Börn og menning - 2018, Blaðsíða 12

Börn og menning - 2018, Blaðsíða 12
Eftirminnilegir ævintýrapiltar Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson Mark Twain (1835-1910) er af mörgum talinn einn helsti rit- snillingur Bandaríkjanna. Oft er hann nefndur rithöfundur og háðfugl í sömu andrá vegna þess að hann lagði áherslu á skemmtanagildi frásagna sinna og hafði óhemju ríka kímni- gáfu. Fjölhæfur höfundur Mark Twain átti sér margar hliðar. Hann byrjaði ungur að vinna fyrir sér sem prentari, varð svo stýrimaður á fljótabáti, gekk í herinn, stundaði námugröft um tíma, gerðist blaðamaður og skrifaði nýstárlegar og vinsælar ferðalýsingar. Hann var gríðarlega vinsæll fyrirlesari, enda gæddur einstakri frásagnargáfu og síðast en ekki síst skrifaði hann fjölda bóka af ýmsu tagi. Að auki var hann frumkvöðull á ýmsum sviðum er varða ritlist og bókaútgáfu, t.d. er talið að hann hafi fyrstur rithöfunda fest kaup á ritvél til að nota við skriftirnar. Verk hans seldust í stóru upplagi og voru þýdd og gefin út um heim allan. Í mínum huga er hann fyrst og fremst höf- undur ævintýrasagnanna um félagana Tuma Sawyer og Stikilsberja-Finn sem ég las í æsku og hafa fylgt mér allar götur síðan. Fyrst var það Sagan af Tuma litla (e. The Adventures of Tom Sawyer – 1876), sem ég las um miðjan sjö- unda áratug liðinnar aldar, og síðan Stikilberja-Finnur (e. Adventures of Huckleberry Finn – 1884). Þessar ágætu bækur komu út á íslensku 1944 og 1945 og voru þá sannarlega löngu orðnar sígild verk. Í þeim er lýst bandarísku samfélagi á fyrri hluta nítjándu aldar, en þær voru samt bæði fróðlegar og hörkuspennandi fyrir ungan lesanda á Íslandi á sjötta áratug tuttugustu aldar. „Tumi!“ Ekkert svar. „Tumi!“ Ekkert svar. Þannig hefst Sagan af Tuma litla, en höfundurinn hafði reyndar gert tilraun til að nota efni hennar í leikrit og upphafið ber þess merki. Söguhetjan Tumi býr ásamt Sid bróður sínum hjá Pollý frænku. Tumi er uppátækja- samur og ráðsnjall. Þegar hann kemst í kynni við Finn, sem kemur úr allt öðru umhverfi, færist heldur betur fjör í leikinn. Þeir félagar ákveða að fara á flakk vegna þess að þeim leiðist í skólanum og komast þá á slóð ræningja, verða vitni að grafarráni í kirkjugarði og líka morði, sem þeir þora ekki að segja frá af ótta við að glæpamaðurinn Indíána-Jói muni hreinlega drepa þá. Og svo komast þeir á snoðir um fjársjóð, sem þeir ein- Tumi er uppátækjasamur og ráðsnjall. Þegar hann kemst í kynni við Finn, sem kemur úr allt öðru umhverfi, færist heldur betur fjör í leikinn.

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.