar eru gjafir þínar, en meira þykir mér verð vinátta þín og sona þinn.“ 67
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.