Börn og menning - 2018, Side 25

Börn og menning - 2018, Side 25
25 kvikmyndum, heldur er hann ropandi og raupsamur og nennir varla að sinna hlutverki sínu. Guðirnir eru flestir tvívíðar persónur og breyskleikar þeirra og eiginleikar eru ýktir til að gera þá hlægilegri. Fullorðna fólkinu í raunheimum er lýst á sama hátt, foreldrar Úlfs og Eddu eru kómískar aukapersónur, pabbinn Brynjólfur hefur óraunhæfa drauma um að verða meistarakokkur og mamman Unnur er leiðsögu- maður en gjörn á að villast. Eins og oft vill verða um foreldra í slíkum bókum eru þeir að mestu óafvitandi um ævintýri barna sinna og þeirra helsta hlutverk er að vera efni í brandara og að hafa áhyggjur af afdrifum barnanna. Hið sama gildir um lögreglumenn sem koma fyrir í annarri bókinni, þeir eru hjákátlegir og virðast ekki ráða við verkefni sín. Sjónarhornið liggur hjá börnunum tveimur og því verður Edda, sem er ellefu ára í fyrstu bókinni, þroskað- asta persónan. Úlfur, sem er sjö ára, lítur mjög upp til hennar og vill líkjast henni. Amma Edda er eina full- orðna manneskjan sem virðist tala við þau eins og jafn- ingja og taka tillit til þeirra og verður því sú eina sem fær að vita um ævintýri þeirra. Hið sama gildir um guðina sem líta flestir á börnin sem verur sem þeir geti ráðskast með en þurfi ekki að hlusta á. Úlfur og Edda vingast því við jaðarverur, sem ekki fá mikið rými í hefðbundnum goðsögum og eiga að lúta boðum guðanna, en eru börn- unum velviljaðar og kunna vel að meta athygli og vin- áttu þeirra. Úlfur vingast við Fenrisúlf, sem hann kallar Fúffa, hjálpar honum að losna við sverðið sem er í kjafti hans og kallar hann besta vin sinn. Aðrar verur launa börnunum vel vinargreiða, eins og drekinn Níðhöggur, en þau losa hann við ónýta tönn, Miðgarðsormur, sem þau losa við öngulinn sem verið hefur í munni hans frá því í veiðiferð Þórs, og jötunninn Mímir sem gleðst yfir því að geta loks talað við einhvern um sorgir sínar. Sá guð sem leikur stærsta hlutverkið í bókunum þremur er Loki, sem verður aðalandstæðingur Úlfs og Eddu. Loki er þjófurinn sem börnin elta til Ásgarðs. Hann vill öðlast völd og virðingu meðal guðanna en gengur það illa og Úlfur og Edda reynast hafa roð við honum. Þótt Loki sé illgjarn og börnin óttist hann, þá er ógn hans minnkuð með því að gera hann spaugi- legan, til að mynda hefur hann ekki fullt vald á öllum þeim göldrum sem hann reynir að fremja. Tilraunir Loka til að öðlast virðingu í goðheimum ganga illa. Edda veltir fyrir sér af hverju hann haldi ekki fremur til í raunheimum, þar sem hann var í mannlegu dulargervi sínu mjög virtur og allt í öllu í Skálholti. Goðsögur eru fléttaðar lipurlega inn í frásögnina. Sjaldnast er um beinar endursagnir að ræða heldur er úrvinnslan og nálgunin oft frumleg og þær verða hluti sögunnar, en ekki augljós tilraun til uppfræðslu. Ein athyglisverðasta nálgunin er í lýsingum á Iðunni, sem var rænt af jötninum Þjassa sem brá sér í arnarham og flaug með hana til heimkynna sinna. Henni var svo bjargað af Loka í fálkaham, en er eftir þessa lífsreynslu þjökuð af miklum ótta við fugla sem háir henni mjög í daglegu lífi. Hér er bætt við þá frásögn sem birtist í Snorra-Eddu og afleiðingar atburðanna á gyðjuna rann- sakaðir. Á svipaðan hátt er fjallað um systkinin Þjálfa Úlfur og Edda í goðheimum

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.