Börn og menning - 2018, Blaðsíða 11

Börn og menning - 2018, Blaðsíða 11
11Saman í blíðu og stríðu Þórarinn er fæddur 22. ágúst 1949 í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá MR árið 1969 og lagði síðan stund á nám í bókmenntum, heimspeki og íslensku við Háskólann í Lundi og Háskóla Íslands. Hann lauk fil. cand.-prófi í Lundi 1975, flutti þá til Stokkhólms en síðan til Reykjavíkur árið 1980. Þórarinn hefur starfað sem rithöfundur og þýðandi frá árinu 1974, þegar fyrsta ljóðabók hans, Kvæði, kom út. Hann hefur fengist við flestar tegundir skáldskapar og hefur sent frá sér ljóðabækur fyrir fullorðna og börn, smásagnasöfn, skáldsögur, söguleg og ævisöguleg verk, auk ljóðskreytinga fyrir ýmsa myndlistarmenn, m.a. Tryggva Ólafsson og Eddu Heiðrúnu Backman. Þórar- inn flutti Margréti Danadrottningu frumsamda drápu, Margrétarlof, í Amalienborg þegar 40 Íslendingasögur og 49 þættir komu út í danskri þýðingu en hann hefur einnig þýtt skáldskap af ýmsu tagi og átt aðild að mörg- um sviðsverkum, m.a. leikritum og söngleikjum eftir Strindberg, Ibsen, Astrid Lindgren, Brecht, Dario Fo, Shakespeare o.fl. Þórarinn var valinn borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2008. Þórarinn hefur fengið fjölmargar viðurkenningar og verðlaun fyrir ritstörf sín, m.a. viðurkenningu Sænsku akademíunnar fyrir kynningu á sænskri menningu er- lendis, Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana, ljóðaverðlaun Guðmundar Böðvarssonar, Vorvinda- viðurkenningu Íslandsdeildar IBBY, Barnabókaverð- laun Fræðsluráðs Reykjavíkur, Verðlaun Jónasar Hall- grímssonar, viðurkenningu úr Minningarsjóði Lárusar Ottesen og Sögustein – barnabókaverðlaun IBBY á Íslandi. Þórarinn hefur auk þess verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, írsku IMPAC-verð- launanna, Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og Aristeion, evrópsku bókmenntaverðlaunanna. Þýðing hans á Lé konungi eftir William Shakespeare var enn fremur tilnefnd til Íslensku þýðingaverðlaunanna. Helstu frumsamin verk Þórarins (að undanskildum barnaljóðabókum þeirra Sigrúnar): Kvæði (1974; 4. pr. 1979), Disneyrímur (1978; 2. pr. 1980), Erindi (1979), Ofsögum sagt (1981), Kyrr kjör (1983), Ydd (1984; 2. útg. 1999), Margsaga (1985), Skuggabox (1988), Hin háfleyga moldvarpa (1991), Ort (1991), Ó fyrir framan (1992), Ég man (1994), Völuspá (endursögn; 1994), Brotahöfuð (1996), Sérðu það sem ég sé (1998), Eins og vax (2002), Snorra saga (Námsgagnastofnun 2003; endurútgefin 2008), Barón- inn (2004), Völuspá (handa börnum og fullorðnum; 2005), Hættir og mörk (2005), Fjöllin verða að duga (2007), Alltaf sama sagan (2009), Vísnafýsn (2010), Karnival dýranna (2010), Hávamál (handa börnum og fullorðnum; 2011), Hér liggur skáld (2012), Tautar og raular (2014), Þættir af séra Þórarinum og fleirum (2016), Vammfirring (2018) Ritsöfn og sýnisbækur: Stórbók ÞE (1988; endurútgáfa aukin 1993), Sögur og kvæði (1992), Gullregn (1996), Sagnabelgur (1999), Síðasta rannsóknaræfingin og fleiri sögur (2001), Kvæðasafn (2008) Með Brian Pilkington: Jólasveinaheimilið (1982), Á dýrabaki (ljóðskreyting; 2006). Ljóðskreytt fyrir Tryggva Ólafsson: Litarím (1992). Ljóðskreytt fyrir Eddu Heiðrúnu Backman: Vaknaðu Sölvi (2012), Ása og Erla (2012). Leikrit: Ó muna tíð (Nemendaleikhúsið 1986), Völuspá (Möguleikhúsið 2000), Hávamál (Möguleikhúsið 2014). Þórarinn Eldjárn

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.