Börn og menning - 2018, Qupperneq 24

Börn og menning - 2018, Qupperneq 24
Fyrsta bókin um Úlf og Eddu eftir Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur kom út 2016 og bar undirtitilinn Dýr- gripurinn, í fyrra kom út bókin Drekaaugun og nú hefur þriðja bókin, Drottningin, litið dagsins ljós. Bækurnar eru ætlaðar börnum á aldrinum átta til þrettán ára en geta hentað fyrir alla fjölskylduna. Í þeim segir frá stjúpsystkinunum og nútímabörnunum Úlfi og Eddu, ferðalögum þeirra til heims hinna norrænu goða og upplifun þeirra og samskiptum við guði og goðverur. Bækurnar eru myndskreyttar af höfundi og eru annars vegar myndir af persónum sem fyrir koma og hins vegar af síðum úr dagbók Eddu. Bækurnar þrjár gerast allar sama sumarið og seg- ir hver þeirra frá einu ferðalagi Úlfs og Eddu til goð- heima. Sjónarhornið er hjá börnunum og fá lesendur að kynnast guðum og goðsögum í gegnum það sem börnin upplifa og heyra. Um leið myndast tenging við nútím- ann, því börnin vísa oft til þess menningarheims sem þau (og lesendur) eru kunnug til nánari skýringa. Til að mynda er Sirius Black úr Harry Potter-bókunum not- aður til að útskýra hvað hamskipti eru og Úlfur þekkir nöfn dverga af því að hann hefur horft á myndirnar um Hobbitann. Úlfur og Edda í goðheimum Kolfinna Jónatansdóttir Bækur Úlfur og Edda – Dýrgripurinn Úlfur og Edda – Drekaaugun Úlfur og Edda – Drottningin Myndir og texti: Kristín Ragna Gunnarsdóttir Bókabeitan, 2016, 2017 og 2018 Sú aðferð að kynna guði og goðsögur í gegnum spurningar og upplifun gesta sem ekkert vita hjálp- ar lesendum að fóta sig í ókunnugum sagnaheimi og getur gert þeim kleift að lesa þær goðsögur sem nýttar hafa verið sem efniviður. Sem dæmi um slíkt má nefna bækur Lars-Henriks Olsen um ferðir drengsins Eiríks til Ásgarðs og Jötunheima. Heiti bókanna vísa til þeirra fornmuna sem eru í for- grunni í hverri bók fyrir sig. Í fyrstu bókinni reynist dýrgripurinn vera brot úr Brísingameni sem amma og nafna Eddu fann við fornleifauppgröft þegar hún var lítil og varð til þess að hún varð fornleifafræðingur. Þegar Úlfur og Edda koma til dvalar í Skálholti þar sem amman býr og starfar er þessum grip stolið frá henni af manni sem reynist vera Loki í dulargervi. Börnin vilja hjálpa ömmu sinni að endurheimta gripinn. Eftirförin leiðir þau inn í Þorláksbúð og þaðan inn í göng sem liggja til goðheima. Í Drekaaugunum og Drottningunni leiða stolnir fornmunir sem tengjast Loka til þess að börnin fara í gegnum sömu göng og í fyrrnefndu bók- inni fer amma Edda einnig til goðheima. Heimur guðanna Upplifun barnanna af þessum framandi heimi er sterk- ust í fyrstu bókinni þar sem allt sem þau sjá er nýstár- legt og spennandi, askur Yggdrasils og kettir Freyju líta út fyrir að vera á sterum og atferli og hegðun guðanna passa ekki við þá ímynd sem börnin höfðu af þeim. Þór er til að mynda engin ofurhetja, líkt og hann birtist í

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.