Börn og menning - 2018, Blaðsíða 15

Börn og menning - 2018, Blaðsíða 15
15Eftirminnilegir ævintýrapiltar bæði til stálpaðra barna og fullorðinna. Þær eru full- ar af húmor og galsa með grafalvarlegum undirtóni sem lýtur m.a. að samfélags- gerð og kynþáttamismunun. Textinn er bragðmikill og hvergi slegið af. Í Stikils- berja-Finni segir Finnur frá í fyrstu persónu. Eftir að hann stofnar ræningjafélag með fé- lögum sínum Tuma og Jóa, gerist það að faðir Finns nemur hann á brott og hefur hann nauðugan í haldi. Lýsingar á illri meðferð föður á syni eru allsvakalegar, en svo sleppur Finnur undan ofbeldismanninum föður sínum og lendir í slagtogi við þræl sem er á flótta. Þar er komin ein af eftirminnilegum persónum bókarinnar, Jim eða Jimmi, svertingi sem flýr úr ánauð og verður vinur og bjargvættur Finns. Það reyndist þýðandanum Kristmundi Bjarnasyni örugglega erfitt á sínum tíma að reyna að koma til skila málfarinu sem Mark Twain notaði. Strokuþrællinn svarti hefur talsvert annað tungutak en aðrir í bókinni til að undirstrika stéttamun. Stundum var það hálf an- kannalegt á íslensku, því aðeins er um að ræða rangar fallbeygingar og einföldun á setningamyndun. Samt virkaði það að einhverju eða öllu leyti. Í seinni þýð- ingu er ekki gerð tilraun til að koma þessum mun á málfari til skila og ekki laust við að maður sakni þess. Jimmi verður meira eintóna fyrir vikið, en ekki minnist ég þess að viðhorf mitt til hans við fyrstu kynni mín af sögunni hafi markast svo mjög af því hvernig hann tjáði sig. Hann var söguhetja þrátt fyrir það og félagi Finns. Stikilsberja-Finnur varð strax á ofanverðri 19. öld deiluefni, því mörgum þótti frásögnin ansi óhefluð og tæpast fyrirmyndarefni fyr- ir unga lesendur. Kannski engin furða, því Finnur laug og bölvaði, stal og vildi ekki taka þátt í hefðbundnu daglegu lífi. En hann átti líka í innri baráttu lungann úr sögunni og tók þá mik- ilvægu ákvörðun að svíkja ekki strokuþrælinn Jimma. Og þar sem sagan gerist fyrir þrælastríðið var það auðvitað bæði óvenjulegt og áhrifaríkt vinarbragð. Mark Twain lét gamminn geisa og þurfti oft að svara fyrir það síðar á ævinni hversu glannalegt orðfærið í bókunum væri, ekki síst þar sem um barnabækur (drengjasögur í þá daga) var að ræða. Eins og áður er sagt, þrætti hann fyrir það og hélt því statt og stöðugt fram að sögurnar hefðu aldrei verið hugsaðar fyrir aðra lesendur en fullorðna. Það er auðvit- að álitamál og verðugt rannsóknarefni hvort og hvernig þessar sögur kallast á við nútímabókmenntir fyrir börn og fullorðna. Mark Twain skrifaði tvær sögur til viðbótar um þá félaga og voru þær gefnar út á íslensku í kjölfar fyrri sagnanna, en allmörg ár liðu á milli bóka og þær komu ekki í sömu röð og á frummálinu. Eflaust missti fyrsta kynslóð lesenda hérlendis af þeim, en sú næsta ætti að hafa náð þeim. Að minnsta kosti gerði undirritaður það. Tumi gerist leynilögregla kom út 1951 (e. Tom Sawyer, detective – 1896) og Tumi á ferð og flugi 1957 (e. Tom Sawyer Abroad – 1894). Í þeim bókum er Finnur áfram sögumaður, en sögusviðið er fjarri heimahögum þeirra félaga, m.a. í Afríku og Evrópu og frásögnin er meira í Stikilsberja-Finnur varð strax á ofanverðri 19. öld deiluefni, því mörgum þótti frásögnin ansi óhefluð og tæpast fyrirmyndarefni fyrir unga lesendur.

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.