Börn og menning - 2018, Blaðsíða 7

Börn og menning - 2018, Blaðsíða 7
7Saman í blíðu og stríðu Í Ljóðpundara er að minnsta kosti ort um „absúrt slátur“: Við áttum absúrt slátur oní stórri tunnu, þaðan heyrðist hlátur hljóma frá unnu kjötvörunum kunnu. Sígildar sögur og svelt bókasöfn Ég hef líklega lesið svipaðar bækur og þið þegar ég var að alast upp og margar þeirra voru hreinlega súrreal- ískar, að minnsta kosti í íslensku samhengi, enda margar þýddar og af mismikilli snilld. Hvað lásuð þið helst þegar þið voruð krakkar? „Ég las alveg helling sem barn, eiginlega bara hvað sem var,“ svarar Sigrún. „Bókasafnið var ekki langt undan og var maður tíður gestur þar og alltaf fengum við bækur í jólagjöf. Ég var mjög hrifin af Óla Alexander fíli bomm bomm bomm og bókum Enidar Blyton, Ævintýrabók- unum, Fimm-bókunum og Dularfullu bókunum. Ég las líka úr hillum systkina minna og ekki má gleyma Andrésblöðunum sem ég las á dönsku frá átta ára aldri og höfðu mikil áhrif á mig. Vandamálabækurnar voru svo í tísku þegar börnin mín voru lítil og þær hafa mér aldrei þótt skemmtilegar. Ég var alltaf alveg viss um að svoleiðis bækur myndi ég aldrei gera,“ segir hún og hef- ur svo sannarlega staðið við það. „Ég las auðvitað á sínum tíma mikið af Tom Swift og Bob Moran, en svo voru líka klassíkerar eins og Mark Twain,“ segir Þórarinn um lestrarvenjur æskunnar. „Iðunn gaf út bókaflokk með klassík sem ég las mik- ið, Skytturnar þrjár og fleira. Kannski hafa þær útgáfur sumar verið nokkuð styttar, en það kom ekki að sök. Árni í Hraunkoti kom sterkur inn á tímabili og svo auð- vitað Sígildar sögur, myndasögurnar með öllu því helsta, Macbeth, Moby Dick, Hamlet o.s.frv.“ „Það er alveg ótrúlega mikilvægt að börn lesi bækur sem skrifaðar eru á íslensku þótt þýddar, góðar bækur séu auðvitað líka mjög mikilvægar. Fjölbreytnin skiptir „Ég las alveg helling sem barn, eiginlega bara hvað sem var,“ svarar Sigrún. „Bókasafnið var ekki langt undan og var maður tíður gestur þar og alltaf fengum við bækur í jólagjöf.“ Úr Ljóðpundara.

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.