Börn og menning - 2018, Blaðsíða 5

Börn og menning - 2018, Blaðsíða 5
5Saman í blíðu og stríðu óvænt sjónarhorn sem þurfa ekki að vera neitt sérstak- lega flókin. Ef köttur segir „já“ ætti til dæmis að vera augljóst að hann hefur mismælt sig.“ Vogin prýðir einmitt kápu nýju barnaljóðabókarinnar, auk þess að endurspegla þann leik að samstæðum og andstæðum og nýjum sjónarhornum á veruleikann sem leynist milli spjaldanna. En hvernig er það annars, Sigrún – fæst þú ekkert við að yrkja? „Ég hef aldrei fundið hjá mér neina þörf fyrir að yrkja ljóð,“ segir Sigrún. „Ég hef þó þurft að yrkja ljóð fyrir hönd persóna í sögum mínum. Það voru ljóð sem áttu að vera dálítið hallærisleg og mér tókst það vel, þótt ég segi sjálf frá. Svo gerði ég söngtexta fyrir leikrit sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu um Kugg og Málfríði og mömmu hennar. Ég hélt að ég myndi eiga erfitt með það en viti menn, textarnir runnu bara upp úr mér eins og ekkert væri, með rími og höfuðstöfum og stuðlum og hvað- eina. Þannig að hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér!“ Við bíðum spennt! Þú ert hins vegar afkastamikið skáld, Þórarinn, og sendir einmitt frá þér elleftu „fullorðins“-ljóðabók um daginn, Vammfirringu. Er einhver munur á því að yrkja fyrir börn og fullorðna? Leikurðu þér eins mikið að orðum í fullorðinsljóðunum og þú gerir fyrir börn? Hvort er skemmtilegra? „Það er svo sem enginn verulegur munur þar á. Enda sum ljóðin þannig að vandséð er hvort þau tilheyra ein- hverju einu aldursskeiði fremur en öðru,“ segir Þórar- inn og aftekur með öllu að fara nánar út í þá sálma. xxxxx Silfurlykillinn er nýjasta bók Sigrúnar. Nýtt samvinnuverkefni systkinanna. Sigrún og Þórarinn Eldjárn, heiðursgestir Mýrarinnar í ár. Ljósmynd: Marloes Robijn.

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.