Börn og menning - 2018, Qupperneq 29
29Breytingar í Brókarenda
Lenu, því hún gæti að sögn Ólínu verið í mikilli hættu.
Þó að Gutti sé reyndar algerlega ósammála því að amma
hans geti verið í nokkurri einustu hættu á hann engra
annarra kosta völ en að elta Ólínu sem rýkur umsvifa-
laust af stað. Einhver verður að passa upp á að Ólína
komi sér ekki í enn meiri vandræði.
Með ýmsum kúnstum tekst þessum ólíklegu félögum
að komast inn í verksmiðjuna, en þar er allt öðruvísi
um að litast en þau höfðu ímyndað sér. Sumir hlutar
hússins hafa staðið ónotaðir lengi og þar er ýmislegt á
seyði sem enginn virðist hafa hugmynd um, yfirgefnir
salir hafa fengið önnur óvænt hlutverk og ýmsar undar-
legar verur eru á ferli.
Brókarbrandarar og æsispennandi atburðir
Sagan er æsispennandi og nokkuð í anda spæjarasagna
fyrir börn þegar Gutti og Ólína þvælast lengra og lengra
inn í dimma rangala verksmiðjunnar í leit að ömmu
Lenu. Kaflarnir enda gjarnan á svokölluðum cliffhan-
ger, þar sem aðalpersónan er skilin eftir í háskalegum
aðstæðum og lesandinn æsist allur upp í að lesa áfram
til að komast að því hvernig fer. Það er vel útfært í Nær-
buxnaverksmiðjunni og sniðug leið til að hvetja lesand-
ann áfram. Bók sem fjallar um nærbuxur býður auðvit-
að líka upp á alls konar grín og orðaleiki. Þannig hafa í
verksmiðjunni verið framleiddar hinar ýmsu furðulegu
nærbuxur, svo sem brækur til að vera í á degi íslenskrar
tungu og ætar brækur, ásamt smábrókunum sem mikið
er fjallað um og fyrir þá sem átta sig ekki á því hvað
smábrækur eru má fá skýringu í einni af myndunum
þar sem Gutti heldur á slíku pari. Hugmyndaflugið í
orðaleikjum einkennist af miklum húmor og í raun
magnað hvað er hægt að leika sér með tungumálið og
orð sem tengjast brókum á einn eða annan hátt. Götu-
heiti, tegundir af undirfatnaði og alls konar vísanir í
nærbuxur lauma sér inn í ótrúlegasta samhengi.
Verksmiðjan dularfulla
Nærbuxnaverksmiðjan er sannarlega allt öðruvísi en
Gutti hafði séð fyrir sér og þó að þar hafi vissulega ver-
ið framleiddar alls konar nærbrækur í gegnum tíðina,
er annað sem gefur henni sérstöðu í samfélaginu en
fáir í bænum hafa leitt hugann að. Yfir henni er nefni-
lega mikið og þykkt koparþak sem er þess valdandi að
hvorki næst samband við síma né Internet inni í verk-
Myndirnar iða af lífi.
Nærbuxnavísanir leynast víða.