Börn og menning - 2018, Blaðsíða 14

Börn og menning - 2018, Blaðsíða 14
Börn og menning14 Þetta las maður rétt um fermingaraldur og fannst ekkert athugavert við það, enda þótt söguhetjurnar væru á svipuðum aldri og maður sjálfur. Strákarnir höguðu sér oft og tíðum eins og fullorðnir menn og einmitt það setur sterkan svip á sögurnar. Ekki er gerður stór greinarmunur á söguhetjunum ungu og þeim sem eldri eru. Þess ber að geta að Mark Twain hélt því statt og stöðugt fram að bækurnar hefðu hreint ekki verið ætlaðar börnum. Upphaflega hafði hann hugsað sér að skrifa eins konar þroskasögu og fylgja Tuma eftir fram á fullorðinsár, en eftir miklar vangaveltur og tilraunir hvarf hann frá þeirri hugmynd og í bréfi sem hann lét fylgja með handriti til útgefandans komst hann svo að orði: „Hún er alls ekki drengjabók. Það verða aðeins fullorðnir sem lesa hana. Hún er aðeins skrifuð fyrir fullorðna.“ Hann átti reyndar í mesta basli með að skrifa fram- haldið af Sögunni um Tuma litla, sem hafði slegið ræki- lega í gegn. Og þótt höfundurinn efaðist um að efnið væri við hæfi ungra lesenda, þá kom fljótt á daginn að strákar og stelpur og karlar og konur kunnu að meta ævintýrin og áttu auðvelt með að lifa sig inn í þann heim sem Mark Twain þekkti svo vel og lýsti á einstak- an hátt. Í bókarlok fannst honum hann samt verða að útskýra stuttlega hvað fyrir honum vakti: „Nú er sögu þessari lokið. Sökum þess að eg ætl- aði mér einungis að segja sögu af ungum dreng, er eg neyddur til að láta hér staðar numið. Eg gæti ekki haldið henni áfram öllu lengra án þess að hún yrði saga af fullorðnum manni. En þegar sögur eru skráðar um fulltíða folk, veit höfundurinn upp á hár hvar nema skal staðar, nefnilega á hjónabandinu. En þegar sagan er af börnum þá er allt öðru máli að gegna og þá verður hver og einn að hætta er honum þykir bezt henta. Flest börnin er hér koma við sögu lifa ennþá og líð- ur ágætlega. Það gæti kanske launað fyrirhöfnina að taka einhverntíma seinna upp söguþráðinn, og skýra frá uppvexti barnanna, unz þau voru orðin að nýtum mönnum í þjóðfélaginu. Því er skynsamlegast að láta hér staðar numið og segja ekki frekar af æfi þeirra í þetta sinn.“ (Úr fyrstu þýðingunni á íslensku sem birtist í Nýjum kvöldvökum á árunum 1914-15). Eitthvað fyrir alla Sögurnar af Tuma og Finni höfða svo sannarlega Æskuheimili höfundarins er nú safn. Þess ber að geta að Mark Twain hélt því statt og stöðugt fram að bækurnar hefðu hreint ekki verið ætlaðar börnum.

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.