Börn og menning - 2018, Page 18
Börn og menning18
Rögnu Gunnarsdóttur, Tímakistan eftir Andra Snæ
Magnason, Ólíver eftir Birgittu Sif, Enginn sá hundinn
eftir Hafstein Hafsteinsson, Koparborgin eftir Ragnhildi
Hólmgeirsdóttur, Vinur minn, vindurinn eftir Berg-
rúnu Írisi Sævarsdóttur, Bétveir Bétveir eftir Sigrúnu
Eldjárn og Óðhalaringla eftir Þórarin Eldjárn. Reykja-
vík Bókmenntaborg UNESCO styrkti uppsetningu
textanna. Bækurnar sjálfar hanga til sýnis og lestrar við
hverja tilvitnun.
Hetjur eru alls konar
Nemendur Teiknideildar Myndlistaskólans í Reykjavík
máluðu stóra mynd af sögupersónum bernskuáranna.
Veggmyndin getur veitt börnum innblástur fyrir næsta
verkefni en þau eiga að skapa eigin söguhetju. Verkefnið
leysa börnin við vinnuborð og þar má líka búa til and-
litsgrímur. Veggi sýningarinnar prýða einnig myndir
unnar út frá verkum þeirra myndhöfunda sem voru
gestir á fyrrnefndri barnabókmenntahátíð Úti í mýri:
Undur í norðri. Myndhöfundarnir eru: Jenny Lucander
(frá Finnlandi), Áslaug Jónsdóttir (frá Íslandi), Marit
Törnqvist (frá Hollandi/Svíþjóð), Benjamin Chaud
(frá Frakklandi), Peter Madsen (frá Danmörku), Rán
Flygenring (frá Íslandi), Anna Höglund (frá Svíþjóð),
Högni Sigurþórsson (frá Íslandi), Daniel og Aleksandra
Mizielinski (frá Póllandi) og Sigrún Eldjárn (frá Íslandi)
auk Kristínar Rögnu Gunnarsdóttur sýningarstjóra.
Skáldamjöðurinn
Ævintýraþyrstir bókaormar geta skriðið inn í kraum-
andi eldfjall. Þar bíður skáldamjöðurinn sem reyn-
ist vera gerður úr kynngimögnuðum orðum Þórarins
Eldjárns. Orð úr bókinni Óðhalaringla eru rituð á við-
arkubba. Börnin fiska orðin upp úr stórri skál og raða
saman í eigið ljóð á þar til gerðum hillum á vegg. Börn-
in skrifa síðan ljóðið sitt í vegabréfið. Að ljóðagerð lok-
inni er auðvelt að gleyma sér við yndislestur. Í litríkum
lestrarkrók má finna fullar kistur af bókum, lestrarpúp-
ur, púða, kubba og hús Línu langsokks.
Ævintýrasigling
Barnabókaflóðið fyllir fimmta rýmið en þar er leikurinn
í forgrunni. Stórt víkingaskip siglir innan um ótal barna-
bækur á vit ævintýra. Skipið er kjörinn vettvangur til