Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2020, Side 70

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2020, Side 70
Hvers vegna göngum við 2040? Ég var orðin fertug þegar Gleðigangan hlykkjaðist í fyrsta sinn niður Laugaveginn. Reyndar var ég hvergi nærri, því ég bjó í útlöndum. En ég hef gengið flestar Gleðigöngur undanfarin 20 ár og með hverju árinu hefur gangan orðið fjölbreyttari og skemmtilegri. Hún hefur hins vegar aldrei verið fölskvalaus gleði fyrir alla, til þess hafa of þungir og erfiðir hlutir brunnið á of mörgum. Það þurfti mikið hugrekki fyrir marga að slást í hópinn. Gleðin sem því fylgdi var mikil, en harmurinn stundum skammt undan. Á þessum 20 árum hefur réttindamálum hinsegin fólks fleygt fram. Ég nenni ekki að tíunda það allt saman, þetta vitið þið öll sem hafið þurft að telja hvert jákvæða skrefið á eftir öðru, halda þeim til haga og treysta því að við þokumst alltaf áfram, áfram. Við vitum að við erum ekki komin alla leið, ekki öll okkar. Það nenni ég ekki heldur að tíunda, því það þekkjum við of vel. En óneitanlega er ástæða til að staldra við á 20 ára afmæli göngunnar og velta fyrir sér hver staðan verði eftir önnur 20 ár? Göngum við enn? Í eintómri gleði af því að öll réttindi hafa náðst fram fyrir alla? Eða með hnefann á lofti, öskureið yfir bakslaginu sem kom þegar mannhatarar komust til valda og tóku af okkur þau sjálfsögðu réttindi sem stærsti hluti þjóðarinnar nýtur nú? Í þessum vangaveltum mínum um gönguna eftir 20 ár tók ég þann kostinn að hafa samband við fjölda hinsegin fólks og spyrja hvernig það héldi að staðan yrði. Flest fólk er bjartsýnt og sannfært um að við náum ekki bara að verja núverandi árangur, heldur einnig að bæta töluvert við. Og öll eiga enn stærri drauma. Vonast til að eftir 20 ár verði fleiri og róttækari pælingar í tengslum við kyn, kynvitund og kyntjáningu, að umræðan um kyneinkenni og tilvist intersex fólks og fjölbreytni líkama verði sýnilegri. Og vonast til að það að þrýsta börnum í kynja- og kynhneigðarnormið þyki ekki lengur ábyrgt og eðlilegt uppeldi. Það er auðvitað byltingarkennt í sjálfu sér! Hvað gerir fólk þegar heimurinn er ekki lengur svo einfaldur að í boði verði bara blár aksjónkall fyrir stráka og bleik Barbie fyrir stelpur? Það er langlíklegast að heimurinn hrynji. Sú skoðun kom reyndar hvergi fram hjá álitsgjöfum, enda sendi ég fyrirspurnir bara vítt og breitt um hinsegin samfélagið og þar virðist fólk ekkert sérlega áhyggjufullt yfir slíkri hrunhættu. Hatursöflin vekja ótta Það er grunnt á ótta hinsegin fólks við hatursöfl og skyldi engan undra. Forsetaframbjóðandi, sem einu sinni kallaði frumvarp um kynrænt sjálfræði það heimskulegasta sem hann hefði heyrt og tengdi við múslimafóbíu, vakti óbragð. Lítill stuðningur við hann, vissulega, en við sjáum svo mörg dæmi um að skoðanasystkin hans séu á blússandi siglingu í ýmsum öðrum löndum. „Ef að þjóðernispopúlistar á borð við Guðmund Franklín eða Miðflokkinn ná völdum verða slagorðin mjög einföld: „Afturhvarf til 2020“, „Ég má víst vera til“ og „Við gátum þetta einu sinni, við getum þetta aftur“, hljóðar eitt svarið sem ég fékk. Og annað er af svipuðum toga: „Ég held að við séum að sigla inn í tímabil fasisma í hinum vestræna heimi og við gætum þurft að takast á við innfluttar, hatursfullar hugmyndir,“ skrifar einn álitsgjafi, sem hefur áhyggjur af að bakslag geti komið í réttindabaráttuna. En þó aðeins tímabundið. Okkur verður ekki haldið niðri. Þriðji ritar: „Við erum á tímamótum. Við sjáum hvað er að gerast í Póllandi, BNA og víðar. Þetta er ekki bara aukin hægri öfgastefna, populismi og íhaldssemi heldur einnig stóraukið eftirlit stórabróður með hegðun þegnanna. Hvort hinsegin fólk neyðist til að fara aftur Höfundur: Ragnhildur Sverrisdóttir 70

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.