Börn og menning - 2018, Blaðsíða 10
Börn og menning10
Sigrún er fædd 3. maí 1954, ólst upp í Reykjavík og
lauk stúdentsprófi frá MR 1974. Eftir það hóf hún
nám við Myndlistar- og handíðaskóla Íslands og lauk
prófi úr grafíkdeild skólans 1977. Árið 1978 var hún
gestanemandi við Listaakademíurnar í Varsjá og Kraká.
Sigrún hefur starfað sem myndlistarmaður frá 1978.
Hún hefur haldið einkasýningar á verkum sínum og
tekið þátt í fjölda samsýninga víða um heim. Sigrún
myndskreytir eigin bækur en hefur einnig myndskreytt
bækur margra annarra höfunda.
Sigrún hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir ritstörf
sín og myndlist, Barnabókaverðlaun Reykjavíkur-
borgar þrívegis, þar af einu sinni með Þórarni Eldjárn,
Menningarverðlaun VISA, Dimmalimm – íslensku
myndskreytiverðlaunin, Íslensku bjartsýnisverðlaun-
in, Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana, Vor-
vindaviðurkenningu IBBY og Sögustein – barnabóka-
verðlaun IBBY á Íslandi. Hún hefur auk þess verið
tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, H.C.
Andersen verðlaunanna, ALMA priset (Astrid Lind-
grens Memorial Award) fjórum sinnum, Norrænu
barnabókaverðlaunanna og Vestnorrænu barnabóka-
verðlaunanna. Árið 2008 var hún sæmd riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til íslenskrar
barnamenningar.
Frá árinu 1980 hefur Sigrún sent frá sér 61 barnabók
auk barnaljóðabókanna sem þau Þórarinn hafa unnið
saman og auk þess skrifað sjónvarpshandrit fyrir RÚV.
Kuggur, Málfríður, mamma hennar og Mosi rötuðu svo
á svið Þjóðleikhússins 2015.
Bækur Sigrúnar Eldjárn í tímaröð (að undanskildum
barnaljóðabókum þeirra Þórarins):
Allt í plati (1980), Eins og í sögu (1981), Langafi
drullumallar (1983), Langafi prakkari (1984), Bétveir
Bétveir (1986), Kuggur og fleiri fyrirbæri (1987),
Kuggur til sjávar og sveita (1988), Kuggur, Mosi og
mæðgurnar (1989), Axlabönd og bláberjasaft (1990),
Stjörnustrákur (1991), Sól skín á krakka (1992),
Beinagrindin (1993), Syngjandi beinagrind (1994),
Skordýraþjónusta Málfríðar (1995), Beinagrind með
gúmmíhanska (1996), Kynlegur kvistur á grænni grein
(1997), Málfríður og tölvuskrímslið (1998), Teitur
tímaflakkari (1998), Teitur í heimi gulu dýranna
(1999), Drekastappan (2000), Geimeðlueggin (2001),
Draugasúpan (2002), Týndu augun (2003), Frosnu
tærnar (2004), Kuggur 1 Nýir vinir (2004), Kuggur 2
Í sveitinni (2004), Kuggur 3 Geimferð (2004), Kugg-
ur 4 Prinsinn og drekinn (2004), Kuggur 5 Þorrablót
(2005), Kuggur 6 Jólaleg jól (2005), Steinhjartað
(2005), Gula sendibréfið (2006), Eyja gullormsins
(2006), Eyja glerfisksins (2007), Kuggur 7 Gleðilegt
sumar (2008), Kuggur 8 Draugagangur (2008), Eyja
Sólfuglsins (2008), Finnur finnur rúsínu (2009), Kugg-
ur 9 Blómkál (2009), Kuggur 10 Útilega (2009), Iðnir
krakkar (2010), Forngripasafnið (2010), Náttúru-
gripasafnið (2011), Listasafnið (2012), Bétveir Bétveir
(endurgerð; 2012), Strokubörnin á Skuggaskeri (2013),
Kuggur 11 Listahátíð (2014), Kuggur 12 Ferðaflækjur
(2014), Draugagangur á Skuggaskeri (2014), Kuggur
13 Tölvuskrímslið (endurgerð; 2015), Leyniturninn á
Skuggaskeri (2015), Kuggur 14 Hoppað í París (2016),
Kuggur 15 Rassaköst í Róm (2016), Sigurfljóð hjálpar
öllum (2016), Kuggur 16 Afmælisgjöf (2017), Áfram
Sigurfljóð (2017), Silfurlykillinn (2018).
Bækur Sigrúnar Eldjárn fyrir Námsgagnastofnun:
Geimveran (2004), Óboðnir gestir (2009), Svaðilför í
berjamó (2011), Græna bókin (2012).
Barnaljóðabækur Þórarins og Sigrúnar Eldjárn:
Gleymmérei (Þ.E. ljóðskreytti) 1981
Óðfluga (S.E. myndskreytti) 1991
Heimskringla (S.E. myndskreytti) 1992
Stafrófskver (Þ.E. ljóðskreytti) 1993
Talnakver (Þ.E. ljóðskreytti) 1994
Gleymmérei (endurgerð) 1996
Halastjarna (S.E. myndskreytti) 1997
Óðhalaringla (S.E. myndskreytti) 2004
Grannmeti og átvextir (S.E. myndskreytti) 2001
Gælur fælur og þvælur (S.E. myndskreytti) 2007
Tíu litlir kenjakrakkar (Þ.E. ljóðskreytti) 2007
Árstíðirnar (S.E. myndskreytti) 2010
Fuglaþrugl og naflakrafl (S.E. myndskreytti) 2014
Ljóðpundari 2018
Sigrún Eldjárn