Börn og menning - 2018, Síða 28
Breytingar í Brókarenda
María Bjarkadóttir
Bækur
Nærbuxnaverksmiðjan
Texti: Arndís Þórarinsdóttir
Myndir: Sigmundur Breiðfjörð
Þorgeirsson
Mál og menning, 2018
Nýlega kom út barnabókin Nærbuxna-
verksmiðjan, sem er önnur skáldsaga
Arndísar Þórarinsdóttur. Arndís hefur
áður fengist við ýmis skrif fyrir börn og
meðal annars þýtt barnabækur og skrif-
að lestrarbækur fyrir grunnskóla. Fyrri
skáldsaga hennar, Játningar mjólkurfernuskálds, kom út
árið 2011 og var tilnefnd til Norrænu barnabókaverð-
launanna.
Nærbuxnaverksmiðjan er skrifuð fyrir börn á neðri
stigum grunnskóla, sagan er rétt innan við 100 blað-
síður og er með stóru letri sem hentar vel ungum les-
anda. Inn á milli eru svart-hvítar myndir eftir Sigmund
Breiðfjörð Þorgeirsson, sem eru fullar af smáatriðum og
iða af lífi. Sagan gerist í Brókarenda og segir frá skóla-
systkinunum Gutta og Ólínu og ævintýralegri för þeirra
inn í risavaxna nærbuxnaverksmiðju, sem setur svip
sinn á umhverfið og líf allra í hverfinu.
Lík börn leika best?
Gutti og Ólína eru eins ólík og hægt er að hugsa sér.
Það eina sem þau eiga sameiginlegt er að búa í sama
hverfinu, í Brókarenda, og ganga í sama
skóla. Gutti er duglegur og samvisku-
samur og vill allt fyrir alla gera þó að
hann þurfi oft að fórna ýmsu til þess.
Hann vill hafa skipulag og reglur og
sér engan tilgang með því að vera með
vesen af neinu tagi. Ólína er alger
andstæða hans. Hún er forvitin og með
fjörugt ímyndunarafl og gerir það sem
henni dettur í hug án þess að hafa of
miklar áhyggjur af afleiðingunum. Hún
er nýflutt í hverfið og er strax búin að koma sér í alls
konar vandræði í skólanum. Hún virðist nefnilega sog-
ast að veseni, jafn mikið og Gutti forðast það.
Í upphafi sögunnar kemst Gutti að því að nær-
buxnaverksmiðjunni í bænum hefur, flestum að óvörum,
verið lokað. Verksmiðjunni, sem er hjartað í bænum og
hefur verið um árabil. Amma Gutta, hún Lena, hefur
eins lengi og hann man eftir sér unnið sem bókari þar
og Gutti getur hreinlega ekki ímyndað sér framtíðina
án nærbuxnaverksmiðjunnar. Þegar Gutti áttar sig
svo á því að amma Lena hefur ekki skilað sér heim úr
vinnunni þrátt fyrir að búið sé að innsigla vinnustað
hennar verður hann mjög áhyggjufullur. Á meðan hann
reynir að átta sig á því hvað hann eigi að gera í stöðunni
kemur Ólína aðvífandi og hún er ekki í nokkrum vafa.
Þau verða að fara í verksmiðjuna strax og finna ömmu