Börn og menning - 2018, Blaðsíða 39

Börn og menning - 2018, Blaðsíða 39
… aldur vera afstæður – að minnsta kosti þegar kemur að bóklestri. Ég hef allavega hvað eftir annað rekið mig á að það virðist oft vera lítil fylgni milli þess fyrir hvaða aldurshóp bækur eru markaðssettar og hverjir lesa þær í raun og veru. Þegar ég var barn las ég auðvitað mikið af barnabókum en ég las líka heilu fjöllin af fullorðinsbókum. Ef mig vantaði eitthvað að lesa fór ég iðulega í bókahillurnar heima og las skáldsögur sem mamma átti og svo tók ég líka alls konar bækur á bókasafninu. Ég man sérstaklega eftir því að bókasafnsvörðurinn í Melaskóla var stundum að segja mér að vera ekkert að lesa sumt af því sem ég fékk lánað en ég hlustaði ekkert á hana og hélt mínu striki, enda þótti mér heimur hinna fullorðnu miklu meira spennandi áður en ég varð fullorðin og hafði að- gang að honum sjálf. Fyrir vikið uppgötvaði ég margar gersemar sem lifa með mér enn í dag en auðvitað fóru sumar bækurnar fyrir ofan garð og neðan eins og geng- ur. Minnisstæðast er smásagnasafn eftir Milan Kundera sem fjallaði um vínsmakkara og konur sem voru berar að neðan í matarboðum sem ég skildi lítið í, níu ára gömul. Þannig að ég las sem sagt „fullorðinsbækur“ þegar ég var barn en núna þegar ég er orðin fullorðin er stór hluti þess sem ég les mér til ánægju bækur sem eru markaðs- settar fyrir börn og unglinga. Og ég er ekkert einsdæmi. Rannsóknir hafa nefnilega sýnt að meirihluti lesenda svokallaðra YA-bóka (eða Young Adult bóka) er eldri en átján ára. Einhvers staðar las ég meira að segja að stærsti lesendahópur þeirra séu miðaldra konur. Ég hef svo líka skrifað nokkrar bækur. Þegar ég byrj- aði að skrifa var ég ekki með neinn ákveðinn markhóp í huga nema sjálfa mig. Mig langaði að skrifa bækur sem ég myndi sjálf vilja lesa. Og svo var mér sagt að þær væru ungmennabæk- ur og þær hafa flestar verið markaðs- settar sem slíkar. En eitt af því fallega við að búa í litlu samfélagi/nettengdu samfélagi er að við rithöfundar heyr- um töluvert í lesendum okkar. Og ég get ljóstrað því upp hér að það eru alls ekki bara ungmenni eða unglingar sem lesa bækurnar mínar. Og þar að auki er eina bókin sem ég hef skrifað sem var gefin út sem „fullorðinsbók“ nokkuð víða lesin í fyrstu bekkjum menntaskóla – af unglingum. Ég skil hvers vegna mörgum finnst hentugt að flokka bækur í alls konar flokka. Það einfaldar vissulega lífið fyrir markaðsdeildir forlaga, bókasafnsverði og starfs- fólk bókabúða. Og þegar ömmur og afar koma og ætla að kaupa jólagjafir fyrir 14 ára barnabarn getur auðvitað verið gott að fá einhver viðmið og það getur stundum auðveldað lesendum að finna efni við hæfi. Hættan er hins vegar sú að um leið og við setjum bók í tiltekinn aldursflokk þá útilokum við stóran hóp af mögulegum lesendum. Það er til dæmis ekkert rosalega spennandi fyrir sextán ára ungling að lesa bók sem er merkt fyrir 12–14 ára á kápunni, þótt þessi bók myndi samt kannski hitta beint í mark og sé akkúrat bókin sem unglingurinn er að leita að. Og það er vandamálið við flokkunina. Við erum svo ólík. Aldur er afstæður. Börn þroskast í stökkum og það gera fullorðnir líka. Sumir lesa „fullorðinsbækur“, aðrir „barnabækur“, enn aðrir „ungmennabækur“ – og sumir lesa þetta allt til skiptis, alveg sama hvað þeir eru gamlir. Hildur Knútsdóttir „Mér finnst …“ lýsir skoðunum höfunda fremur en ritstjórnar eða stjórnar IBBY samtakanna. Mér finnst … Höfundur er rithöfundur

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.