Bændablaðið - 25.03.2021, Page 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 202116
Sjávarafurðir skila rúmum 90%
útflutningsverðmæta í Færeyjum
Kjartan Stefánsson
kjartanst@simnet.is Álar þykja fínir til átu í Kína
og hefur verðið á glerálum
farið yfir fimm þúsund
dollara fyrir kílóið í Hong
Kong. Í Kóreu eru álar sagðir
stinnandi fyrir karlmenn sem
eru farnir að linast í slátrinu.
Auk þess eru álar borðaðir með
bestu lyst um alla Evrópu og í
Bandaríkjunum.
Állinn er einn af
einkennisfiskum danskrar
matarhefðar og var fyrr á
öldum hversdagsfæða jafnt í
sjávarþorpum sem til sveita
sökum óhemju mikillar gengdar
hans umhverfis landið. Honum
hefur aftur á móti fækkað mikið
og í dag er áll dýr fæða og helst
neytt til hátíðarbrigða. Állinn
er feitur fiskur og þykir mikið
hnossgæti, einkum meðal eldri
Dana, hvort sem hann er borinn
fram soðinn, steiktur eða reyktur.
Hann fyrirfinnst í ýmsum vel
þekktum réttum svo sem álasúpu
frá Suður-Jótlandi.
Heitreyktur áll þykir mikið
góðgæti sé hann borinn fram
með eggjahræru. Fyrst er állinn
roðflettur, flakaður og snyrtur.
Hann er síðan skorinn í bita og
borinn fram með eggjahræru að
hætti hússins, graslauk, tómötum
og grófu, ljósu, rúgbrauði.
Kaldur bjór þykir fara einstaklega
vel með reyktum ál og frændum
okkar Dönum dytti ekki í hug að
bera álinn fram öðruvísi en með
bjór og ákavíti.
Í Ferðabók Eggerts Ólafssonar
og Bjarna Pálssonar segir m.a. um
álinn: „Enda þótt áll sé næstum
því hvarvetna á Íslandi, sést hann
samt sjaldan, því að hann er ekki
veiddur, af því að menn telja hann
fremur slöngu en fisk, á líkan hátt
og bændur á Sunnmæri í Noregi
gera, eftir því sem Ström hermir.
Á Rauðasandi, í Tálknafirði og
víðar þar vestra er mikil gengd
af ál. Þar er hann einnig veiddur
lítils háttar, með aðferð, sem
menn hafa lært af forfeðrum
sínum. Hún er þannig, að tekin
er stöng með hnúð eða kringlóttu
hjóli á öðrum endanum. Skyri er
riðið á hjólið rétt við stöngina og
henni stungið til botns. Álarnir,
sem sækjast eftir þessari beitu,
sjá hvíta litinn og skríða upp á
hjólið og vefja sig um stöngina
og byrja að eta í ró og næði, en
þá er stönginni kippt upp.“
Sagt er að álar í draumum
boði dreymandanum erfiðleika
og strit. Að sjá ála skjótast um
í vatni í draumi er fyrir falsi og
fláræði. Að flá ál er aftur á móti
fyrir skemmtilegu verkefni en
að borða ál er fyrir harðæri og
erfiðleikum í peningamálum. Að
veiða ál boðar góð tíðindi.
Jónas Jónasson frá Hrafnagili
segir í Íslenskum þjóðháttum að
gott hafi þótt að leggja álsroð
á bakið við bakverkjum. „...
sumir segja roð af bjartál, snúa
holdrosunni að og láta sitja í 9
eða 11 nætur.“
Sá misskilningur virðist hafa
verið landlægur að álar gefi frá
sér rafmagn og að fólk geti fengið
raflost af þeim, samanber nafnið
hrökkáll. Fiskurinn sem gengur
undir nafninu hrökkáll á íslensku
í dag er ekki áll og tilheyrir
öðrum ættbálki fiska. Hugsanlegt
er að nafnið hrökkáll eigi eitthvað
skylt við að fólk hafi hrokkið í kút
þegar hann vafði sig skyndilega
um fætur þess í vatni. /VH
STEKKUR
Þrátt fyrir aflasamdrátt hjá fær-
eyskum skipum á síðasta ári má
segja að árið hafi verið gjöfult. Í
heild gaf færeyskur sjávarútveg-
ur og fiskeldi tæpa 150 milljarða
íslenskra króna í útflutningstekjur.
Mikilvægasta tegundin, eldislax,
skilaði um 67 milljörðum íslensk-
um sem er um 46% af verðmæti
útfluttra sjávarafurða.
Fáar þjóðir ef nokkrar eru jafn-
háðar sjávarútvegi og fiskeldi og
frændur okkar í Færeyjum. Þessi
fámenna þjóð, sem telur um 53 þús-
und íbúa, fær megnið af gjaldeyris-
tekjum sínum með sölu á fiski og
fiskafurðum. Hér á eftir verður fjallað
um færeyskan sjávarútveg á árinu
2020; veiðar, fiskeldi og útfluttar
sjávarafurðir með stöku samanburði
við Ísland.
Heildaraflinn 624 þúsund tonn
Á síðasta ári veiddu færeysk skip
um 624 þúsund tonn af fiski, miðað
við landaða vigt, og var aflaverðmæti
tæpir 3,3 milljarðar danskra króna, að
jafngildi 67 milljarða íslenskra króna.
Þessar upplýsingar og fleiri sem til-
greindar eru hér á eftir má finna á vef
færeysku hagstofunnar.
Aflinn skiptist þannig að veiði á
bolfiski, flatfiski og skelfiski nam
samtals um 104 þúsund tonnum, þar
af voru um 70 þúsund tonn veidd á
heimamiðum en rúm 30 þúsund tonn
í lögsögum annarra ríkja eða svæða.
Veiðar á uppsjávarfiski voru tæp 520
þúsund tonn.
Heildarafli íslenskra skipa í fyrra
var um milljarður tonna, og aflaverð-
mætið rúmir 148 milljarðar króna,
að því er fram kemur í frétt á vef
Hagstofu Íslands.
Hafa ber í huga að Íslendingar
miða skráningu sína við afla upp
úr sjó en Færeyingar við landaðan
afla. Erfitt er því að bera aflatölur
þjóðanna saman. Munurinn fer eftir
fisktegundum og meðhöndlun á fiski
um borð.
Rúm 70 þúsund tonn af eldislaxi
Laxeldi er snar þáttur í sjávarútvegi í
Færeyjum eins og að framan greinir.
Færeyingar framleiddu um 78 þúsund
tonn af eldislaxi árið 2019 og um 73
þúsund tonn á síðasta ári. Athygli
vekur að eldislaxinn er svipaður í
tonnum talið og allur sá fiskur sem
Færeyingar veiddu í eigin lögsögu,
að uppsjávarfiski frátöldum, á árinu
2020.
Á síðasta ári nam framleiðsla
Íslendinga á eldisfiski, bæði laxi,
bleikju og fleiri tegundum, um 40,6
þúsund tonnum sem er framleiðslu-
met samkvæmt radarinn.is, sem er
fréttavefur um sjávarútveg og fisk-
eldi á heimasíðu Samtaka fyrirtækja
í sjávarútvegi.
Tæpur þriðjungur þorsks
í eigin lögsögu
Drjúgan hluta bolfisksaflans fá
Færeyingar í lögsögu annarra ríkja
og svæða eins og fram er komið, svo
sem í lögsögu Rússa, Norðmanna,
Grænlendinga við Svalbarða og síð-
ast en ekki síst á Íslandsmiðum.
Sérstaklega á þetta við um
þorskinn. Í heild nam þorskveiðin
um 31 þúsund tonni árið 2020, sem
er 15% samdráttur frá fyrra ári.
Aðeins tæpur þriðjungur þorsksins
var veiddur í færeyskri lögsögu. Mest
veiddist af þorski í rússneskri lög-
sögu, eða 8.554 tonn. Einnig fékkst
verulegur afli í norskri lögsögu og
við Svalbarða. Í íslenskri lögsögu
veiddust 1.565 tonn (landað magn),
samkvæmt upplýsingum á vef fær-
eysku hagstofunnar. Fiskistofa hér
umreiknar þennan afla í 2.270 tonn
upp úr sjó. Þá er tekið tillit til þess
til dæmis hvort fiskur sé slægður eða
hausskorinn um borð.
Mikill samdráttur í þorski
í færeyskri lögsögu
Á síðasta ári var umtalsverður
samdráttur í þorskveiðum í fær-
eysku lögsögunni. Aflinn fór úr rétt
rúmum 20 þúsund tonnum 2019
niður í rúm 9 þúsund tonn árið 2020.
Samdrátturinn nam 53,5% frá árinu
áður. Hér er ekki öll sagan sögð
því að þorskafli á heimamiðum var
óvenjumikill 2019 miðað við nokkur
ár þar á undan.
Veiðar á ýsu í færeyskri lögsögu
minnkuðu um næstum fjórðung milli
ára fóru úr 8.284 tonnum 2019 í 6.320
tonn árið eftir. Veiðar á öðrum botn-
fiskum jukust, til dæmis um 21% í
löngu og 36% í keilu.
Lítils háttar aukning
í uppsjávarfiski
Færeyingar láta mikið að sér kveða
í veiðum á uppsjávarfiski; makríl,
norsk-íslenskri síld og kolmunna.
Afli þeirra í uppsjávarfiski jókst
lítilsháttar, fór úr 516 þúsund tonnum
2019 í tæp 520 þúsund tonn 2020.
Verðmæti landaðs uppsjávarfisks var
rúmir 1,7 milljarðar danskra króna,
eða um 35 milljarðar íslenskir.
Til samanburður þá fengu íslensk
skip rúm 529 þúsund tonn af upp-
sjávarafla í fyrra sem er nánast jafn
mikið og Færeyingar veiddu. Óvíst
er þó að hve miklu leyti þessar tölur
eru sambærilegar. Í fyrra var loðnu-
brestur en í góðum loðnuárum veiða
Íslendingar mun meira af uppsjávar-
fiski en Færeyingar.
Fiskurinn gaf 147
milljarða íslenska
Á síðasta ári fluttu Færeyingar út
vörur fyrir rétt tæpa 8,4 milljarða
danskra króna. Þar af nam útflutn-
ingur sjávarafurða rúmum 7,2 millj-
örðum, um 147 milljarðar íslenskir,
eða um 92% af verðmæti vöruút-
flutnings í heild.
Samdráttur varð í sölu sjávar-
afurða milli ára um 1,2 milljarða
danskra króna, eða 12%. Mest
minnkuðu verðmæti á eldislaxi og
þorskafurðum. Þessar tölur þarf að
skoða með hliðsjón af því að árið
2019 var óvenju hagstætt.
Eins og að líkum lætur skilaði
laxinn mestum verðmætum í fyrra.
Útflutningsverðmæti á laxi var rúmir
3,3 milljarðar danskra króna, eða 67
milljarðar íslenskir, sem er um 46%
af verðmæti útfluttra sjávarafurða.
Makríll er önnur verðmætasta
tegundin. Makrílafurðir náðu tæpum
1 milljarði danskra króna, um 20
milljörðum íslenskum.
Hér á árum áður hafði sjáv-
arútvegur svipaða þýðingu fyrir
Íslendinga og Færeyinga, þ.e. skilaði
um 90% af verðmæti vöruútflutn-
ings. Sjávarútvegur er að sjálfsögðu
enn mikilvægur hér. Hann skilaði
rúmlega 48% af verðmæti vöruút-
flutnings á síðasta ári og þá er verð-
mæti eldisafurða talið með, að því
er fram kemur á radarinn.is. Í heild
var útflutningsverðmæti íslenskra
sjávarafurða og eldisfisks 2020 rétt
um 300 milljarðar króna. Þorskurinn
er í fyrsta sæti með 132 milljarða en
laxinn skaust upp í annað sæti með
20,5 milljarða.
Tæpur fjórðungur til Rússlands
Færeyingar njóta þeirrar sérstöðu að
geta selt sjávarafurðir til Rússlands. Í
kjölfar viðskiptaþvingana Vesturvelda
í garð Rússa, sem Íslendingar studdu,
svöruðu Rússar með banni á innflutn-
ingi matvæla frá viðkomandi þjóðum.
Bannið tók gildi fyrir Ísland á árinu
2015. Þar með misstu Íslendingar af
góðum og velborgandi markaði.
Færeyingar tóku ekki þátt í
þessum viðskiptaþvingunum og
Rússlandsmarkaður stendur þeim því
opinn og er afar mikilvægur.
Á síðasta ári fluttu Færeyingar
sjávarfurðir til Rússlands fyrir 1,7
milljarð danskra króna sem eru um
23,5% af heildarútflutningi sjávar-
afurða.
Um 52% af makrílafurðum Færey-
inga í verðmætum talið fara til Rúss-
lands og 62% af síld.
Samskipti Íslands og Færeyja
Sjávarútvegur í Færeyjum og á Íslandi
er um margt ólíkur, bæði hvað varðar
stjórn fiskveiða, gjaldtöku vegna
aflaheimilda o.fl. Of langt mál yrði
að gera nánari grein fyrir því hér.
Samskipti Íslendinga og Færey-
inga í sjávarútvegsmálum hafa
verið vinsamleg þótt kastast hafi
í kekki í makríldeilunni á sínum
tíma. Samningur er á milli Íslands
og Færeyja um fiskveiðar sem óhætt
er að segja að sé frekar hliðhollur
Færeyingum. Í stuttu máli fjallar
hann aðallega um heimild þeirra
til að veiða botnfisk hér við land.
Færeyingar mega veiða 5.600 tonn af
botnfiski, þar af 2.400 tonn af þorski
að hámarki.
Að auki láta Íslendingar Fær-
eyingum í té álitlegar heimildir í
loðnu á Íslandsmiðum, þ.e. ákveðið
hlutfall af heildarkvóta en að hámarki
30 þúsund tonn.
Samkomulagið felur einnig í
sér gagnkvæman aðgang til veiða
á kolmunna og norsk-íslenskri síld.
Ávinningur Íslands af þessum samn-
ingi er aðallega heimild til að veiða
kolmunnakvóta sinni í færeyskri lög-
sögu en lítið hefur verið af kolmunna
í lögsögu Íslands á undanförnum
árum. Fyrir utan veiðiheimildir í
botnfiski og loðnu hafa Færeyingar
aukið veiðar sínar á norsk-íslenskri
síld af eigin kvóta í íslenskri lög-
sögu. Á síðasta ári veiddu þeir 77
þúsund tonn af síld hér sem er 70%
af síldveiði þeirra.
NYTJAR HAFSINS
Álalogia IV
Horft yfir höfnina í Þórshöfn. Myndir / HKr.
Á síðasta ári veiddu færeysk skip um 624 þúsund tonn af fiski, miðað við
landaða vigt, og var aflaverðmæti tæpir 3,3 milljarðar danskra króna, að
jafngildi 67 milljarða íslenskra króna.