Börn og menning - 2018, Blaðsíða 35

Börn og menning - 2018, Blaðsíða 35
35Gagnsemi lyginnar riði þar sem Gosi er beinlínis hvattur til að ljúga svo nefið lengist sem mest og nýtist til að bjarga Ósk úr turninum. Fólk gæti því haldið að boðskapurinn skolist eitthvað til en ég leyfi mér að stórefast um að klárir krakkar sem horfa á sýninguna þekki ekki muninn á beinni lygi og augljósum ósannindum í göfugum til- gangi. Mér finnst a.m.k. hressandi þegar krökkum er leyft að velta aðeins flóknari spurningum en „er rangt að ljúga?“ fyrir sér. Eins og til dæmis undir hvaða kringum- stæðum væri lygi réttlætanleg og hefði ekki verið rangt af Gosa að beita ekki sínum „galla“ í þágu hins góða til að bjarga systur sinni? Heimspekilegar vangaveltur sem hefðu gert Nietzsche stoltan. Í hvert skipti sem Gosi lýgur og nefið lengist þarf hann að viðurkenna lygina og fá knús til að allt gangi til baka. Hann gerir það fúslega og þá erfir enginn lygina við hann. Það eru skilaboð sem ég þori að veðja að krökkum finnist gott að heyra og að þau séu mun gagnlegri í hinu daglega lífi heldur en svarthvít boð og bönn við lygum. Önnur mikilvæg skilaboð koma í lokin þegar Gosi afþakkar að láta breyta sér í alvöru strák því hann lærði að vera ánægður eins og hann er. Afskaplega sterk af- staða sem hefði jafnvel mátt gera meira úr. Foreldrarnir fallast heldur ekki í faðma í lokin því Edda er komin með nýjan mann og þannig er lífið. Rós í hnappagatið Sýningin sem við sáum var ein af þeim síðustu sem leikhópurinn sýndi um sumarið 2018 og fór fram í Hlégarði í Mosfellsbæ. Það svæði er einstaklega hent- ugt fyrir útileikhús, trjágróður fyrir aftan leikmyndina sem fær hlutverk sem nokkurs konar leiktjöld og brekka fyrir framan sem veitir þeim sem sitja aftast betri sýn. Veðrið var með besta móti og kosturinn við útileikhús er að sýningin byrjar ekki fyrr en allir eru komnir. Þau allra minnstu þurftu að standa upp annað slagið og hlaupa í hringi og þá var það bara allt í lagi. Þar sem sýningin var, eins og áður sagði, með þeim síðustu var leikhópurinn orðinn mjög þjálfaður í öllum skipting- um og allt virkaði þétt og rann smurt. Sérstaklega þótti undirritaðri mikið til nefaskiptinganna koma því það þurfti jú að láta nefið á Gosa stækka og minnka og var Stefán Benedikt orðinn mjög flinkur að skipta mismun- andi stærðum út án þess að áhorfendur yrðu þess varir. Ég reyndi að fylgjast með en fimin var slík að það var ekki nokkur leið að sjá hvenær eitt nef tók við af öðru. Leikstjórinn, Anna Bergljót, á þarna líka hrós skilið fyr- ir sniðugar lausnir sem og Elín Sigríður Gísladóttir og Móeiður Helgadóttir fyrir hinar ýmsu útfærslur á gosa- nefjum. Sjálft gervi Gosa var hannað af Andreu Ösp Karlsdóttur og Kristínu R. Berman. Þá er ótalin frábær og hagkvæm leikmynd Sigsteins Sigurbergssonar. Niðurstaðan er sú að enn eitt sumarið í röð bætti Lotta rós í hnappagat sitt og geta allir aðstandendur verið stoltir af. Til stendur að frumsýna nýja uppfærslu af Rauðhettu í Tjarnarbíói 6. janúar 2019 en sú sýning var fyrst sýnd sem útisýning árið 2009. Leikhópurinn mun svo ferðast með sýninguna á milli leikhúsa á lands- byggðinni. Ósk er frelsinu fegin en Gosi þarf að losna við stærðarinnar nef. Ljósmynd: Ásta Gísladóttir. Leiksýningar Lottu: Galdrakarlinn í Oz (2008) Rauðhetta (2009) Hans klaufi (2010) Mjallhvít (2011) Stígvélaði kötturinn (2012) Gilitrutt (2013) Hrói höttur (2014) Litla gula hænan (2015) Litaland (2016) Ljóti andarunginn (2017) Galdrakarlinn í Oz, sýnt í Tjarnarbíói (2018) Gosi (2018) Höfundur er bókmenntafræðingur.

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.